Viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í nýjasta helgarblaði DV vakti athygli, líkt og flest viðtöl sem forsetinn veitir. Þar kom skýrt fram hversu mikilvægur Ólafur Ragnar telur sig vera íslensku þjóðinni og hvaða stórmál væru framundan sem hann þyrfti að leiðbeina þjóð sinni í gegnum. Ólafur Ragnar kvartaði líka yfir umræðunni og því að það mætti „helst ekki tala jákvætt um árangur Íslendinga án þess að vera sakaður um gamaldags þjóðrembu.“ Svo svaraði hann að venju óskýrt öllum spurningum um mögulegt framboð sitt í forsetakosningunum næsta sumar.
Helgarblað DV var í frídreifingu og var um að ræða stærsta upplag í sögu DV. Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi DV, var ánægður með forsíðuefnið. Hann sagði á Facebook sama dag og blaðið kom út: „Mér finnst Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, vera einn af fáum yfirburðamönnum sem við eigum. Ég var yfirlýstur stuðningsmaður hans í kosningunum 1996 og hef verið ánægður með hann sem forseta æ síðan, af ótal mörgum ástæðum. Fleira var það ekki og góða helgi.“
Þetta er ekki fyrsta frídreifing DV sem vekur athygli á þessu ári. Þann 25. júní síðastliðinn var DV líka í frídreifingu. Þá var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í forsíðuviðtali. Þar sagði forsætisráðherrann meðal annars að það væri áhyggjuefni fyrir samfélagið allt ef Píratar næðu áhrifum, frá meintum hótunum vegna haftamála, tjáði sig um fjárkúgunarmálið fræga og sögusagnir um aðkomu hans og Framsóknarflokksins að fjölmiðlum Vefpressunnar, en DV er á meðal þeirra.
Frídreifingin á blaðinu með forsíðuviðtali við forsætisráðherrann vakti mikla athygli og sterk viðbrögð. Reynir Traustason, fyrrum ritstjóri DV, sagði m.a. í stöðuuppfærslu á Facebook að „Þau stórtíðindi hafa orðið að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er í einlægu drottningarviðtali við DV. Ekki dugði minna en aldreifing á blaðinu til að koma boðskapnum á framfæri[...] Viðtalið er staðfesting þess að DV hefur breyst úr manni í mús."
Eggert Skúlason, annar núverandi ritstjóra DV, svaraði með því biðja fólk að drepa sig ekki úr hlátri.
Í bakherberginu hefur verið rætt um að það sé skemmtileg tilviljun að DV hafi verið sett í umfangsmikla frídreifingu akkurat þegar þessir tveir stjórnmálamenn, forsætisráðherrann og forsetinn, sem eiga mikla samleið í pólitík þessi dægrin, eru í drottningarviðtölum. Sérstaklega í ljósi þess að nýir eigendur og stjórnendur DV hafa legið undir ámæli fyrir að hafa dregið algjörlega úr allri gagnrýni á báða umrædda stjórnmálamenn eftir að þeir tóku við blaðinu, sem áður var ætið mjög beitt í garð valdaafla.