Þórólfur: Samfélagslegt smit útbreiddara en áður var talið

Ellefu manns greindust með COVID-19 innanlands um helgina, þar af voru fimm í sóttkví.

Þórólfur Guðnason
Auglýsing

Það er áhyggju­efni hversu margir hafa greinst með COVID-19 utan sótt­kvíar hér inn­an­lands að mati Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­lækn­is. „Það mynstur sem við sjáum núna bendir til að sam­fé­lags­legt smit sé útbreidd­ara heldur en talið var,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna.

Hann sagði óvenju marga hafa greinst inn­an­lands yfir helg­ina. Á laug­ar­dag greindust sex ein­stak­lingar með veiruna, þar af þrír í sótt­kví en í gær greindust fimm með veiruna og þar af þrír í sótt­kví. Þórólfur gerir ráð fyrir að á þriðja­hund­ruð muni þurfa að fara í sótt­kví vegna smita helg­ar­inn­ar.

Auglýsing

Alls greindust 19 á landa­mær­un­um, þar af fimmtán með virk smit. Inni í þeirri tölu eru tíu skip­verjar á súráls­skipi sem kom til Reyð­ar­fjarðar í gær frá Bras­il­íu. Beðið er rað­grein­ingar vegna smits­ins í skip­inu. Þórólfur gerir ráð fyrir að öll áhöfn­in, alls 19 manns, sé smituð þrátt fyrir að tíu þeirra hafi greinst í gær.



Þórólfur sagði blikur á lofti varð­andi far­ald­ur­inn hér inn­an­lands. Það væri áhyggju­efni hversu margir hefðu greinst inn­an­lands utan sótt­kví­ar. Hann hvatti því alla sem sýna minnstu ein­kenni að drífa sig í sýna­töku og halda sig til hlés þar til nið­ur­staða bær­ist. „Við erum enn að sjá fólk með ein­kenni COVID vera úti í sam­fé­lag­inu og mæta ekki í sýna­töku fyrr en mörgum dögum síð­ar,“ sagði Þórólfur

Hefur und­ir­búið til­lögur að breyttum aðgerðum á landa­mærum

Lík­lega megi rekja upp­runa smita til landamær­anna. „Við höfum einnig verið að sjá aukn­ingu á smitum á landa­mærum og er það líka áhyggju­efni vegna þess að við höfum verið að sjá dreif­ingu frá þessum smitum á landa­mærum út í sam­fé­lagið og ég held að það geti verið upp­runi þess­ara smita sem við höfum verið að greina að und­an­förn­u,“ sagði Þórólf­ur.

Und­ir­bún­ingur að til­lögum um frek­ari aðgerðir á landa­mærum er haf­inn og Þórólfur sagð­ist ætla að senda ráð­herra þær til­lögur á næstu dög­um.

Til­kynn­ingar um tvö til­vik blóð­tappa

Alma Möll­er, land­lækn­ir, hvatti fólk einnig til að fara í sýna­töku ef ein­kenni eru til stað­ar. Hún sagði það einnig mik­il­vægt að fólk þekkti ein­kennin sem hún svo tíund­aði: „Hósti, hiti, bein- og vöðva­verkir, þreyta og slapp­leiki, háls­sær­indi og kve­fein­kenni, skyndi­leg breyt­ing á bragð- og lykt­ar­skyni og síðan í sjald­gæfum til­fellum ein­kenni frá melt­ing­ar­vegi eins og nið­ur­gangur og upp­köst.“

Alma sagði ávinn­ing­inn af notkun bólu­efnis Astr­aZen­ica hafa verið met­inn meiri en áhættan en áhættan sé fólgin í alvar­legum en sjald­gæfum auka­verk­un­um. Hún sagði áhyggjur vera uppi um að auka­verk­an­irnar séu algeng­ari hjá yngra fólki og konum en það lægi ekki alveg ljóst fyr­ir. Auka­verk­an­irnar teng­ist fyrst og fremst blóð­storku­kerf­inu og væru þrenns kon­ar.

Í fyrsta lagi væru um blóð­sega eða blóð­tappa í fót­leggjum og lungum að ræða. Sjúk­dómur sem Alma sagði vera vel þekkt­an. Hún sagði að ekki væri hægt að segja með vissu um að aukin áhætta á slíkum blóð­töppum fylgdi bólu­setn­ingu en áhættan sneri aðal­lega að ungu fólki. Hér­lendis hefði lyfja­stofnun fengið til­kynn­ingar um tvö til­vik lungna­blóð­tappa.

Ekki hefði verið til­kynnt um hinar tvær sjald­gæfari auka­verk­an­irnar en þær eru ann­ars vegar sjald­gæfir blóð­segar í blá­æðum heila og sjald­gæfir blóð­segar í smá­æð­um.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent