Skýrsla um niðurstöðu stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar á sölu á 22,5 prósent hlut ríkisins í Íslandsbanka til 207 fjárfesta í lokuðu útboði fyrir 52,65 milljarða króna í mars síðastliðnum verður ekki tilbúin seint í júlí, líkt og boðað hafi verið. Þess í stað er reiknað með að skýrslan verði tilbúin í fyrri hluta ágústmánaðar.
Þetta kemur fram í svari Guðmundar Björgvins Helgasonar ríkisendurskoðanda við fyrirspurn Kjarnans um málið. Upphaflega átti skýrslugerðin að klárast í júní.
Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, en hann bað formlega um gerð hennar 7, apríl síðastliðinn og Ríkisendurskoðun samþykkti að taka að sér verkið í kjölfarið. Í bréfi ráðuneytisins kom fram að umræða hafi skapast um hvort framkvæmd sölunnar hafi verið í samræmi við áskilnað laga og upplegg stjórnvalda sem borið var undir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis til umsagnar.
Ríkisendurskoðun ákvað daginn eftir, þann 8. apríl, að verða við beiðninni.
Í bréfi sem hún sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og framkvæmd úttektarinnar hefur ekki farið fram en hún mun verða endurskoðuð eftir því sem úttektinni vindur fram. Í því sambandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. framangreindra laga er ríkisendurskoðandi sjálfstæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlutverki sínu samkvæmt lögunum. Stefnt er að því að niðurstaða úttektarinnar verði birt í opinberri skýrslu til Alþingis í júnímánuði 2022.“
Til stendur að kalla Alþingi saman til að ræða skýrsluna
Það flækti málin að Alþingi átti eftir að kjósa nýjan ríkisendurskoðanda í stað Skúla Eggerts Þórðarsonar, sem ákvað að hætta sem slíkur og verða ráðuneytisstjóri í nýju viðskipta- og menningarráðuneyti. Til stóð að kjósa nýjan ríkisendurskoðanda á þingi fyrir maílok.
Guðmundur Björgvin var starfandi ríkisendurskoðandi á þessum tíma og einn þeirra tólf sem sóttist eftir embættinu.
Það frestaðist að ganga frá kosningu ríkisendurskoðanda og þann 8. júní hafði Kjarninn eftir Guðmundi Björgvini að til stæði að skila skýrslunni um Íslandsbankasöluna til Alþingis í síðustu viku júnímánaðar. Daginn eftir, þann 9. júní, var Guðmundur Björgvin kosinn nýr ríkisendurskoðandi.
Þegar þingfundum var frestað 16. júní síðastliðinn var það gert til að þingmenn gætu verið í sumarfríi til 13. september, eða í þrjá mánuði. Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, bað þingmenn hins vegar um að vera undir það búna að Alþingi yrði kallað saman til framhaldsfunda þegar þinginu hefur borist skýrsla ríkisendurskoðanda um sölu á hlutabréfum ríkisins í Íslandsbanka.
Kjósendur Sjálfstæðisflokks þeir einu sem töldu úttekt nægja til
Sú ákvörðun Bjarna Benediktssonar að fela Ríkisendurskoðun að gera úttekt á bankasölunni var harðlega gagnrýnd af sumum stjórnarandstöðuþingmönnum, sem vildu láta skipa rannsóknarnefnd Alþingis með mun víðtækari heimildir til að fara ofan í saumana á sölunni.
Í grein sem Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, birti á Kjarnanum í apríl sagði meðal annars: „Það má vel vera að Ríkisendurskoðun sé ágætlega til þess fallin að yfirfara ákveðna þætti er varða söluna á Íslandsbanka. En ef ætlunin er að rannsaka atburðina frá mörgum hliðum, lagalegum, siðferðilegum, pólitískum og stjórnsýslulegum, og „velta við öllum steinum“ eins og jafnvel stjórnarliðar kalla eftir er hins vegar ljóst að rannsóknarheimildir Ríkisendurskoðunar duga skammt og verkefnið fellur beinlínis illa að starfssviði stofnunarinnar. Þá er óheppilegt að úttektin fari fram samkvæmt sérstakri beiðni frá fjármála- og efnahagsráðherra, sama manni og hefur forgöngu um bankasöluna sem er til athugunar.“
Í könnun sem Gallup birti seint í apríl kom fram að 73,6 prósent landsmanna taldi að það ætti að skipa rannsóknarnefnd en 26,4 prósent taldi nægjanlegt að Ríkisendurskoðun gerði úttekt á sölunni. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 prósent þeirra voru á því að úttekt Ríkisendurskoðunar nægði til. Tæplega þriðjungur kjósenda hinna stjórnarflokkanna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rannsóknarnefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjósendur stjórnarandstöðuflokka voru nær allir á því að rannsóknarnefnd sé nauðsynleg.