Alþjóðavæddur heimur skellur á Íslandi

Auglýsing

Tvö mál má segja að séu nú meðal stærstu við­fangs­efna sam­fé­lags­ins, þegar kemur að stjórn­sýslu, atvinnu­lífi og stjórn­mál­um. Ann­ars vegar eru það mál sem snúa að með­höndlum per­sónu­upp­lýs­inga og hins vegar breyt­ingar á innviðum fjár­mála­kerf­is­ins.

Í báðum til­vikum hafa málin komið inn á borð íslensks sam­fé­lags­ins frá Evr­ópu­sam­band­inu (ES­B), en eng­inn Íslend­ingur fékk þó að taka þátt í rök­ræð­unni um málin með form­legum hætti, þar sem Ísland er ekki aðili að ESB.

Engin eða veik rödd

Óháð því hvaða skoðun fólk hefur á ESB þá er ekki hægt að horfa fram­hjá því, að hinn alþjóða­væddi heimur er orð­inn þannig að margar stærstu ákvarð­anir um breyt­ingar á okkar sam­fé­lagi eru teknar innan alþjóð­stofn­anna þar sem við höfum enga eða afar veika rödd.

Auglýsing

Í fræði­legu tali hafa þessi mál verið nefnd GDPR og PSD2, í höf­uðið á til­skip­un­unum sem málin markast af. Íslensk fyr­ir­tæki hafa verið að und­ir­búa sig fyrir þessar breyt­ingar og Alþingi er nú með GDPR til umfjöll­un­ar, en flest fyr­ir­tæki hafa þegar gripið til ráð­staf­ana enda hefur til­skip­unin þegar tekið gildi á áhrifa­svæði hennar innan EES.

Að baki þessu máli liggur gríð­ar­lega umfangs­mikil vinna í Evr­ópu­þing­inu. Margra ára rök­ræður um mörg álita­mál sem snúa að með­höndlun per­sónu­upp­lýs­inga og greiðslu­miðl­un.

Í báðum mál­unum er inter­netið í aðal­hlut­verki, en á því eru engin landa­mæri. 

Með PSD2 til­skip­un­inni er t.d. afnumið kverka­takið - eins og sumir hafa kom­ist að orði - sem bankar hafa á færslum af og á banka­reikn­inga og aðgengi að upp­lýs­ingum um stöðu og hreyf­ingar þeirra. Sam­þykki við­skipta­vina þarf til, en breyt­ing­arnar marka þátta­skil í banka­þjón­ustu.

Eins og rakið hefur verið í fróð­legum greinum í Vís­bend­ingu á und­an­förnum mán­uð­um, þar sem Frið­rik Þór Snorra­son, for­stjóri Reikni­stofu Bank­anna, hefur meðal ann­ars fjallað um breyt­ingar á banka­starf­semi, þá má segja að þetta séu sögu­legar breyt­ingar sem eru að eiga sér á innviðum atvinnu­lífs­ins.

Hvernig eigum við að haga þessu til fram­tíð­ar?

Margar spurn­ingar vakna, þegar hugað er að þessum hlut­um:

Hvernig mun Ísland standa í þessum landamæra­lausa heimi í fram­tíð­inni, með okkar eigin mynt og sjálf­stæða pen­inga­stefnu? Erum við til­búin til að takast á við þessar breyt­ing­ar? Hverjir eru kostir okkar sam­fé­lags og gall­ar, þegar horft er til þess­ara þátta?

Það er ekki endi­lega víst að það sé best, að fá hlut­ina full­gerða inn á borð stjórn­mála­manna, þegar þeir eru í reynd orðnir full­mót­aðir og komnir til fram­kvæmda á öllum alþjóða­mörk­uð­um, eins og reyndin er með GDPR og PSD2.  

Að því leyt­inu til, má segja að hinn alþjóða­væddi heimur skelli síend­ur­tekið á Íslandi. And­staða við ESB og alþjóða­legar myntir eins og evru og Banda­ríkja­dal, skiptir engu máli í þessu sam­hengi. Málin halda áfram að ber­ast inn á borð stjórn­mála­manna og til fram­kvæmda í alþjóða­væddum heimi, alveg óháð því hvaða skoð­anir stjórn­mála­menn hafa á ágæti þeirrar þró­un­ar.

Erum í sam­keppni á alþjóð­legum mark­aði

Eitt atriði liggur þó fyr­ir: Íslenskt efna­hags­líf starfar á alþjóð­legum mark­aði, hvort sem litið er til sjáv­ar­út­vegs, þjón­ustu við ferða­menn, smá­sölu, fjár­mála­þjón­ustu, tækni­geirans, eða ann­arra hliða hag­kerf­is­ins. Til fram­tíðar litið er það mikið hags­muna­mál fyrir Ísland, að ná með ein­hverjum hætti að hafa aðkomu að mótun reglu­verks­ins, áður en það skellur á land­inu. Það er of seint að ætla sér að hafa afger­andi áhrif á það eftir að það er komið til fram­kvæmda hjá öllum öðrum lönd­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari