„Hugmynd er bara hugmynd. Hún krefst alltaf framkvæmdar [...] Það er fólkið sem framkvæmir og það er það sem skiptir máli,“ segir Einar Gunnar Guðmundsson, sem sér um frumkvöðla- og nýsköpunarmál hjá Arion banka, en hann hefur fylgt Startup Reykjavík viðskiptahraðlinum eftir frá því hann hóf göngu sína sumarið 2012.
Á dögunum hófst hraðallinn í fjórða skiptið, og freista tíu teymi, sem valin hafa verið áfram til þátttöku, þess að byggja upp ný fyrirtæki.
„Það sem við höfum séð að skiptir mestu máli er þrautseigja og samvinna teymisins,“ segir Einar Gunnar.
https://vimeo.com/130738747
Verkefnin sem valin hafa verið til þátttöku í Startup Reykjavík nú í sumar:
- Wasabi Iceland – Ætla að rækta hágæða wasabi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og endurnýjanlega orku
- Ludis – Þróa leikjavettvang sem gerir leikjahönnuðum kleift að hanna og notendum að spila leiki sem nota samskipti á milli sjónvarps og síma
- Elsendia – Tengir saman rafræn skilríki og rafræna lyfseðla. Fólk getur keypt lyf á netinu með öruggum hætti og fengið sent heim
- Viking Cars – Markaðstorg þar sem bílaeigendur geta deilt bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti. Í raun eins og Airbnb nema fyrir bíla.
- Spor í sandinn – Sjálfbær gróðurhús tengd sundlaug í hjarta borgarinnar bjóða upp á sölu staðbundinna matvæla og nýja upplifun í ferðaþjónustu fræðslu og afþreyingu
- Genki instruments – Eru að þróa nýstárleg raftónlistarhljóðfæri sem tengja má saman með áður óséðum hætti
- Datadrive – Hugbúnaður sem tekur við upplýsingum úr bílnum þínum og tengir beint við snjallsímann
- Delphi – Nýta þekkingu fjöldans til þess að spá fyrir um tiltekna viðburði í framtíðinni
- Floori – Hugbúnaður sem hjálpar kennurum að skilja og meta árangur nemenda með því að bjóða upp á krossaspurningar í gegnum vef og snjallsíma
- Hún / Hann Brugghús – Örbrugghús með áherslu á frumlega gæðabjóra í takmörkuðu upplagi
Teymunum tíu sem valin hafa verið til þátttöku verður lagt eftirfarandi til:
- Tvær milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu
- 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá mentorum víðs vegar að úr atvinnulífinu
- Sameiginleg aðstaða allra viðskiptateymanna
- Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins.
Þetta er annað árið í röð sem Kjarninn fylgir Startup Reykjavík náið eftir, en allt frá stofnun Kjarnans hefur mikil áhersla verið lögð á nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi ýmis konar, í efnistökum, og það sama má með segja um lítil og meðalstór fyrirtæki.
Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og Klak Innovit, og eru myndböndin unnin í samstarfi við hraðalinn.