Stjórnarformaður Bankasýslunnar: Ráðamenn vilja beina óánægju yfir á okkur

Viðbrögð ráðamanna gætu að mati stjórnarformanns Bankasýslunnar borið þess merki að verið sé að bregðast við óánægjunni á bankasölunni í samfélaginu. „Viðbrögðin einkennast af því að það eigi að beina þeirri óánægju yfir á okkur,“ segir hann.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslunnar.
Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslunnar.
Auglýsing

Lárus Blön­dal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unn­ar, er undr­andi á þeim orðum Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, um að hann treysti ekki Banka­sýsl­unni eftir síð­asta útboðið á hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem fram fór fyrir um mán­uði síð­an. Orðin lét Sig­urður Ingi falla á Alþingi í gær. Sagði hann sér­fræð­inga hafa brugð­ist.

Lárus seg­ist í sam­tali við Frétta­blaðið í dag ekki hafa orðið var við neina gagn­rýni frá rík­is­stjórn­inni varð­andi fram­kvæmd­ina sem slíka og „ég er enn sann­færður um að fram­kvæmdin hafi verið í sam­ræmi við það sem kynnt var í upp­hafi“.

Auglýsing

Banka­sýslan hafi við­ur­kennt að kynn­ing á útboð­inu gagn­vart almenn­ingi hafi ekki tek­ist sem skyldi. Að öðru leyti ótt­ist hann ekki boð­aðar úttektir Rík­is­end­ur­skoð­unar og Fjár­mála­eft­ir­lits. „Ég raunar fagna því að allir angar þessa máls verði skoð­aðir ofan í kjöl­inn. Sér­stak­lega sá þáttur sem snýr að sölu­að­il­un­um. Þar komu fram atriði sem komu okkur í Banka­sýsl­unni á óvart,“ segir Lár­us.

Við­brögð ráða­manna gætu borið þess merki að verið sé að bregð­ast við óánægj­unni í sam­fé­lag­inu. „Við­brögðin ein­kenn­ast af því að það eigi að beina þeirri óánægju yfir á okk­ur,“ segir Lárus við Frétta­blað­ið.

Hann ótt­ast að frek­ari sala rík­is­eigna muni frest­ast en for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja hafa boðað að Banka­sýslan verði lögð nið­ur. „Það er, að mínu mati, sorg­legt því það bitnar fyrst og fremst á fjár­málum rík­is­ins, skulda­stöðu þjóð­ar­bús­ins og getu til að standa að nauð­syn­legri inn­viða­upp­bygg­ingu á vegum hins opin­ber­a.“

Meðal þess sem gagn­rýnt hefur verið við banka­söl­una er hvernig þátt­tak­endur í útboð­inu voru vald­ir, hverjir voru vald­ir, upp­hæð­irnar sem þeir keyptu fyr­ir, að faðir fjár­mála­ráð­herra hafi m.a. tekið þátt og að sölu­ráð­gjaf­arnir sem ráðnir voru til verks­ins hafi átt að fá mjög væna þókn­un. Og margt fleira hefur einnig verið gagn­rýnt.

Stjórn­ar­and­staðan hefur farið fram á að skipuð verði sér­stök rann­sókn­ar­nefnd til að fara yfir allt ferlið en rík­is­stjórnin segir það vera óþarft, að minnsta kosti að sinni, þar sem bæði Rík­is­end­ur­skoðun og Fjár­mála­eft­ir­litið séu með málið til skoð­un­ar.

Skiptar skoð­anir eru hins vegar innan stjórn­ar­innar hvað varðar traust til Banka­sýsl­unn­ar. Líkt og að framan er rakið er það ekki upp á marga fiska hjá Sig­urði Inga inn­við­a­ráð­herra en fjár­mála­ráð­herrann, Bjarni Bene­dikts­son, er á annarri skoð­un. Í síð­ustu viku sagði hann við frétta­stofu Stöðvar 2 og Vís­is, um til­kynn­ingu sína og for­manna hinna tveggja stjórn­ar­flokk­anna um að leggja ætti Banka­sýsl­una nið­ur: „Ef að málið sner­ist um algert van­traust á Banka­sýsl­una þá hefðum við ein­fald­lega sagt það. Þá hefðum við óskað eftir því að stjórnin myndi víkja og stjórn­end­ur. En það er ekki það sem við erum að ger­a.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent