Vilja skylda ÁTVR til að eiga samráð við sveitarfélög um staðsetningu Vínbúða

Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa lagt fram frumvarp sem myndi gera ÁTVR skylt að hafa samráð við sveitarfélög um staðarval undir nýjar Vínbúðir. ÁTVR leist mjög illa á frumvarpið þegar það var áður lagt fram árið 2019.

Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Auglýsing

Bryn­dís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og Ágúst Bjarni Garð­ars­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks hafa lagt fram frum­varp þess efnis að ÁTVR skuli hafa sam­ráð við sveit­ar­stjórnir um stað­ar­val þegar verið er að opna nýjar áfeng­is­versl­an­ir.

Þetta er í þriðja sinn sem þetta frum­varp er lagt fram, en það hefur ekki hlotið afgreiðslu til þessa. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að það sé þekkt að sveit­ar­fé­lög hafi ekki alltaf verið sátt með stað­setn­ingu versl­ana ÁTVR og jafn­vel talið að stað­ar­val opin­bera fyr­ir­tæk­is­ins, sem heyrir undir stjórn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, vinni gegn mark­miðum þeirra í skipu­lags- og umhverf­is­mál­um.

„Sem dæmi má nefna að sveit­ar­fé­lagið Garða­bær hefur ítrekað kvartað yfir því að ÁTVR hafi ein­hliða lokað verslun sinni í miðbæ Garða­bæjar og hafi svo nokkrum árum síðar opnað nýja verslun í Kaup­túni en ekki í miðbæ Garða­bæjar þrátt fyrir skýrar óskir sveit­ar­fé­lags­ins þar um. Sama gerð­ist með verslun ÁTVR í Hafn­ar­firði. Sú staða er óbreytt og nú er fyr­ir­hugað að flytja verslun ÁTVR úr mið­borg Reykja­vík­ur, þ.e. versl­un­ina við Aust­ur­stræti, svo dæmi sé tek­ið,“ segir í grein­ar­gerð­inni með frum­varp­inu.

Auglýsing

Fyrir skemmstu bár­ust þau tíð­indi að ÁTVR horfði helst til hús­næðis við Fiski­slóð 10 á Granda fyrir nýja verslun mið­svæðis í Reykja­vík, en fyr­ir­ætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins um mögu­legan flutn­ing úr Aust­ur­stræti hafa vakið upp blendin við­brögð.

Í grein­ar­gerð með frum­varpi þeirra Bryn­dísar og Ágústs Bjarna er rifjað upp að þegar málið var flutt á 150. lög­gjaf­ar­þingi lýsti Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga sig sam­mála því að það yrði að lög­um, þar sem sveit­ar­fé­lög væru í auknum mæli farin að nýta skipu­lags­valdið til að efla verslun og þjón­ustu innan íbúð­ar­hverfa, styðja við umhverf­is­vænni sam­göngur og haga skipu­lagi þannig að sem minnst þörf sé fyrir akstur um langar vega­lengdir til að sækja verslun og þjón­ustu. Því væri eðli­legt að ÁTVR hefði sam­ráð við sveit­ar­fé­lög um stað­setn­ingu versl­ana.

Til­lagan mögu­lega „skað­leg hags­munum ÁTVR“

Er málið var til þing­legrar með­ferðar haustið 2019 sendi ÁTVR einnig inn umsögn um málið og sagði þar að til­lagan væri hreint og beint óþörf. ÁTVR þyrfti nú þegar að sækja um leyfi til rekstrar áfeng­is­versl­unar til við­kom­andi sveit­ar­stjórnar og sveit­ar­fé­lagi gæti á því stigi sett fram sín sjón­ar­mið varð­andi stað­setn­ingu, þó það gæti vænt­an­lega ekki skil­yrt leyfið eða bundið við einn versl­un­ar­kjarna frekar en ann­an.

Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR

„Í til­lögu þeirri sem hér liggur fyrir er gert ráð fyrir ein­hvers konar lög­bundnu sam­ráði, án þess að þar segi nokkuð um það hvernig því sam­ráði skuli háttað eða hver hafi úrslita­valdið að því loknu. Þegar veru­leik­inn er sá að öll sam­skipti og sam­ráð eru hvort sem er opin á báða bóga verður varla séð að lög­bind­ing ein­hvers óljóss sam­ráðs­ferl­is, með enn óljós­ari nið­ur­stöðu, þjóni ein­hverjum til­gangi og gæti bein­línis verið skað­leg hags­munum ÁTVR,“ sagði í umsögn ÁTVR, sem Ívar J. Arn­dal for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins und­ir­rit­aði.

Auk þess að telja til­lög­una óþarfa sagði í umsögn ÁTVR að til­lagan væri „aft­ur­hvarf til póli­tískra afskipta og gam­alla tíma“ og loks taldið fyr­ir­tækið til­lög­una „geta falið í sér ákveðna laga­lega áhættu, ef horft er til nútíma við­skipta­hátta og þró­unar sam­keppn­is­réttar og reglna um opin­ber inn­kaup.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent