Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist með smit í gærkvöldi

Hagkaup segja frá því að starfsmaður sinn hafi greinst með COVID-19 í gærkvöldi. Almannavarnir svara því ekki hvort sá einstaklingur var sá eini sem greindist jákvæður fyrir veirunni í gær eða ekki.

Búið er að sótthreinsa snertifleti í verslun Hagkaups í Garðabæ, samkvæmt tilkynningu fyrirtækisins.
Búið er að sótthreinsa snertifleti í verslun Hagkaups í Garðabæ, samkvæmt tilkynningu fyrirtækisins.
Auglýsing

Starfs­maður Hag­kaups í Garðabæ greind­ist jákvæður fyrir COVID-19 á mánu­dags­kvöld. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Hag­kaup, sem birt­ist á Face­book í morg­un. Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra gefur ekki upp hvort fleiri smit greindust í gær.

Yfir þús­und manns fóru í skimun í gær eftir að breska afbrigði veirunnar greind­ist úti í sam­fé­lag­inu um helg­ina.

„Um­ræddur starfs­maður vinnur á nótt­unni við áfyll­ingar og var við störf aðfara­nótt laug­ar­dags og sunnu­dags sl. helgi. Starfs­mað­ur­inn var lítið sem ekk­ert í sam­skiptum við við­skipta­vini, bar grímu við störf sín og fór eftir þeim sótt­varn­ar­reglum sem gilda á vinnu­staðn­um,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Hag­kaup, þar sem fram kemur að umfangs­mikil sótt­hreinsun á snerti­flötum í versl­un­inni hafi átt sér stað.

„Þeir starfs­menn sem unnu á sömu vöktum og umræddur starfs­maður um helg­ina verða sendir í skimum í dag og munu halda sig heima þar til rakn­ing­arteymi almanna­varna hefur gefið grænt ljós á end­ur­komu. Öll við­brögð við þess­ari stöðu eru unnin í nánu sam­starfi við almanna­varn­ir,“ segir í til­kynn­ingu sem Sig­urður Reyn­alds­son fram­kvæmda­stjóri Hag­kaups skrifar und­ir.

Sem áður segir fást ekki upp­lýs­ingar frá almanna­vörnum um það hvort þetta var eina smitið sem greind­ist í gær­kvöldi eða ekki, en tölur um hversu mörg smit greindust verða birtar kl. 11 á vefnum Covid.­is.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent