Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu Íslandsbanka frestast aftur – Kemur í ágúst

Þegar Ríkisendurskoðun tók að sér að gera stjórnsýsluúttekt á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka fyrir rúmum tveimur mánuðum ætlaði hún að skila skýrslu í júní. Síðan átti að skila henni fyrir verslunarmannahelgi. Nú er hún væntanleg í ágúst.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Skýrslan er gerð að hans beiðni.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Skýrslan er gerð að hans beiðni.
Auglýsing

Skýrsla um nið­­ur­­stöðu stjórn­­­sýslu­út­­­tektar Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar á sölu á 22,5 pró­­sent hlut rík­­is­ins í Íslands­­­banka til 207 fjár­­­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­­arða króna í mars síð­­ast­liðnum verður ekki til­­­búin seint í júlí, líkt og boðað hafi ver­ið. Þess í stað er reiknað með að skýrslan verði til­búin í fyrri hluta ágúst­mán­að­ar. 

Þetta kemur fram í svari Guð­mundar Björg­vins Helga­sonar rík­is­end­ur­skoð­anda við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið. Upp­haf­lega átti skýrslu­gerðin að klár­ast í júní.

Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, en hann bað for­m­­lega um gerð hennar 7, apríl síð­­ast­lið­inn og Rík­­is­end­­ur­­skoðun sam­­þykkti að taka að sér verkið í kjöl­far­ið. Í bréfi ráðu­­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­­ast um hvort fram­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­legg stjórn­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­laga­­­nefnd og efna­hags- og við­­­skipta­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­ar.

Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun ákvað dag­inn eft­ir, þann 8. apr­íl, að verða við beiðn­­­inni.

Í bréfi sem hún sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­­­kvæmd úttekt­­­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­­­ur­­­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­­­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­­­greindra laga er rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­andi sjálf­­­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­­­kvæmt lög­­­un­­­um. Stefnt er að því að nið­­­ur­­­staða úttekt­­­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í jún­­í­mán­uði 2022.“

Til stendur að kalla Alþingi saman til að ræða skýrsl­una

Það flækti málin að Alþingi átti eftir að kjósa nýjan rík­­is­end­­ur­­skoð­anda í stað Skúla Egg­erts Þórð­­ar­­son­­ar, sem ákvað að hætta sem slíkur og verða ráðu­­neyt­is­­stjóri í nýju við­­skipta- og menn­ing­­ar­ráðu­­neyti. Til stóð að kjósa nýjan rík­­is­end­­ur­­skoð­anda á þingi fyrir maí­­lok. 

Auglýsing
Því var sú staða uppi að Rík­­is­end­­ur­­skoðun var falið að ráð­­ast í úttekt á einu umdeildasta þjóð­­fé­lags­­máli síð­­­ari ára, þar sem 88,4 pró­­sent þjóð­­ar­innar telja sam­­kvæmt könnun Gallup að óeðli­­legir við­­skipta­hættir hafi átt sér stað og 83 pró­­sent þjóð­­ar­innar er óánægt með fram­­kvæmd­ina, án þess að búið væri að skipa nýjan rík­­is­end­­ur­­skoð­anda. 

Guð­­mundur Björg­vin var starf­andi rík­­is­end­­ur­­skoð­andi á þessum tíma og einn þeirra tólf sem sótt­­ist eftir emb­ætt­in­u. 

Það frestað­ist að ganga frá kosn­­ingu rík­­is­end­­ur­­skoð­anda og þann 8. júní hafði Kjarn­inn eftir Guð­­mundi Björg­vini að til stæði að skila skýrsl­unni um Íslands­­­banka­­söl­una til Alþingis í síð­­­ustu viku jún­í­mán­að­­ar. Dag­inn eft­ir, þann 9. júní, var Guð­­mundur Björg­vin kos­inn nýr rík­­is­end­­ur­­skoð­and­i. 

Þegar þing­fundum var frestað 16. júní síð­ast­lið­inn var það gert til að þing­menn gætu verið í sum­ar­fríi til 13. sept­em­ber, eða í þrjá mán­uði. For­seti Alþing­is, Birgir Ármanns­son, bað þing­menn hins vegar um að vera undir það búna að Alþingi yrði kallað saman til fram­halds­funda þegar þing­inu hefur borist skýrsla rík­is­end­ur­skoð­anda um sölu á hluta­bréfum rík­is­ins í Íslands­banka. 

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks þeir einu sem töldu úttekt nægja til

Sú ákvörðun Bjarna Bene­dikts­­sonar að fela Rík­­is­end­­ur­­skoðun að gera úttekt á banka­­söl­unni var harð­­lega gagn­rýnd af sumum stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­þing­­mönn­um, sem vildu láta skipa rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis með mun víð­tæk­­ari heim­ildir til að fara ofan í saumana á söl­unn­i. 

Í grein sem Jóhann Páll Jóhanns­­son, þing­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, birti á Kjarn­­anum í apríl sagði meðal ann­­ars: „Það má vel vera að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun sé ágæt­­­lega til þess fallin að yfir­­­fara ákveðna þætti er varða söl­una á Íslands­­­­­banka. En ef ætl­­­unin er að rann­saka atburð­ina frá mörgum hlið­um, laga­­­leg­um, sið­­­ferð­i­­­leg­um, póli­­­tískum og stjórn­­­­­sýslu­­­leg­um, og „velta við öllum stein­um“ eins og jafn­­­vel stjórn­­­­­ar­liðar kalla eftir er hins vegar ljóst að rann­­­sókn­­­ar­heim­ildir Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­unar duga skammt og verk­efnið fellur bein­línis illa að starfs­sviði stofn­un­­­ar­inn­­­ar. Þá er óheppi­­­legt að úttektin fari fram sam­­­kvæmt sér­­­stakri beiðni frá fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, sama manni og hefur for­­­göngu um banka­­­söl­una sem er til athug­un­­­ar.“

Í könnun sem Gallup birti seint í apríl kom fram að 73,6 pró­­­sent lands­­­manna taldi að það ætti að skipa rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd en 26,4 pró­­­sent taldi nægj­an­­­legt að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun gerði úttekt á söl­unni. Kjós­­­endur Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­­­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­unar nægði til. Tæp­­­lega þriðj­ungur kjós­­­enda hinna stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­­­endur stjórn­­­­­ar­and­­­stöð­u­­­flokka voru  nær allir á því að rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd sé nauð­­­syn­­­leg.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent