Aðalfundur Rithöfundasambands Íslands (RSÍ) fordæmir þá „ljótu aðför að mál- og tjáningarfrelsi sem og æru rithöfunda og fréttafólks sem opinberast hefur síðustu daga í fréttum af Samherja og þeim vinnubrögðum sem þar eru stunduð“.
Þetta kemur fram í ályktun sambandsins sem finna má á vefsíðu þess en aðalfundurinn var haldinn í gær.
Kjarninn greindi meðal annars frá því um síðustu helgi að lögmaðurinn og almannatengslaráðgjafinn Þorbjörn Þórðarson hefði flett upp eignum rithöfundarins Hallgríms Helgasonar í bæði fasteignaskrá og ökutækjaskrá til þess að komast að því hvort rétt væri að hann ætti Tesla-bifreið, sem reyndar er í eigu nágranna hans. Hugmyndin hefði verið að nota Teslu-eignina gegn honum á opinberum vettvangi. Hallgrímur sagði í samtali við Kjarnann að honum hefði brugðið er hann komst að því að njósnað hefði verið um sig með þessum hætti.
Í ályktun RSÍ segir að það sé með öllu ólíðandi að stundaðar séu ofsóknir, njósnir og skæruhernaður gegn fréttamönnum, rithöfundum og öðrum sem taka þátt í opinberri umræðu í samfélaginu.
„Eitt af hlutverkum Rithöfundasambands Íslands er að standa vörð um tjáningarfrelsið og verja frelsi og heiður ritlistarinnar. Félagsmenn líta það því alvarlegum augum þegar stórfyrirtæki og stjórnendur þess, sem hafa hagnast gríðarlega á því að nýta sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar, nota fé og mannauð til að ráðast gegn og gera tilraunir til að grafa undan skrifandi stéttum, svo sem rithöfundum og fjölmiðlafólki, og þar með lýðræðinu sem grundvallast á frjálsri og óheftri umræðu,“ segir í ályktuninni.
Þá fordæmir aðalfundur RSÍ einnig tilraunir Samherja til að hafa áhrif á forystu í Blaðamannafélagi Íslands og stjórnmálahreyfingum.