Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,29 prósent milli mánaða. Tólf mánaða verðbólga mælist nú 9,3 prósent en hún mældist 9,4 prósent í síðasta mánuði. Því eru litlar breytingar á stöðu hennar milli mánaða. Tólf mánaða verðbólga var 5,7 prósent í janúar, fór hæst í 9,9 prósent í sumar en hefur verið á þeim slóðum sem hún er nú síðustu mánuði.
Samkvæmt tilkynningu Hagstofu Íslands voru helstu ástæður þess að vísitalan hækkaði á milli október og nóvember þær að verð á matvörum hækkaði um 0,8 prósent og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um eitt prósent. Á móti togaði að verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði skarpt, um 8,9 prósent milli mánaða. Sú lækkun er athyglisverð í ljósi þess að seðlabankastjóri hefur nefnt ferðagleði landsmanna, sérstaklega þeirra sem fara í haustfrí til Tenerife, sem eina helstu ástæðu þess að nauðsynlegt hefur þótt að hækka stýrivexti.
Stýrivextir hækkaðir tíu sinnum í röð
Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti sína í síðustu viku upp í sex prósent. Þetta var í tíunda sinn í röð sem Seðlabankinn hækkaði vexti, en þeir voru 0,75 prósent í maí í fyrra. Fyrir vikið eru íbúðalánavextir hærri en þeir hafa verið í tólf ár, eða frá árinu 2010, skömmu eftir bankahrunið þegar enn var verið að endurreisa föllnu bankana og íslenskt atvinnulíf.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri lét svo hafa eftir sér í kjölfar ákvörðunarinnar að mikil aukning í einkaneyslu væri að koma niður á gengi krónunnar. Það auki innflutta verðbólgu. „Þegar þjóðin er að fara á Tene, það kostar gjaldeyri,“ sagði Ásgeir og bætti svo við að Seðlabankinn gæti„ ekki fjármagnað Tene-ferðir úr forðanum.“
Mikil áhrif á kjaraviðræður
Ákvörðun um stýrivaxtahækkun hafði mikil og neikvæð áhrif á yfirstandandi kjaraviðræður. hún leiddi meðal annars til þess að VR, stærsta stéttarfélag landsins, sleit viðræðum í síðustu viku og að nú sé reynt að ná skammtímasamningum, sem gilda út næsta ár, í stað þess að semja til lengri tíma.
Lestu meira
Hún verður þó enn langt fram markmiði Seðlabankans, sem er 2,5 prósent verðbólga.
Stýrivaxtahækkanir og verðbólga hafa allskyns áhrif á daglegt líf fólks. Verð á nær öllum nauðsynjavörum hækkar vegna verðbólgunnar og afborganir af íbúðalánum stóraukast hjá mörgum samhliða vaxtahækkunum.
Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að greiðslubyrði óverðtryggðs íbúðaláns með breytilegum vöxtum upp á 50 milljónir króna sé nú um 311.500 krónur, samkvæmt greiningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Í maí í fyrra, áður en stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands hófst, var greiðslubyrði láns að sömu upphæð 188.500 krónur. Hún hefur því hækkað um 123 þúsund krónur á mánuði eða tæplega 1,5 milljónir króna á ári. Greiðslubyrðin hefur aukist um 65 prósent.