Hvort eiga viðskiptavinir að taka húsnæðislán hjá Frjálsa eða Arion banka?

Arion.banki_..Sm_.ra.tib_..jpg
Auglýsing

Arion banki sendi í gær frá sér frétta­til­kynn­ingu um að Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi lækkað vexti á lánum sem hann veitir m.a. til­ hús­næð­is­kaupa og fjölgað val­kostum sín­um. Veð­hlut­föll sjóðs­ins hafa ver­ið ­rýmkuð, sveigj­an­leiki í teg­undum lána aukin og vextir lækk­aðir umtals­vert. Nú er til dæmis hægt að taka lán á breyti­legum vöxtum hjá Frjálsa líf­eyr­is­sjóðn­um á 3,17 pró­sent vöxt­um, en þeir vextir voru áður 3,8 pró­sent. Þá er hægt að taka ó­verð­tryggð lán með föstum vöxtum í þrjú ár á 6,58 pró­sent vöxt­um. Auk þess er lán­töku­gjald hjá Frjálsa 0,75 pró­sent.

Ástæða þess að Arion banki sendi út við­kom­and­i frétta­til­kynn­ingu er sú að Arion banki rekur sjóð­inn og hann er til húsa í höf­uð­stöðvum bank­ans í Borg­ar­túni. Auk þess fer afgreiðsla líf­eyr­is­sjóðs­lána fram í úti­búi Arion banka á Höfða.

Þetta gæti ruglað ýmsa. Þau kjör sem Arion banki býður á hús­næð­is­lánum eru nefni­lega að lang­mestu leyti mun slak­ari en þau sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn sem bank­inn rekur býð­ur. Hjá Arion banka eru fastir vext­ir til þriggja ára á óverð­tryggðum lánum 7,15 pró­sent, breyti­legir verð­tryggð­ir vextir eru 4,15 pró­sent og lán­töku­gjaldið er eitt pró­sent. Allt eru þetta mun lak­ari kjör en Frjálsi býð­ur. Hjá Arion banka er þó hægt að taka lán fyrir allt að 80 pró­sent af kaup­virði á meðan að ofan­greind kjör Frjálsa miða við 65 ­pró­sent hámarks­veð­setn­ing­ar­hlut­fall.

Auglýsing

Það er því spurn­ing hvað starfs­menn Arion banka í úti­bú­in­u við Höfða gera þegar við­skipta­vinur bank­ans sem borgar í Frjálsa líf­eyr­is­sjóð­inn kemur í útibú bank­ans á Höfða til að sækja sér hús­næð­is­lán. ­Leið­beina þeir honum að taka hús­næð­is­lán hjá Arion banka eða munu þeir beina honum í mun hag­stæð­ari lánin sem Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn býður og afgreidd eru á nákvæm­lega sama stað?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None