Tilkynningar um kynferðisofbeldi í framhaldsskólum ekki skráðar sérstaklega

Mennta- og barnamálaráðuneytið heldur ekki sérstaklega utan um tilkynningar sem snúa að kynferðisofbeldi og kynferðislegri áreitni í framhaldsskólum. Kallað hefur verið eftir bættum viðbragðsáætlunum og segir formaður starfshóps slíkar liggja fyrir.

Ekki er haldið sérstaklega utan um tilkynningar um kynferðisofbeldi og kynferðislega áreitni í framhaldsskólum.
Ekki er haldið sérstaklega utan um tilkynningar um kynferðisofbeldi og kynferðislega áreitni í framhaldsskólum.
Auglýsing

Umfang kyn­ferð­is­brota og til­kynn­inga um kyn­ferð­is­lega áreitni innan fram­halds­skóla er óljóst. Ekki er haldið utan um slíkar til­kynn­ing­ar.

Þegar Kjarn­inn óskaði eftir upp­lýs­ingum um til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­of­beldi og/eða kyn­ferð­is­lega áreitni í fram­halds­skólum eins langt og þær ná aftur feng­ust þau svör frá mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu, sem fram­halds­skól­arnir heyra und­ir, að „slíkur mið­lægur gagna­grunnur yfir til­kynn­ingar er ekki til stað­ar“ og að því sé ekki hægt að veita slíkar upp­lýs­ing­ar.

Við­brögð skóla­stjórn­enda við kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­legri áreitni innan fram­halds­skóla hefur verið til umræðu und­an­farið eftir að aðferð skóla­stjóra við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands við að upp­lýsa nem­endur um ásak­anir um kyn­ferð­is­brot sem átti sér stað innan veggja skól­ans.

Auglýsing

Til­kynn­ing skóla­stjóra gagn­rýnd: „Ger­andi sak­laus þar til sekt er sönn­uð“

Í lok ágúst fengu nem­endur og aðstand­endur tölvu­póst þess efnis að lög­reglu­rann­sókn stæði yfir vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­brot þar sem nem­andi er grun­aður um að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn sam­nem­anda sínum innan skól­ans. Í tölvu­póst­inum voru nem­endur sér­stak­lega beðnir um að ræða málið ekki á sam­fé­lags­miðlum og dóm­stóll göt­unnar var sagður óvæg­inn. „Það er ekki búið að dæma í mál­inu og því er ger­andi sak­laus þar til sekt er sönn­uð,“ segir meðal ann­ars í tölvu­pósti skóla­stjór­ans.

For­maður nem­enda­fé­lags FSu harm­aði við­brögð skóla­stjóra við mál­inu og sagði í Kast­ljósi að nauð­syn­lega vant­aði aðgerða­á­ætlun þegar kemur að ofbeld­is­málum innan skól­ans.

Við­bragðs­á­ætlun legið fyrir ef ráðu­neytið hefði farið eftir til­lögum starfs­hóps

Sól­borg Guð­brands­dótt­ir, sem hefur beitt sér und­an­farin ár fyrir heil­brigðum sam­skipt­um, kyn­heil­brigði og ofbeld­is­vörn­um, fór fyrir starfs­hópi um mark­viss­ari kyn­fræðslu og ofbeld­is­for­varnir í grunn- og fram­halds­skólum sem skil­aði Lilju Alfreðs­dótt­ur, þáver­andi mennta­mála­ráð­herra, til­lögum í júlí í fyrra. Sól­borg vakti athygli á því á Twitter að við­bragðs­á­ætlun hefði legið fyrir í Fjöl­brauta­skól­anum á Suð­ur­landi ef ráðu­neytið hefði fylgt til­lögum starfs­hóps­ins eftir í stað þess að „st­inga henni beint ofan í skúffu“.

Ásmundur Einar Daða­son, mennta- og barna­mála­ráð­herra, brást við með því að boða Sól­borgu á fund. Þá sagði hann í sam­tali við mbl.is að lagt hafi verið til að fram­halds­skólar kæmu sér upp við­bagðs­á­ætl­unum vegna kyn­ferð­is­of­beldis og að ráðu­neytið hefði hvatt til þess. Þá sagði ráð­herra að setja þurfi meiri kraft í þessa vinnu í sam­vinnu við skól­ana og að þetta verði „eitt af áherslu­at­riðum vetr­ar­ins“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent