Þriðja könnunin í röð sem sýnir meirihluta fyrir aðild að Evrópusambandinu

Stuðningur við aðild að Evrópusambandinu hefur dalað frá því í júní, óákveðnum hefur fjölgað mikið en andstæðingum fjölgað um 1,2 prósentustig. Eftir rúman áratug af afgerandi andstöðu við aðild hefur hugur þjóðarinnar snúist á þessu ári.

ABH7924-1.jpg fólk esb ísland austurvöllur evrópusambandið
Auglýsing

Alls segj­ast 42,8 pró­sent lands­manna vera hlynnt inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið en 35,1 pró­sent eru and­víg því og 22,1 pró­sent eru óviss um afstöðu sína. Þetta er nið­ur­staða nýrrar könn­unar Pró­sents um málið en nið­ur­stöður hennar eru birtar í Frétta­blað­inu í dag.

Þar kemur fram að stuðn­ingur við aðild sé afger­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem 47 pró­sent styðja hana en 30 pró­sent eru á móti. Á lands­byggð­inni mælist and­staða við aðild hins vegar nú meiri en stuðn­ing­ur, en 35 pró­sent svar­enda á henni segj­ast vilja ganga í Evr­ópu­sam­bandið á meðan að 44 pró­sent eru því mót­fall­inn. 

Kjós­endur Pírata og Við­reisnar mest fylgj­andi

Frá því að Pró­sent kann­aði síð­ast hug lands­manna til aðildar í júní hefur þeim sem eru fylgj­andi aðild fækkað um 5,5 pró­sentu­stig, óákveðnum fjölgað 4,3 pró­sentu­stig og þeim sem eru and­vígir fjölgað um 1,2 pró­sentu­stig.

Auglýsing
Mest hefur dregið úr stuðn­ingi við aðild á meðal þeirra sem segj­ast ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una og mælist stuðn­ingur við aðild nú meiri á meðal kjós­enda bæði Við­reisnar og Pírata. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur tekið kipp upp á við und­an­farið og mæld­ist 19,1 pró­sent í sömu könnun Pró­sents, sem er 5,6 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn mæld­ist með í júní. Hóp­ur­inn sem seg­ist ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una hefur því stækkað umtals­vert. 

Milli kann­ana hefur orðið sú breyt­ing á að Kristrún Frosta­dóttir var kjörin for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Hún sagði í við­tali við Kjarn­ann í sept­em­ber, eftir að hafa til­kynnt um fram­boð, að stefna flokks­ins hvað varðar aðild að Evr­­ópu­­sam­­band­inu væri alveg skýr og verði það áfram. „Við höfum verið fylgj­andi Evr­­ópu­­sam­­bands­að­ild. Ég er sjálf stuðn­­ings­­maður Evr­­ópu­­sam­­bands­ins. Ég er hins vegar líka með­­vituð um það að eins og er þá er ekki þing­­meiri­hluti fyrir mál­inu þótt kann­­anir séu að fara upp á við varð­andi við­horf þjóð­­ar­innar gagn­vart aðild. Fyrsta skrefið fyrir mér er að spyrja þjóð­ina hvort við eigum að fara í þetta verk­efni. Leggja aðild­­ar­við­ræður í þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu og taka svo stöð­una í kjöl­far­ið.“ Í Frétta­blað­inu í dag segir Kristrún að það geti verið að fólk sem tengir sig við jafn­að­ar­stefn­una í grunn­inn en hafi varnagla gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu sé að koma aftur til flokks­ins. 

Fleiri eru fylgj­andi aðild en and­vígir henni á meðal kjós­enda bæði Sós­í­alista­flokks Íslands og Vinstri grænna, flokks for­sæt­is­ráð­herra sem hefur þá yfir­lýstu stefnu að telja hag Íslands betur borgið utan sam­bands­ins. Minnstur er stuðn­ingur við aðild á meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks (19 pró­sent) og Mið­flokks (ell­efu pró­sent).

Auglýsing
Miðað við nið­ur­stöðu síð­ustu kosn­inga, sem fram fóru í fyrra­haust, eru þeir flokkar þar sem fleiri kjós­endur eru fylgj­andi aðild en á móti með 25 þing­menn, og tölu­vert frá því að vera með meiri­hluta á þingi. Sam­kvæmt könnun Pró­sents myndu sömu flokkar hins vegar fá 34 þing­menn kjörna ef kosið yrði í dag, sem þýðir að þeir væru með meiri­hluta á þingi.

Við­snún­ingur eftir rúman ára­tug af and­stöðu

Í mars birt­ust nið­ur­stöður úr Þjóð­ar­púlsi Gallup sem sýndu að 47 pró­sent lands­manna væru hlynnt aðild að Evr­ópu­sam­band­inu en 33 pró­sent mót­fallin henni. Það var í fyrsta sinn frá árinu 2009 sem meiri­hluti mæld­ist fyrir aðild í könn­unum hér­lend­is.

Hlut­­fall sem eru hlynntir inn­­­göngu Íslands í sam­­bandið hafði raunar ekki mælst meira en rúm­­lega 37 pró­­sent í mán­að­­ar­­legum könn­unum sem MMR fram­­kvæmdi frá 2011 og út síð­­asta ár. Í síð­­­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var gerð í des­em­ber í fyrra, mæld­ist stuðn­­ing­­ur­inn 30,4 pró­­sent en 44,1 pró­­sent voru á mót­i. 

Í könnun Pró­sents í júní var nið­ur­staðan svipuð og hjá Gallup í mars, 48,5 pró­sent sögð­ust hlynnt aðild en 34,9 pró­sent voru and­víg. Alls 16,7 pró­sent sögð­ust ekki hafa neina skoðun á mál­in­u. 

Því liggur fyrir að í þremur könn­unum í röð hafa fleiri svar­endur verið á þeirri skoðun að Ísland eigi að ganga í Evr­ópu­sam­bandið en á móti aðild. 

Könnun Pró­sents sem birt var í Frétta­blað­inu í dag var fram­kvæmd 14. til 17. nóv­em­ber. Úrtakið var 2.600 og svar­hlut­fallið 51,3 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent