Auglýsing

Í þessum pistli verður rætt um eina til­gátu um hvarf Birnu Brjáns­dótt­ur. Ég sendi hlýjar kveðjur til aðstand­enda en vil setja varnagla á að lesa þennan pistil ef málið teng­ist ykkur á ein­hvern hátt.

Við sitjum límd við tölvu­skjá­ina og bíðum frétta af ungri og týndri stúlku. Vís­bend­ingar og til­gátur eru óhugn­an­legar og ein­hverjir virð­ast ekki sjá mörkin á því að giska um örlög alvöru mann­eskju og plotts í Ófærð. Við höfum öll tengi­punkta við þessa stúlku; eigum barn á svip­uðum aldri, vorum að djamma á Húrra þetta kvöld, höfum labbað síð­ustu leið­ina sem hún sást margoft. Og, sumum okkar hefur verið byrlað nauðg­un­ar­lyf, sem er ein af hinum fjöl­mörgu til­gátum á sam­fé­lags­miðl­un­um, þó lög­reglan hafi ekki gefið neitt út um það.

Þarna úti er í alvöru fólk sem ákvað að skrifa við frétt­ir, ekki „Sendi aðstand­endum hlýjar kveðj­ur,“ „Gangi lög­regl­unni sem allra best“ eða „Höfum augun opin.“ Nei, það ákveður að skrifa „Þetta sýnir bara að stelpur eiga ekk­ert að vera að dand­al­ast einar og svo á að passa upp á drykk­inn sinn.“

Auglýsing

Í fyrsta lagi vitum við bara ekki neitt þegar þessum pistli er skilað inn (rétt fyrir mið­nætti á mið­viku­dags­kvöld­i). Í öðru lagi veit eng­inn hvort eitrað var fyrir henni þetta kvöld. Í þriðja lagi, ef eitt­hvað sak­næmt hefur átt sér stað, af hverju erum við enn föst í því að benda á hvað brota­þoli gerði rangt?

Að byrla ein­hverjum nauðg­un­ar­lyfi er ekki eitt­hvað stund­ar­brjál­æði, eða mis­skiln­ingur á jái og nei-i. Það krefst skipu­lags, við­bjóðs og svartrar sál­ar. Nauðg­un­ar­lyf, hvað sem það var, hefur verið sett í drykk­inn minn og drykki margra sem ég þekki. Þetta er allt of fokk­ing algengt. Eftir að ég lenti í þessu sjálf legg ég mig fram um að spyrja fólk sem er næstum út úr heim­inum á tjútt­inu hinnar ein­földu spurn­ingar „Er allt í lag­i?“ Oft er svarið bara jájá, en einu sinni hef ég hjálpað stúlku að finna vini sína og grunur lék á að hún hefði lent í þessu.

Systir mín, hetjan mín, stöðv­aði eitt­hvað mjög dúbíús fyrir nokkrum árum. Hún hafði fylgst með stúlku á barnum sem virt­ist vera alveg út úr heim­in­um. Hún tekur síðan eftir því að tveir menn styðja hana á milli sín, á leið­inni út af barn­um. Hún fær ónota­til­finn­ingu í mag­ann, en tekur af skarið og gengur rösk­lega að tríó­inu. „SIGGA!!!!“ segir systir mín, „langt síðan ég hef séð þig.“ Menn­irnir tveir gufa upp á nóinu. Hvort sem þeir ætl­uðu sér að nýta sér ástandið eða höfðu eitrað fyrir stúlkunni, þá er það alveg á hreinu að þetta voru ein­hver ógeð. Og saman í þessu. Á hvaða tíma­punkti ræð­irðu svona við félaga þinn? „Eigum við að tjippa inn í að kaupa rohyp­hnol?“ Eða „Hey, sjáðu þessa… eigum við að taka hana heim sam­an?“

„Hvernig hef­urðu það?“ getur verið ógeðs­lega mik­il­væg spurn­ing.

Við erum í þessu sam­an. Pössum upp á hvert ann­að.

Áfram lög­reglan og ást út í tómið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiKjaftæði
None