Stjórn RÚV segir Samherja að hún hafi ekkert með fréttaflutning að gera

Stjórn RÚV mun ekkert aðhafast vegna kröfu Samherja um að Helgi Seljan sinni ekki frekari umfjöllun um fyrirtækið og verði áminntur í starfi. Stjórnin bendir Samherja á að það sé ekki í hennar verkahring.

Stjórn RÚV tók
Stjórn RÚV tók
Auglýsing

Stjórn RÚV hefur komið því á fram­færi við lög­mann á vegum Sam­herja að mál­efni ein­stakra starfs­manna RÚV séu ekki til úrlausnar á borði stjórnar RÚV. Stjórnin hlut­ist ekki til um frétta­flutn­ings eða dag­skrá fjöl­mið­ils­ins, t.d. með þvi að leggja mat á hvaða starfs­fólk sinni umfjöllun eða frétta­flutn­ingi um til­tekin mál­efni.

Þetta kemur fram í svari stjórn­ar­innar til Sam­herja, sem birt er á vef RÚV í dag, en málið var rætt á stjórn­ar­fundi í gær.

Sam­herji sendi stjórn RÚV erindi á mánu­dag þar sem þess var kraf­ist að RÚV myndi meina frétta­mann­inum Helga Seljan að fjalla um mál sem tengj­ast fyr­ir­tæk­inu eða koma að vinnslu efnis því tengdu. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið krafð­ist þess einnig að Helgi yrði áminntur í starf­i.

Stjórn RÚV segir að það sé í höndum dag­skrár­stjóra, frétta­stjóra sem og dag­skrár­gerð­ar­fólks og frétta­manna að fara með þau verk­efni, sem séu á ábyrgð útvarps­stjóra, sam­kvæmt lögum um Rík­is­út­varp­ið. Stjórn RÚV muni því ekki aðhaf­ast neitt frekar vegna erindis Sam­herja.

Í yfir­lýs­ingu frá frétta­stofu RÚV eftir að úrskurður siða­nefndar var kveð­inn upp sagði að nið­ur­staða hennar myndi ekki hafa nein áhrif á störf Helga Selj­an.

Ell­efu starfs­menn kærðir fyrir ummæli

Sam­herja kærði ell­efu starfs­­menn RÚV í ágúst í fyrra vegna meintra brota á siða­­reglum mið­ils­ins, sem kveða á um að frétta­­fólk þess taki ekki opin­ber­­lega afstöðu í umræðu um póli­­tísk mál­efni eða umdeild mál í sam­fé­lag­inu.

Í síð­­­ustu viku komst svo siða­­nefnd RÚV að því að fimm ummæli Helga á sam­­fé­lags­miðlum um Sam­herja hefðu brotið gegn siða­regl­­um. Siða­nefndin hefur síðan end­­ur­­skoðað þá afstöðu sína og dregið til baka þá nið­­ur­­stöðu að ein ummæl­in, sem sner­ust um fyr­ir­tækið Eldum Rétt en ekki Sam­herja, væru brot á siða­regl­­um.

Auglýsing

Þorra ummæl­anna var vísað frá eða kom­ist að þeirri nið­­ur­­stöðu að þau brytu ekki í bága við siða­regl­­ur, fyrir utan nokkur ummæli Helga. Nefndin flokkar þessi ummæli, sem eru færslur á Twitter og Face­­book, sem alvar­­leg brot á siða­­reglum RÚV, en bætti þó við að hún teldi ekki að Helgi hafi gerst brot­­legur í starfi með þeim.

Nið­ur­staða stjórnar í takt við vænt­ingar Félags frétta­manna

­Stjórn Félags frétta­­­manna lýsti von­brigðum sínum með nið­­­ur­­­stöðu siða­­­nefndar RÚV í síð­ustu viku og sagð­ist hafa áhyggjur af því hvaða afleið­ingar nið­­­ur­­­staðan gæti haft fyrir gagn­rýna fjöl­mið­l­un. Stjórn félags­ins sendi stjórn RÚV einnig erindi þar sem fjallað var um kröfu Sam­herja varð­andi Helga og kom því á fram­færi að stjórn RÚV ætti að vísa erind­inu frá.

Þóra Arn­órs­dótt­ir, rit­stjóri frétta­skýr­ing­ar­þátt­ins Kveiks, sagði við Frétta­blaðið í gær að hún spyrði sig að því hvers vegna stjórn Rík­is­út­varps­ins væri yfir höfuð að fjalla um kröfur Sam­herja. Til þess hefði hún ekk­ert umboð og það væri ekki hluti af hennar starfi.

„Þannig að ég í­mynda mér og geri ekki ráð fyrir öðru en að þessu verði vísað frá og að það verði það sem verði sent til lög­­­manns Sam­herja. Stjórnin hefur ekk­ert með þetta erindi að ger­a,“ sagði Þóra við Frétta­blaðið í gær.

Það hefur nú komið á dag­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent