Wessman segir augljóst að ásakanir séu gerðar í „fjárhagslegum tilgangi“

Forstjóri Alvogen segir þungar ásakanir Halldórs Kristmannssonar um ofbeldi, morðhótanir og skipulagðar rógsherferðir hafa verið lagðar fram til að ná af honum fé.

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen
Róbert Wessman, forstjóri Alvogen
Auglýsing

Róbert Wess­man, for­stjóri Alvogen, segir að það sé aug­ljóst að ásak­anir Hall­dórs Krist­manns­son­ar, fyrrum sam­starfs­mann hans, um ofbeldi, morð­hót­anir og skipu­lagðar rógs­her­ferð­ir, séu lagðar fram í fjár­hags­legum til­gangi. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Róberti sem barst fjöl­miðlum í dag.

Líkt og kom fram í Kjarn­anum fyrr í dag sagð­ist Hall­dór, sem hefur verið einn nán­asti sam­starfs­maður Róberts síð­ast­liðna tvo ára­tugi, Róbert hafa orðið upp­vís að morð­hót­­un­um, lík­­ams­árásum, sví­virð­i­­legum ásök­unum og æru­­meið­ingum í garð meintra óvild­­ar­­manna.

Þá hafi Róbert lagt á ráðin um rógs­her­­ferðir í fjöl­miðlum gegn ýmsu fólki sem hann hafi borið kala til. Þar á meðal hafi verið við­­skipta­keppi­­nautar og opin­berir emb­ætt­is­­menn. Einnig seg­ist Hall­dór hafa per­sónu­lega orðið fyrir lík­ams­árás og orðið vitni af annarri frá Róberti, þegar hann var undir áhrifum áfengis á við­burðum Alvogen erlend­is.

Auglýsing

Róbert segir hins vegar aug­ljóst, af bréfa­send­ingum lög­manna Hall­dórs, að ásak­an­irnar séu gerðar í fjár­hags­legum til­gangi, enda komi þar fram kröfur um greiðslur til handa hon­um. Einnig bætir Róbert við að fram hafi komið óháð alþjóð­leg lög­manns­stofa til að fara ofan í saumana á kvört­unum Hall­dórs, auk þess sem talað var við tugi starfs­manna og farið yfir fjölda gagna, en fyr­ir­tækið sendi frá sér til­kynn­ingu í síð­ustu viku það taldi ásak­an­irnar ekki eiga sér neina stoð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent