Gildi lífeyrissjóður mun gera athugasemdir við og greiða atkvæði gegn tillögu stjórnar Arion banka um starfskjarastefnu bankans. Sjóðurinn, sem er stærsti einstaki eigandi Arion banka með 9,61 prósent eignarhlut, telur að stjórnin hafi ekki „með fullnægjandi hætti rökstutt þörfina og tilgang þess að nýta heimild til að koma á fót árangurstengdu launakerfi, aukningu kauprétta og áskriftarréttindum. Laun stjórnenda bankans virðast að mati sjóðsins, þegar tillit er tekið til möguleika á árangurstengdum greiðslum, kaupréttum og áskriftarréttindum, hærri en það sem gengur og gerist hjá öðrum íslenskum bönkum og skráðum fyrirtækjum sem starfa á íslenskum markaði.“
Þetta kemur fram í bókun sem Gildi ætlar að leggja fram á aðalfundi Arion banka sem haldin verður 16. mars næstkomandi, og sjóðurinn hefur birt á vef sínum. Mikilvægt er að mati Gildis að ef félög ákveði að notast við árangurstengd launakerfi sé gætt heildarsamhengis. Til dæmis að föst laun séu þá lægri samanborið við félög þar sem slík kerfi eru ekki til staðar. „Þá er mikilvægt að slíkt kerfi hvetji ekki til óeðlilegar áhættutöku,“ segir í bókuninni.
Gildi ætlar líka að greiða atkvæði gegn tillögu um þóknun til stjórnarmanna á þeim grundvelli að fjárhæðir sem þar eru lagðar til séu hærri en það sem gengur og gerist.
Stjórnendur geta fengið fjórðung af árslaunum
Í desember í fyrra var greint frá því að öllu fastráðnu starfsfólki Arion banka muni standa til boða að geta fengið allt að tíu prósent af föstum árslaunum sínum á árinu 2021 í kaupauka þegar ársreikningur bankans fyrir árið 2021 liggur fyrir, ef þau markmið sem nýtt kaupaukakerfi tilgreinir nást.
Þeir stjórnendur og það starfsfólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bankans mun geta fengið allt að 25 prósent af föstum árslaunum í kaupaukagreiðslu, en þá í formi hlutabréfa í bankanum sem verða ekki laus til ráðstöfunar fyrr en að þremur árum liðnum.
Þau markmið sem Arion banki þarf að ná til að kaupaaukakerfið fari í gang fela í sér að arðsemi bankans verðir að vera hærri en vegið meðaltal arðsemi helstu keppinauta bankans: Íslandsbanka, Landsbanka og Kviku. „Náist þetta markmið ekki, verður ekki greiddur út kaupauki. Heildarfjárhæðin sem veitt verður til kaupaukagreiðslna verður þó aldrei hærri en sem nemur arðsemi bankans umfram vegið meðaltal arðsemi samkeppnisaðila,“ segir í tilkynningu frá Arion banka til þeirra hlutabréfamarkaða sem bankinn er skráður á, en hann er tvískráður á Íslandi og í Svíþjóð.
Stjórn Arion banka hefur samþykkt hið breytta kaupaukakerfi og telur það í fullu samræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins um kaupaukagreiðslur starfsfólks fjármálafyrirtækja og starfskjarastefnu bankans sem samþykkt var á hluthafafundi. Áður hafði stjórn bankans samþykkt að engar kaupaukagreiðslur yrðu greiddar út vegna ársins 2020.
Geta keypt bréf undir markaðsvirði
Kaupréttaráætlunin, sem nær til allra fastráðinna starfsmanna, var samþykkt á aðalfundi Arion banka í mars í fyrra og markmið hennar er sagt vera að „samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni bankans.“
Í febrúar síðastliðinn var svo greint frá því að allir 628 fastráðnir starfsmenn Arion banka sem eiga rétt á að gerð kaupréttarsamning við bankann hafi gert slíkan. Í samningnum felst að starfsmennirnir geta keypt hlutabréf í bankanum fyrir alls 600 þúsund krónur einu sinni á ári í fimm ár. Fyrsti nýtingardagur er í febrúar á næsta ári en sá síðasti í febrúar 2026.
Kaupverð starfsmanna Arion banka á hlutum í bankanum er vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem er 3. febrúar 2021, eða 95,5 krónur hver hlutur. Það er 23,5 prósent undir núverandi markaðsgengi Arion banka.