Segir söluna á Íslandsbanka sukk og svínarí – „Spillingin gerist vart svæsnari“

Fyrrverandi forsætisráðherra tjáir sig með afgerandi hætti á Facebook um Íslandsbankasöluna. „Það er ekki nóg með að skúrkar úr bankahruninu hafi komist bakdyramegin inn heldur virðast dyr lánastofnana hafa staðið þeim opnar til lántöku fyrir góssinu.“

Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra Íslands.
Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra Íslands.
Auglýsing

„Salan í Íslands­banka er svo mikið sukk og svínarí að bæði þarf að leita leiða til að rifta henni og draga menn til ábyrgð­ar.“

Þetta skrifar Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra, í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag.

Hún segir að ekki sé nóg með að „skúrkar úr banka­hrun­inu“ hafi kom­ist bak­dyra­megin inn heldur virð­ast dyr lána­stofn­ana hafa staðið þeim opnar til lán­töku fyrir góss­inu.

Auglýsing

„­Fjöldi kaup­enda seldi strax og græddi millj­arða á „einni nóttu“ af almanna­eign. Spill­ingin ger­ist vart svæsnari. Nú þarf að virkja lög um ráð­herra­á­byrgð, sem Alþingi hefur heykst á að breyta þrátt fyrir kröfu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis á banka­hrun­inu þar um.

Þeim lögum ætl­aði mín rík­is­stjórn að láta breyta á árinu 2010 en fosætis­nefnd Alþingis sagði að það væri verk­efni Alþingis en ekki for­sæt­is­ráð­herra að leggja fram frum­varp þar að lút­andi. Ég skora á Alþingi að breyta þegar í stað þessum lögum en frum­varp liggur fyrir um það frá Sam­fylk­ing­unni og Píröt­u­m,“ skrifar Jóhanna.

https://kjarn­inn.is/.../­stor-hlut­i-t­heirra-­sem-­feng­u-a­d.../ ­Salan í Íslands­banka er svo mikið sukk og svínarí að bæð­i...

Posted by Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir on Thurs­day, April 14, 2022

Margir selt sig niður að ein­hverju eða öllu leyti

Vísar Jóhanna í grein Kjarn­ans frá því fyrr í vik­unni þar sem fram kom að alls væru 132 þeirra 207 fjár­­­­­festa sem fengu úthlutað hlutum í Íslands­­­­­banka í nýlegu lok­uðu útboði ekki lengur skráðir fyrir sama hlut og þeir fengu úthlut­að.

Margir þeirra hefðu selt sig niður að ein­hverju eða öllu leyti. Heim­ild­­­ar­­­menn Kjarn­ans innan banka­­­kerf­is­ins segja að í flestum til­­­vikum séu við­kom­andi ein­fald­­­lega búnir að selja hlut­inn og leysa út hagn­að­inn af því að hafa fengið að taka þátt í útboð­inu með afslætti. Í ein­hverjum til­­­vikum hafi verið fram­­­virkir samn­ingar við þá og við­kom­andi fengið lán fyrir kaup­unum sem hafi svo verið gert upp strax á fyrstu dögum eftir að hægt var að selja að nýju. Það sem eftir sat lenti svo í vasa við­kom­andi fag­fjár­­­­­festis sem hreinn hagn­að­­­ur.

Í öðrum til­­­vikum hafi hlut­­­ur­inn þó verið fluttur á vörslu­­­reikn­inga í eign­­­ar­­­stýr­ingu við­kom­andi. Ómög­u­­­legt er að sjá af hlut­haf­a­list­­­anum hverjir færðu bréfin sín með þeim hætti og hverjir seldu. Velta með bréf í Íslands­­­­­banka, þar sem sem þau eru keypt og seld, dag­anna eftir að útboð­inu lauk var marg­­­föld það sem hún var að með­­­al­tali á dag frá ára­­­mótum og fram að útboði. frá 23. mars og til 11. apríl höfðu um 152,6 millj­­­ónir hluta skipt um eig­end­­­ur. Það er um þriðj­ungur þess sem selt var í útboð­in­u.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent