Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsingafulltrúi Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í SÁÁ eftir áskorun frá fjölmörgum innan samtakanna.
Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu Þóru Kristínar í dag.
„Það geri ég í trausti þess að ég fái stuðning til að hrinda í framkvæmd tímabærum breytingum á starfseminni sem ekki er hægt að skorast undan lengur í ljósi síðustu atburða. Okkar sameiginlegu hagsmunir, bæði þeirra sem hafa glímt við fíknivanda og/eða eiga ástvini í þeim sporum, og samfélagsins alls, eru að við gerum allt sem við getum til að að styðja veika alkóhólista til betra lífs, með meðferð, endurhæfingu, sálrænum stuðningi og eftirfylgd,“ skrifar hún.
Alltaf verði að taka stöðu með þolendum
Einar Hermannsson hætti sem sem formaður SÁÁ í síðustu viku. Ástæðan sem hann gaf var að hann hefði svarað auglýsingu fyrir nokkrum árum þar sem „í boði var kynlíf gegn greiðslu“. Stundin birti í framhaldinu skjáskot sem sýna hann semja um vændiskaup og þakka fyrir þau eftir á.
Þóra Kristín segir í færslu sinni á Facebook að SÁÁ sé samansafn ólíkra einstaklinga með mjög fjölbreyttan farangur mannlegra breyskleika. Samtökin vilji taka utan um alla, hjálpa öllum. Það megi aldrei breytast.
„Þegar það koma upp erfið mál innan samtakanna eða á sjúkrastofnunum þeirra verðum við alltaf að taka stöðu með þolendum ofbeldis. Þetta getur verið flókið en það þýðir ekki að það megi gefa afslátt af öryggi fólks eða mannlegri reisn. Þetta er flókið viðfangsefni vegna þess að við erum öll saman í þessu, karlar, konur og ungmenni, bæði gerendur og þolendur ofbeldisbrota. Eitruð karlmennska og harka er fylgifiskur harðrar neyslu og þótt fólk komi úr allskonar aðstæðum höfum við flest verið föst inni í vítahring og útsett fyrir margskonar ofbeldi og sárindum. Konur hafa oft veikari félagslega stöðu og minni líkamsburði til að verja sig.
En það er til mikils að vinna. Ofneysla áfengis, lyfja og annarra vímuefna er algengasta dánarorsök ungs fólks í dag. Bakvið slys, afbrot, ofbeldi, ótímabæra örorku, geðsjúkdóma, og hræðileg barnaverndarmál, felur þessi sjúkdómur sig oft í bakgrunninum sem orsök eða meðvirkandi þáttur,“ skrifar hún.
Vill setja saman sannleiksnefnd
Þóra Kristín segir enn fremur að brýnt sé að setja saman sannleiksnefnd til að taka á ofbeldis- og áreitnismálum innan vébanda samtakanna í fortíð og framtíð. Nýkjörin stjórn þurfi að setja sér siðareglur til að tryggja að það hafi sjálfkrafa í för með sér brottvísun úr öllum trúnaðarstöðum ef fólk innan samtakanna verði uppvíst að því að brjóta á veiku fólki eða misnota aðstöðu sína.
„SÁÁ eru grasrótarsamtök ólíkra einstaklinga sem hafa borið uppi meðferð alkóhólista og vímuefnasjúklinga áratugum saman. Karlar og konur, fólk úr öllum stéttum samfélagsins, hafa tekið höndum saman í baráttunni og sú samkennd ásamt velvild þjóðarinnar er dýrmætasta eign samtakanna.
Samtökin hafa haft ótrúlegan meðbyr í samfélaginu vegna þess ótvíræða árangurs sem hefur náðst. Þar hafa margir einstaklingar lyft grettistaki og ég ber ómælda virðingu fyrir þeim öllum. Ég bið um ykkar stuðning til að leiða umbótastarfið framundan,“ skrifar hún að lokum.
Eftir áskorun frá fjölmörgum innan samtakanna hef ég ákveðið að bjóða mig fram til formennsku í SÁÁ. Það geri ég í...
Posted by Þóra Kristín Ásgeirsdóttir on Monday, January 31, 2022