Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ritstjóri Fréttatímans, tekur nú þátt í Startup Reykjavík viðskiptahraðalnum ásamt samstarfskonum sínum, Dögg Ármannsdóttur og Lyubu Kharitonovu, með verkefni sem heitir Inspiral.ly. Sigríður Dögg segir aðstandendur verkefnisins hugsa stórt, stefnan sé sett á uppsetningu vefs sem nái til kvenna um allan heim og veiti þeim jákvæðan innblástur og góð heilnæm skilaboð um staðalímyndir.
Kjarninn, í samstarfi við Kelduna og Arion banka, heldur áfram að fjalla nýsköpun og frumkvöðla í samhengi við Startup Reykjavík viðskiptahraðalinn.