„Gæðin eru að aukast frá ári til árs, og mikill metnaður einkenndi öll fyrirtækin að þessu sinni,“ segir Einar Gunnar Guðmundsson, sem sér um nýsköpunarmál hjá Arion banka og hefur haldið utan um Startup Reykjavík viðskiptahraðalinn, sem bankinn stendur fyrir í samstarfi við Klak Innovit. Hann hefur nú farið fram fjögur ár í röð, og lét Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, hafa eftir sér í viðtali við Kjarnann að hraðallinn hefði haft verulega jákvæð áhrif hér á landi frá því hann fór fyrst fram árið 2012, og hjálpað til við að örva hugarflug frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
https://vimeo.com/138525857
Eftir fjörugar og vinnusamar tíu vikur í sumar, kynntu teymin tíu fyrirtæki sín og viðskiptahugmyndir fyrir fjárfestum á dögunum, og segir Einar Gunnar það hafa gengið hreint út sagt „stórkostlega“. Mikill metnaður hafi einkennt fyrirtækin sem kynnt voru, og það sem hafi einkennt næstum öll fyrirtækin hafi verið mikil framþróun frá fyrstu stigum á þeim viðskiptahugmyndum sem lagt var upp með í upphafi.
Verkefnin sem voru valin til þátttöku í Startup Reykjavík nú í sumar, og kynnt fyrir fjárfestum eftir ítarlega vinnu í sumar:
- Wasabi Iceland – Ætla að rækta hágæða wasabi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og endurnýjanlega orku
- Ludis – Þróa leikjavettvang sem gerir leikjahönnuðum kleift að hanna og notendum að spila leiki sem nota samskipti á milli sjónvarps og síma
- Elsendia – Tengir saman rafræn skilríki og rafræna lyfseðla. Fólk getur keypt lyf á netinu með öruggum hætti og fengið sent heim
- Viking Cars – Markaðstorg þar sem bílaeigendur geta deilt bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti. Í raun eins og Airbnb nema fyrir bíla.
- Spor í sandinn – Sjálfbær gróðurhús tengd sundlaug í hjarta borgarinnar bjóða upp á sölu staðbundinna matvæla og nýja upplifun í ferðaþjónustu fræðslu og afþreyingu
- Genki instruments – Eru að þróa nýstárleg raftónlistarhljóðfæri sem tengja má saman með áður óséðum hætti
- Datadrive – Hugbúnaður sem tekur við upplýsingum úr bílnum þínum og tengir beint við snjallsímann
- Delphi – Nýta þekkingu fjöldans til þess að spá fyrir um tiltekna viðburði í framtíðinni
- Floori – Hugbúnaður sem hjálpar kennurum að skilja og meta árangur nemenda með því að bjóða upp á krossaspurningar í gegnum vef og snjallsíma
- Hún / Hann Brugghús – Örbrugghús með áherslu á frumlega gæðabjóra í takmörkuðu upplagi
Teymunum tíu sem valin voru til þátttöku var lagt eftirfarandi til:
- Tvær milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu
- 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá mentorum víðs vegar að úr atvinnulífinu
- Sameiginleg aðstaða allra viðskiptateymanna
- Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins.
Þetta er annað árið í röð sem Kjarninn fylgir Startup Reykjavík náið eftir, en allt frá stofnun Kjarnans hefur mikil áhersla verið lögð á nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi ýmis konar, í efnistökum, og það sama má með segja um lítil og meðalstór fyrirtæki.