„Það var mjög óheppilegt að náinn ættingi hafi verið í þessum kaupendahópi“

Forsætisráðherra segir að ekki hafi verið ákveðið hvenær Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og hvaða fyrirkomulag taki við þegar selja á hlut í ríkisbanka. Hún hafði ekki séð það fyrir að faðir Bjarna Benediktssonar yrði á meðal kaupenda í ríkisbanka.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun.
Auglýsing

„Það er auð­vitað mjög óheppi­legt að náinn ætt­ingi hafi verið í þessum kaup­enda­hópi. Og það vekur kannski spurn­ingar vegna þess að við búum í mjög litlu sam­fé­lagi þar sem við höfðum ekki séð fyrir að þarna gætu slík náin tengsl verið uppi á borðum í þessum kaup­enda­lista.“

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun þegar hún var spurð, af Sig­mari Guð­munds­syni þing­manni Við­reisn­ar, hvort það væri í lagi að ráð­herra gæti tekið ákvörðun um sölu rík­is­eignar þegar náinn ætt­ingi við­kom­andi væri á meðal kaup­enda. 

Þar vís­aði Sig­mar í að á meðal þeirra 207 fjár­festa sem fengu að kaupa 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum í lok­uðu til­boð­sút­boði var faðir Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en hann ber ábyrgð á sölu rík­is­eigna. 

Katrín var mætt fyrir nefnd­ina vegna setu sinnar í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál til að ræða skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferlið, þar sem fram kom að fjöl­margir ann­markar hafi verið á sölu­ferl­inu. Á fund­inum sagði hún að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra bæri ábyrgð gagn­vart sölu­ferl­inu, að rök­stuðn­ingur fyrir fram­kvæmd þess væri mál­efna­legur og byggði á skýrum for­send­um. „Það er hin almenna rann­sókn­ar­skylda sem ráð­herr­ann hefur í þessu máli, en ekki að fara yfir 150-200 fjár­festa og kanna þar hver tengsl þeirra eru. En að því sögðu þá var mjög óheppi­legt að þarna hafi verið um þessi nánu tengsl að ræða.“

Auglýsing
Hún hafi ekki séð að lög hafi verið brotin við söl­una á hlut íslenska rík­is­ins og telur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra meðal ann­ars hafa axlað póli­tíska ábyrgð með því að biðja um gerð úttektar Rík­is­end­ur­skoð­un­ar. 

Liggur ekki fyrir hvenær Banka­sýslan verður lögð niður

Banka­sýsla rík­is­ins var harð­lega gagn­rýnd í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir fram­kvæmd­ina á söl­unni á hlut rík­is­ins í Íslands­banka, en for­svars­menn hennar hafa hafnað þeirri gagn­rýni og varið sig af hörku, meðal ann­ars með birt­ingu athuga­semda á heima­síðu sinn­i. 

Rík­is­stjórnin ákvað hins vegar 19. apr­íl, tæpum mán­uði eftir söl­una og mörgum mán­uðum áður en skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar kom út, að leggja niður stofn­un­ina og setja alla frek­ari sölu á hlutum í Íslands­banka á ís á meðan að á rann­sókn Rík­is­end­ur­skoð­unar og Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands á ferl­inu stóð. 

Katrín sagði á fund­inum í dag þeir ann­markar sem höfðu verið stað­festir af Rík­is­end­ur­skoð­un, en höfðu líka verið til umræðu í rík­is­stjórn í vor, hefðu leitt í ljós  þörf­ina fyrir end­ur­skoðun á lagaum­gjörð og stofn­ana­fyr­ir­komu­lagi. „Það var nið­ur­staða okkar að eðli­legt væri að leggja niður Banka­sýsl­una og leggja til nýtt fyr­ir­komu­lag. Við erum ekki búin að leggja til nýtt fyr­ir­komu­lag.“

Þegar um sé að ræða sölu á almanna­eign sé ekki nægj­an­legt að hafa í huga það sem tíðk­ist á almennum mörk­uð­um. Það þurfi að hafa í huga önnur sjón­ar­mið. „Þess vegna til dæmis lagði ég á það mikla áherslu að þessi færi listi yrði birt­ur, sem var ekki ráð­gjöf Banka­sýsl­unn­ar, á sínum tíma. Kannski má segja að það hafi valdið mér veru­legum von­brigðum að skynja þá afstöðu gagn­vart sölu á almanna­eign, að það væri ekki vlji til þess að upp­lýsa um þennan kaup­enda­lista. Mér fannst það segja mér að þetta fyr­ir­komu­lag þarfn­að­ist veru­legrar end­ur­skoð­un­ar. En hvernig það nákvæm­lega verður ætla ég ekki að segja til um fyrr en við erum komin með ein­hverja mót­aða til­lögu um það.“ Það sé þó alveg á hreinu að það þurfi að skýra betur aðkomu Alþingis og tryggja betur nauð­syn­legt gagn­sæi sem þurfi að vera til staðar þegar almanna­eignir eru seld­ar. 

List­inn birtur gegn vilja Banka­sýsl­unnar

Kaup­enda­list­inn yfir þá 207 aðila sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka í mars var birtur 6. apr­íl.

Þar kom í ljós að margir þeirra voru mun minni fjár­festar en flestir höfðu talið að ættu að fá að taka þátt í ferl­inu. Þeir sem keyptu fyrir minna en 30 millj­­­ónir króna voru 59 tals­ins. Þeir sem keyptu fyrir minna en 50 millj­­­ónir voru 79. 

Á meðal kaup­enda voru síðan faðir Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­­­­­­­mála­- og efna­hags­ráð­herra. Bjarni sagði í kjöl­farið að hann hafi ekki vitað um þátt­töku föður síns, Bene­dikts Sveins­son­ar, fyrr en hann fékk kaup­enda­list­ann afhent­an. 

Á meðal ann­arra sem var að finna á list­anum voru starfs­­­­menn sölu­ráð­gjafa útboðs­ins, fjöl­margir aðilar sem voru fyr­ir­­­­ferða­­­­miklir í banka­­­­rekstri fyrir banka­hrun, fólk í virkri lög­­­­­­­reglu­rann­­­­sókn, útgerð­­­­ar­eig­endur með enga aug­­ljósa sér­­þekk­ingu á fjár­­­mála­­starf­­semi, skamm­­tíma­fjár­­­festar sem höfðu keypt og selt aftur hratt eftir frumút­­­boðið og ein­stak­l­ingar sem fáum hafði fyr­ir­fram dottið í hug að teld­ust vera fag­fjár­­­­­­­fest­­­­ar. Sá sem keypti fyrir lægstu upp­­­hæð­ina keypti fyrir um 1,1 millj­­­ón króna.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar var sölu­­­­ferlið á Íslands­­­­­­­banka gagn­rýnt harka­­­­lega. Stofn­unin sagði fjöl­þætta ann­­­­marka hafa verið á söl­unni. Í nið­­­­ur­­­­stöðu hennar sagði að standa hefði átt betur að söl­unni og hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn í bank­an­­­­um. Ákveðið var að selja á und­ir­verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­­­­bundn­­­­um. Hug­lægt mat hafi ráðið því hvernig fjár­­­­­­­festar voru flokk­aðir og orð­­­­spor­s­á­hætta af sölu­­­­ferl­inu var van­­­­met­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent