Útgáfufélag Viðskiptablaðsins hagnaðist í fyrra eftir mikið tap á árinu 2020

Eftir að hafa tapað 55,2 milljónum króna árið 2020 hagnaðist Myllusetur, fjórða stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins, um 7,5 milljónir króna í fyrra.

Trausti Hafliðason er ritstjóri Viðskiptablaðsins.
Trausti Hafliðason er ritstjóri Viðskiptablaðsins.
Auglýsing

Myllu­set­ur, sem gefur meðal ann­ars út Við­skipta­blað­ið, hagn­að­ist um 7,5 millj­ónir króna í fyrra. Það er mik­ill við­snún­ingur frá árinu 2020 þegar útgáfu­fé­lagið tap­aði 55,2 millj­ónum króna og setti 15 af 18 starfs­mönnum sínum á hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu, þar sem ríkið greiddi stóran hluta af launum þeirra um skeið.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem birtur var nýverið í fyr­ir­tækja­skrá.

Rekstr­ar­tekjur Myllu­set­urs juk­ust umtals­vert milli ára og voru 303 millj­ónir króna á árinu 2021. Það eru 13,4 pró­sent meiri tekjur en félagið hafði árið 2020. Inni í rekstr­ar­tekjum er 26,8 millj­óna króna rekstr­ar­styrkur sem Myllu­setur fékk úr rík­is­sjóði. Félagið fékk líka styrk í ár, en hann var 25 millj­ónir króna, og því lægri en í fyrra, þrátt fyrir að launa­kostn­aður Myllu­set­urs hefði auk­ist um næstum 23 millj­ónir króna á milli ára og hafi verið 178,8 millj­ónir króna á síð­asta ári. Með­al­fjöldi starfs­manna var hins vegar áfram 16, líkt og hann hafði verið ári áður.

Eigið fé 22,5 millj­ónir

Rekstr­ar­gjöld juk­ust í heild um rúm­lega ell­efu millj­ónir króna milli ára. Þá lækk­aði vaxta­kostn­aður Myllu­set­urs umtals­vert frá árinu 2020 þegar hann var 23,5 millj­ónir króna. Í fyrra fór hann niður í 8,1 millj­ónir króna, eða rúm­lega þriðj­ung þess sem hann var ári áður.

Auglýsing
Eigið fé Myllu­set­urs var 22,5 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Félagið skuld­aði á sama tíma 135,8 millj­ónir króna en átt eignir upp á 158,3 millj­ónir króna. Verð­mætasta eign Myllu­set­urs eru verð­bréf, metin á tæp­lega 86 millj­ónir króna,en ekki er greint frá því í árs­reikn­ingi um hvaða verð­bréf sé að ræða.

Eig­endur Myllu­­set­­urs eru tveir, félagið PÁJ Invest í eigu Pét­­urs Árna Jóns­­sonar sem á 67 pró­­sent hlut, og SBJ Invest í eigu Sveins Bier­ing Jóns­sonar sem á 33 pró­­sent hlut. Félagið hafði skilað smá­væg­i­­legum hagn­aði, undir tveimur millj­­ónum króna, á árunum 2018 og 2019. 

Lest­ur­inn minni en fyrir ári

Við­­­skipta­­­blaðið kemur út á fimmt­u­­­dögum og er selt í áskrift. Alls lesa 4,7 pró­­­sent lands­­­manna það blað og hjá ald­­­ur­s­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­­­ur­inn 3,8 pró­­­sent. 

Lest­­ur­inn hefur dalað við síð­­­ustu mán­uði en í ágúst 2021 var hann 6,1 pró­sent og hefur því dreg­ist saman um 23 pró­sent á einu ári. Hjá les­endum undir fimm­tugu hefur hann dreg­ist saman um 39 pró­sent á einu ári. 

Auk blaða­út­­­gáfu heldur Myllu­­setur úti frétta­vef­unum vb.is, sem var að mestu lokað fyrir öðrum en áskrif­endum fyrr á þessu ári, og fiski­frett­ir.is auk þess sem útgáfu­­fé­lagið stendur að útgáfu Íslenska sjó­­manna­al­m­an­aks­ins. Þá á Myllu­set­ur, og gefur út, Frjálsa versl­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent