Birta skilaboð fráfarandi formanns SÁÁ þar sem hann semur um kaup á vændi

Einar Hermannsson sagði af sér sem formaður SÁÁ í gær. Hann sagði ástæðuna þá að hann hefði svarað auglýsingu um vændiskaup. Skjáskot sem Stundin birtir sýna hann vera að semja um vændiskaup og þakka fyrir þau eftir á.

Einar Hermannsson sagði af sér sem formaður SÁÁ í gær.
Einar Hermannsson sagði af sér sem formaður SÁÁ í gær.
Auglýsing

Einar Her­manns­son, sem sagði af sér for­mennsku í SÁÁ í gær keypti vændi af konu sem glímdi við fíkn á árunum 2016 til 2018. Frá þessu er greint í umfjöllun Stund­ar­innar um málið en þar eru birt skjá­skot af sam­skiptum þeirra í Messen­ger-­for­rit­in­u. 

Á þeim tíma sem Einar keypti vændi af kon­unni sat hann í stjórn SÁÁ, en hún er sjálf á meðal skjól­stæð­inga sam­tak­anna sem hafa hjálpað henni að ná bata við fíkn sinni. Einar var for­maður SÁÁ frá miðju ári 2020 og þangað til að hann sagði af sér í gær.

Í sam­skipt­unum sem Stundin birtir kemur skýrt fram að Einar fal­ast eftir því að hitta kon­una, þar er til­greint að það muni kosta 30 þús­und krónur og til­greint klukkan hvað þau ætli að hitt­ast. Eftir að um semst sendi Einar kon­unni skila­boð og sagð­ist „hlakka til“. Í öðrum skila­boðum seg­ist Einar vera á leið­inni til kon­unn­ar, að það séu tíu mín­útur í sig. Einum og hálfum tíma síðar sendir hann önnur skila­boð og seg­ir: „Takk fyrir mig. Gaman að kynn­ast þér. Er að fíla þig mjög vel.“

Kaup á vændi eru ólög­leg á Íslandi en sök fyrn­ist á tveimur árum.

Auglýsing
Einar sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann greindi frá afsögn sinni. Þar sagði hann ástæð­una vera þá að hann svar­aði fyrir nokkrum árum aug­lýs­ingu á net­inu „þar sem í boði var kyn­líf gegn greiðslu.“ Einar gengst ekki við því að hafa keypt vændi í yfir­lýs­ing­unni en að hegðun hans hafi verið „ófyr­ir­­gef­an­­leg en ég taldi mér rang­­lega trú um að þau sam­­skipti væru grafin og gleymd og þau hafa ekki haft áhrif á störf mín fyrir SÁÁ. Ljóst er hins vegar að umræða um þetta mál er ein­ungis til þess fallin að varpa rýrð á SÁÁ ef ég sit þar áfram sem for­­mað­­ur.“

Hann sagð­ist iðr­­ast að hafa farið þessa leið og um leið valdið fjöl­­skyldu sinni sár­s­auka með hegðun sinni. „Bið ég alla þá sem málið varðar afsök­unar á fram­­ferði mín­u.“ 

Einar sagð­ist enn fremur ekki ætla að tjá sig frekar um mál­ið. 

Vit­neskja hjá Emb­ætti land­lækni og í stjórn SÁÁ

Skömmu eftir að yfir­­lýs­ing Ein­­ars var send birti Stundin umfjöllun um málið þar sem greint var frá því að mið­ill­inn hefði unnið að rann­­sókn á vænd­is­­kaupum Ein­­ars á árunum 2016-2018. Í umfjöll­un­inni sagði meðal ann­­ars: „Stundin hefur rætt við kon­una sem nú er á bata­­vegi eftir langvar­andi fíkn­i­efna­­neyslu. Hún seg­ist hafa leiðst út í vændi til að fjár­­­magna eit­­ur­lyfja­­neyslu sína. Á því tíma­bili hafi Einar keypt af henni kyn­lífs­­þjón­­ustu. Eftir að hún náði bata ætl­­aði hún að leita réttar síns og ræddi við sér­­fræð­inga en þegar á hólm­inn var komið varð hún hrædd og kærði ekki. Nú er málið fyrnt.“

Í umfjöllun Stund­­ar­innar sagði að Emb­ætti land­læknis hafi verið upp­­lýst um málið árið 2020 og að minnsta kosti einn stjórn­­­ar­­maður í fram­­kvæmda­­stjórn SÁÁ hafi sama ár vitað að því að Einar hefði keypt vændi af veikum fíkn­i­efna­­neyt­anda.

Frek­ari umfjöllun um málið var svo birt í morg­un, meðal ann­ars með skjá­skotum af sam­skiptum kon­unnar við Ein­ar. 

Fá 1,2 millj­­arð króna á fjár­­lögum

SÁÁ, sam­tök áhuga­­­fólks um áfeng­is- og vímu­efna­vand­ann, eru félaga­­­sam­tök sem sjá þeim sem eiga við áfeng­is- eða vímu­efna­­­vanda, og aðstand­endum þeirra, fyrir sjúkra­­­með­­­­­ferð og end­­­ur­hæf­ingu. Auk þess vinna sam­tökin að for­vörn­­­um. Um er að ræða umfangs­­­mesta með­­­­­ferð­­­ar­úr­ræði sem er til staðar vegna áfeng­is- og vímu­efna­­­vanda hér­­­­­lend­­­is. 

Hið opin­bera fjár­­­­­magnar meira en tvo þriðju hluta af starf­­­sem­inni að jafn­­­aði en það sem út af stendur er fjár­­­­­magnað af sam­tök­unum sjálf­um, meðal ann­­­ars með árlegri álfasölu. Sam­tökin fengu 1.203 millj­­­ónir króna á fjár­­­lögum í fyrra og fjár­­­heim­ild til þeirra eru 1.211 millj­­­ónir króna á ári út árið 2024 sam­­­kvæmt síð­­­­­ustu sam­­­þykktu fjár­­­lög­­­um.

Sú stofnun sem greiðir út þær fjár­­­hæðir er Sjúkra­­­trygg­ingar Íslands, á grund­velli þjón­ust­u­­­samn­inga sem hið opin­bera hefur gert við SÁÁ. 

Krafa um end­­ur­greiðslu á 174,5 millj­­ónum

Gustað hefur um SÁÁ und­an­farið en harð­vít­ugar deilur hafa geisað um hvort félaga­­sam­tök­unum hafi verið heim­ilt að fá greiðslur úr rík­­is­­sjóði fyrir þjón­­ustu á tímum kór­ón­veiru­far­ald­urs sem var með öðru sniði en áður.

­

­Sjúkra­­trygg­ingar Íslands telja enga slíka heim­ild vera í gerðum samn­ingum og hafa krafið sam­tökin um end­­ur­greiðslu á 174,5 millj­­ónum króna.

Auk þess hefur málið verið sent til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara vegna grun­­semda um lög­­brot. SÁÁ hefur hafnað öllum ásök­unum og for­svar­s­­menn sam­tak­anna sagst slegnir yfir stöð­unni sem upp er kom­in. Í yfir­­lýs­ingu fram­­kvæmda­­stjórnar sam­tak­anna, sem send var út í síð­­­ustu viku, sagði meðal ann­­ars: „„Fram­­­kvæmda­­­stjórn SÁÁ harmar þann far­­­veg sem málið er komið í. Af hálfu SÁÁ hefur verið reynt að skýra hvernig verk­lagi var hátt­að, en í bréfi Ara Matt­h­í­a­s­­­son­­­ar, deild­­­ar­­­stjóra eft­ir­lits­­­deildar SÍ, sem dag­­­sett er 29. des­em­ber 2021 og birt er á vis­ir.is, er ekki tekið til­­­lit til þeirra skýr­inga.“

Í Stund­inni í dag kemur fram að sú umfjöllun hafi gert það að verkum að konan sem Einar keypti vændi af hafi ákveðið að hafa sam­band við mið­il­inn. Það geri hún vegna þess að „hún fengi ógleði í hvert sinn sem hún sæi hann í fréttum og gréti innra með sér vegna þess að hann gegndi svo ábyrgða­miklu starfi fyrir sam­tök sem henni þyki mjög vænt um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent