Holl og þörf upprifjun

Alltaf einn á vaktinni eftir Karl Th Birgisson fjallar um kosningabaráttuna fyrir forsetakosningarnar árið 2012. Bókadómur eftir Kolbein Óttarsson Proppé.

7DM_1187_raw_1486.JPG
Auglýsing

Alltaf einn á vakt­inni, eftir Karl Th Birg­is­son, ber und­ir­tit­il­inn Saga af for­seta og þjóð hans. Sann­ast sagna eru bæði tit­ill og und­ir­tit­ill hálf­vill­andi, því bókin er mun fremur almenn upp­rifjun á síð­ustu for­seta­kosn­ing­um, og aðdrag­anda þeirra, en sér­stök saga af Ólafi Ragn­ari Gríms­syni. Og þjóðin er líka í auka­hlut­verki, hennar aðkoma að bók­inni er fyrst og fremst í gegnum frá­sagnir af skoð­ana­könn­un­um. Ekki er ólík­legt að tit­ill­inn sé vísun í bók Stein­unnar Sig­urð­ar­dóttur um Vigdsíi Finn­boga­dótt­ur, Ein á for­seta­vakt, í það minnsta hefur hann litla skírskotun í efni bók­ar­inn­ar.

Útgangs­punktur hennar er nefni­lega fyrst og fremst for­seta­fram­boð Þóru Arn­órs­dótt­ur. Aðdrag­anda fram­boðs­ins er lýst, sem og þeirri atburða­rás sem fram­boðið hratt af stað. Og Karl virð­ist ágæt­lega tengdur fólki sem vann að fram­boð­inu og kemur ágæt­lega á fram­færi ýmsum inn­an­búð­ar­upp­lýs­ing­um.

Ólafur Ragnar er þannig ekki aðal­um­fjöll­un­ar­efni bók­ar­inn­ar, þó hann sé örlaga­valdur sög­unn­ar. Hann vomar yfir, lýs­ingin hverf­ist um við­brögð við orðum hans og gerð­um.

Auglýsing

Og það er vel, því, eins og Karl lýsir skil­merki­lega, tókst Ólafi Ragn­ari að láta síð­ustu kosn­inga­bar­áttu hverf­ast algjör­lega um sig og sín orð. Þannig tók hann allt frum­kvæði í umræð­unni og aðrir for­seta­fram­bjóð­endur voru sífellt í við­brögðum við orðum hans. Meira að segja mik­il­væg­ustu ræður Þóru, sem áttu að sýna kjós­endum fram á erindi hennar í for­seta­emb­ætt­ið, snér­ust að miklu leyti um Ólaf Ragnar og orð hans.

Karl Th. er lipur penni og ferst frá­sögnin vel úr hendi. Ákveð­inn los­ara­bragur er þó á frá­sögn­inni og á stundum fær maður á til­finn­ing­una við lestur bók­ar­innar að of mikið sé af upp­fyll­inga­efni í henni, til dæmis þegar maður ber sig í gegnum heilu kafl­ana úr greinum og blogg­færsl­um. Betri rit­stýr­ing hefði þannig gert bók­ina mun beitt­ari og mark­viss­ari.

Þau sem kvarta yfir mál­flutn­ingnum núna ættu að lesa bók Karls og sjá að þetta er eins og barna­leikur miðað við margt sem á gekk fyrir fjórum árum. Og þar spil­aði Ólafur Ragnar stærstu rulluna.

Að öllu þessu sögðu þá er bókin Alltaf einn á vakt­inni stór­skemmti­leg. Maður spænir sig í gegnum hana og ýmis atkvik rifj­ast upp fyrir les­and­anum á meðan önnur koma á óvart. Karli tekst vel að setja hluti í sam­hengi og draga álykt­an­ir. Þannig ferst honum vel úr hendi að draga fram dekkri hliðar bar­átt­unn­ar, ósvífn­ina og ófyr­ir­leitn­ina sem oft og tíðum ein­kenndi mál­flutn­ing Ólafs Ragn­ars Gríms­son­ar.

Síð­asta kosn­inga­bar­átta til for­seta­emb­ættis var nefni­lega þannig að það er svo sann­ar­lega þess virði að skrifa um hana bók. Minni okkar getur verið glopp­ótt og sá sem hér ritar var búinn að gleyma ótal mörgum þáttum sem Karl dregur fram og fygld­ist ég þó nokkuð vel með málum sem starf­andi blaða­mað­ur.

Per­sónu­legar árás­ir, dylgj­ur, hálf­kveðnar vísur og að ganga á bak orða sinna - allt þetta ein­kenndi kosn­inga­bar­átt­una. Þau sem kvarta yfir mál­flutn­ingnum núna ættu að lesa bók Karls og sjá að þetta er eins og barna­leikur miðað við margt sem á gekk fyrir fjórum árum. Og þar spil­aði Ólafur Ragnar stærstu rull­una.

Karl Th. Birg­is­son hefur skrifað skemmti­lega bók um áhuga­vert tíma­bil sem vert er að halda á lofti. Hún er ekki galla­laus, en heilt yfir afbragðs skemmtun og holl og þörf upp­rifj­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None