Gefið krökkum meiri séns

Friðrik Atli Jónsson, 10 ára, skrifar Kjaftæði í tilefni af alþjóðlegum degi barna sem haldinn er hátíðlegur í dag. Þá gefum við börnum orðið.

Auglýsing

Mér finnst að full­orðna fólkið eigi að hlusta betur á krakka. Við vitum að þið viljið að okkur líði vel, en stundum gefið þið okkur hug­myndir um hvað við eigum að gera sem okkur finnst ekki góð­ar. En við getum ekki sagt ykkur það, af því að við erum stundum feimin og þið ráðið svo miklu um lífið okk­ar. Krakkar vita meira en full­orðnir hvernig það er að vera barn og þess vegna erum við sér­fræð­ing­arnir í hlutum sem við lendum í, þið ættuð að hlusta meira á okk­ur.

Ég var í skól­anum og við sáum ein­elti eiga sér stað. Við reyndum að fá hjálp hjá einum kenn­ara í frí­mín­út­um, en hann gerði ekki neitt. Það var sparkað í vin okkar og hann var lam­inn. Ég sá ung­ling labba fram­hjá og hún spurði hvort það væri slagur í gangi, ég sagði já. Hún hljóp og náði í alla í frí­mín­út­unum og nokkra kenn­ara. Flestir kenn­ar­arnir komu, nema þessi sem að ég reyndi að fá til að hlusta á mig. Hann trúði okkur ekki og gerði ekki neitt.

Við krakk­arnir leystum þetta vanda­mál og þess vegna vil ég að þið hlustið betur á okkur og takið mark á því sem við segj­um. Það er ekki nóg að spyrja okkur hvað okkur finnst þegar ykkur hent­ar, þið þurfið að hlusta meira og trúa okkur þegar við leitum til ykk­ar. Kenn­ar­ar, gefið krökkum meiri séns.

Auglýsing

Á alþjóða­degi barna, 20. nóv­em­ber, minnum við á að Barna­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna veitir öllum börnum um allan heim mik­il­væg rétt­indi. Yfir­skrift átaks UNICEF á Íslandi á alþjóða­degi degi barna er #börn­fá­orð­ið. Mark­mið dags­ins er að gefa börnum og ung­mennum orð­ið, og skapa vett­vang fyrir þau til að tjá skoð­anir sínar opin­ber­lega og í sínu nærum­hverfi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiKjaftæði