„Það hefur gríðarlega mikið gerst á tíu vikum [...] Ég held að ég geti sagt að það hafi næstum meira gerst á þessum tíu vikum, heldur á því ári sem við höfðum verið starfandi þar á undan,“ segir Sölvi Melax, frumkvöðull og einn stofnenda fyrirtækisins Viking Cars. Það var eitt þeirra fyrirtækja sem fór í gegnum Startup Reykjavík viðskiptahraðalinn á tíu vikum í sumar, en aðstandendur þeirra tíu fyrirtækja sem valin voru til þátttöku unnu baki brotnu að framgangi sinna fyrirtækja.
Viking Cars er eins konar markaðstorg þar sem bílaeigendur geta deilt bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti. Í raun eins og Airbnb nema fyrir bíla.
https://vimeo.com/138063238
Í síðustu viku voru fyrirtækin kynnt fyrir fjárfestum á sérstökum fjáfestadegi, sem er lokahnykkur Startup Reykjavík.
Sölvi segir það hafa verið ómetanlegt að hafa greiðan aðgang að frumkvöðlum á Íslandi, sem hafi deilt reynslu sinni með þeim fyrirtækjum sem voru þátttakendur í hraðlinum. „Með þessu móti fengum við mikilvægar upplýsingar um hvernig ætti að bregðast við mistökum, og læra af þeim,“ sagði Sölvi.
Verkefnin sem voru valin til þátttöku í Startup Reykjavík nú í sumar, og kynnt fyrir fjárfestum eftir ítarlega vinnu í sumar:
- Wasabi Iceland – Ætla að rækta hágæða wasabi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og endurnýjanlega orku
- Ludis – Þróa leikjavettvang sem gerir leikjahönnuðum kleift að hanna og notendum að spila leiki sem nota samskipti á milli sjónvarps og síma
- Elsendia – Tengir saman rafræn skilríki og rafræna lyfseðla. Fólk getur keypt lyf á netinu með öruggum hætti og fengið sent heim
- Viking Cars – Markaðstorg þar sem bílaeigendur geta deilt bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti. Í raun eins og Airbnb nema fyrir bíla.
- Spor í sandinn – Sjálfbær gróðurhús tengd sundlaug í hjarta borgarinnar bjóða upp á sölu staðbundinna matvæla og nýja upplifun í ferðaþjónustu fræðslu og afþreyingu
- Genki instruments – Eru að þróa nýstárleg raftónlistarhljóðfæri sem tengja má saman með áður óséðum hætti
- Datadrive – Hugbúnaður sem tekur við upplýsingum úr bílnum þínum og tengir beint við snjallsímann
- Delphi – Nýta þekkingu fjöldans til þess að spá fyrir um tiltekna viðburði í framtíðinni
- Floori – Hugbúnaður sem hjálpar kennurum að skilja og meta árangur nemenda með því að bjóða upp á krossaspurningar í gegnum vef og snjallsíma
- Hún / Hann Brugghús – Örbrugghús með áherslu á frumlega gæðabjóra í takmörkuðu upplagi
Teymunum tíu sem valin voru til þátttöku var lagt eftirfarandi til:
- Tvær milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu
- 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá mentorum víðs vegar að úr atvinnulífinu
- Sameiginleg aðstaða allra viðskiptateymanna
- Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins.
Þetta er annað árið í röð sem Kjarninn fylgir Startup Reykjavík náið eftir, en allt frá stofnun Kjarnans hefur mikil áhersla verið lögð á nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi ýmis konar, í efnistökum, og það sama má með segja um lítil og meðalstór fyrirtæki.
Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og Klak Innovit, og eru myndböndin unnin í samstarfi við hraðalinn.