Viðræðum Símans við franska sjóðsstýringarfyrirtækið Ardian France SA um kaup á Mílu, sem hófust þann 18. október sl., er nú lokið með undirritun samnings um kaup Ardian á öllu hlutafé í Mílu. Salan er háð fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Áætlaður söluhagnaður er rúmlega 46 milljarðar króna að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna, að því er fram kemur í tilkynningu frá Símanum. Þar segir að áætlað virði viðskiptanna sé 78 milljarðar króna, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Mílu sem kaupandinn yfirtekur.
„Samkvæmt kaupsamningi fær Síminn greitt á efndadegi um 44 milljarða króna í reiðufé og 15 milljarða króna í formi skuldabréfs sem Síminn veitir kaupanda til þriggja ára. Ljóst er að sala Mílu mun hafa umtalsverð áhrif á efnahagsreikning Símans þar sem lausafjárstaða verður sterk og geta til innri og ytri vaxtar verður umtalsverð. Stjórn og framkvæmdastjórn Símans munu vinna að tillögu um ráðstöfun söluandvirðisins sem verður kynnt hluthöfum gangi viðskiptin eftir,” segir í tilkynningunni.
Þá hefur Ardian hefur boðið íslenskum lífeyrissjóðum að taka þátt í kaupunum og getur eignarhlutur þeirra orðið allt að 20 prósent. Slíkt samstarf getur bæði verið með beinni þátttöku eða í gegnum innlenda fjárfestingarsjóði.
Virkum samráðsvettvangi um innviði verði komið á fót
Kjarnastarfsemi Mílu felst í að byggja upp og reka innviði fjarskipta á landsvísu. Líkt og Kjarninn hefur greint frá hefur þjóðaröryggisráð fundað um sölu á innviðum.
Samkvæmt ráðinu er nauðsynlegt út frá þjóðaröryggissjónarmiði og allsherjarreglu að greina áhættuþættir og rýna í fjárfestingu í mikilvægum innviðum samfélagsins, ekki síst erlendri fjárfestingu. Þeirra á meðal eru innviðir í net- og fjarskiptakerfi, en ráðið telur að hætta geti skapast ef eigendur geta haft áhrif á virkni þeirra. Í tilkynningu Símans um söluna á Mílu kemur fram að Síminn eigi í viðræðum við stjórnvöld um að koma á fót samráðsvettvangi um innviði.
„Við fögnum komu reynslumikils fjárfestis á borð við Ardian í íslenska fjarskiptageirann. Orðspor og þekking Ardian á uppbyggingu og langtíma rekstri á afburða innviðum víða um heim fyllir okkur trausti á bjartri og öruggri framtíð þessara grundvallarinnviða á Íslandi. Þetta á sérstaklega við um landsbyggðina. Ardian hefur metnaðarfull áform um að hraða ljósleiðaravæðingu og 5G þjónustu um land allt. Við eigum í viðræðum við stjórnvöld um að koma á fót virkum samráðsvettvangi, þar sem hægt er að deila upplýsingum og leggja grunn að uppbyggilegu samstarfi um ýmsa mikilvæga innviði landsins, stýringu þeirra í íslenskri lögsögu og þjóðaröryggi þeim tengdum,“ er haft eftir Orra Haukssyni í tilkynningu frá Símanum.
Með sölunni losni um samkeppnisleg áhrif
Samkvæmt tilkynningu vill Ardian hraða fjárfestingarverkefnum Mílu og leggja sérstaka áhersla á að leggja ljósleiðara í sveitarfélögum á landsbyggðinni, sem muni auka samkeppnishæfni minni sveitarfélaga, og byggja „framúrskarandi 5G farsímakerfi á Íslandi með tæknibúnaði frá sænska framleiðandanum Ericsson.”
Salan á Mílu er í tilkynningu sögð í samræmi við stefnu Símans um að aðgreina mismunandi viðskiptamódel samstæðunnar og skapa grunn að aukinni samkeppni í stafrænu umhverfi landsins. Síminn verði eftir söluna öflugt og sveigjanlegt félag sem muni öðlast aukið athafnafrelsi en fyrr og lúta léttari reglustýringu af hálfu hins opinbera. Með sölunni losni um samkeppnisleg áhrif sem eftirlitsstofnanir hafa haft áhyggjur af vegna eignarhalds Símans á Mílu.
Vilja byggja upp framsæknara fjarskiptafyrirtæki
Ardian er í tilkynningu sagt reynslumikill langtíma fjárfestir í grunninnviðum og eitt stærsta sjóðsstýringafyrirtæki Evrópu. Félagið var stofnað árið 1996 af Dominique Senequier, er með höfuðstöðvar í París, Frakklandi og skrifstofur á átta öðrum stöðum í Vestur-Evrópu. Um 800 manns vinna hjá Ardian sem er með andvirði um 114 milljarða bandaríkjadala í stýringu. Meðal fjárfesta í Ardian eru ríkisstofnanir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög og stofnanafjárfestar.
Innviðadeild Ardian, Ardian Infrastructure, hafi undanfarið lagt aukna áherslu á fjárfestingar í stafrænum innviðum, auk orku- og samgönguinnviða, en félagið er reynslumikið í rekstri mikilvægra innviða í fjölda landa.
Dr. Daniel von der Schulenberg, framkvæmdastjóri og yfirmaður Ardian Infrastructure fyrir Þýskaland, Benelux löndin og Norður-Evrópu segist hlakka til samstarfs við Símann.
„Við erum þakklát fyrir það tækifæri að fjárfesta á Íslandi og hlökkum til að vinna náið með innlendum samstarfsaðilum okkar. Norðurlöndin eru kjarnasvæði fyrir Ardian innviðateymið. Þar eru sterk grunngildi, vel menntað starfsfólk og sterkir innviðir sem gerir svæðið sérstaklega áhugavert. Míla er langtímafjárfesting og vettvangur til vaxtar fyrir okkur. Við hyggjumst fjárfesta jafnt og þétt í sterkari útbreiðslu fjarskiptainnviða og hlökkum til að veita áfram hágæða þjónustu og tengingar. Við munum vinna náið með stjórnunarteymi Mílu að uppbyggingu enn framsæknara fjarskiptafyrirtækis. Við hlökkum einnig til samstarfs við Símann sem mikilvægs framtíðar viðskiptavinar og íslensku lífeyrissjóðina sem meðeigenda okkar í Mílu,“ segir von der Schulenberg í tilkynningu Símans.
Ardian með fjármunina og Míla þekkinguna
Þá greinir frá því í tilkynningunni að Seðlabanki Íslands eigi í sérstökum tilvikum tvíhlíða viðskipti (kaup og sölu) framhjá markaðinum við viðskiptavaka á gjaldeyrismarkaði (Arion banka, Íslandsbanka, Landsbankann). “Þá er um að ræða viðskipti af stærðargráðu sem mögulega valda tímabundnum flæðisfrávikum eða óvenjulegum skammtímahreyfingum á gengi krónunnar, ef þeim yrði beint inn á gjaldeyrismarkaðinn. Ef af kaupunum verður munu Síminn og Ardian vinna með Seðlabanka Íslands að framgangi viðskiptanna þegar þar að kemur þannig að sem minnst áhrif verði á gjaldeyrismarkaði.”
Jón Ríkharð Kristjánsson, framkvæmdastjóri Mílu, segir í tilkynningu að mikilvægt sé að fá svona fjársterkan aðila inn í uppbyggingu fjarskiptainnviða.
„Um leið og þetta er mikil viðurkenning fyrir það starf sem unnið hefur verið hjá Mílu undanfarin ár eru þetta feikilega spennandi tímamót fyrir félagið. Stjórnvöld hafa lengi haft þá stefnu að ljúka þurfi háhraðanetstengingu um allt land en á sama tíma sagt óleyst hvernig það verði gert. Míla hefur lýst því yfir að félagið hyggist gera það. Um 13.000 staðföng í bæjum og þorpum á landsbyggðinni eru án ljósleiðaratenginga. Það er stefna nýrra eigenda Mílu að hraða uppbyggingu til þessara staða. Ljósleiðaravæðing er eitt stærsta byggðamál Íslands og Ardian hefur fjármuni og Míla þekkingu sem þarf til að láta verkin tala í þessum efnum. Uppbygging 5G farsímanets er annað umfangsmikið verkefni sem farið er af stað auk þess sem fjarskiptaöryggi er stórt atriði sem þarf að tryggja. Það er því mjög gleðilegt að fá svona fjársterkan aðila í þessi mikilvægu verkefni. Míla sem sjálfstætt fyrirtæki með öfluga eigendur mun verða enn sterkari en áður og fullbúið til að takast á við þessar áskoranir sem framundan eru í að efla enn frekar íslenska fjarskiptainnviði,“ er haft eftir Jóni í tilkynningu sem lesa má í heild sinni hér.