Ár vinnandi fólks

Drífa Snædal, forseti ASÍ, fer yfir árið en hún fjallar meðal annars um nýja umhverfisstefnu sambandsins sem lögð verður fram á næsta ári.

Auglýsing

Hin dag­legu störf stétt­ar­fé­laga á land­inu fara ekki hátt frá degi til dags en eru mik­il­væg bæði fyrir ein­stak­linga og sam­fé­lagið allt. Reyndar eru stétt­ar­fé­lögin orðin stór hluti af vel­ferð­ar­kerf­inu okk­ar. Þangað leitar fólk ef það veikist, þarf end­ur­hæf­ingu, end­ur­menntun eða annan stuðn­ing á vinnu­mark­aði. Að eiga traust félags­manna til verka er bráð­nauð­syn­legt lýð­ræð­is­legri hreyf­ingu og því er afar ánægju­legt að sjá að þær mæl­ingar sem hafa verið gerðar á við­horfi félags­manna til síns svæð­is­fé­lags eða heild­ar­sam­taka sýna svo ekki verður um villst að fólk er almennt afar ánægt með störf verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og ber til hennar traust. 

Þegar verka­lýðs­hreyf­ing er eins umfangs­mikil og raunin er hér á landi er henni í raun ekk­ert óvið­kom­andi og það kom ber­lega í ljós við gerð kjara­samn­ing­anna síð­asta vor. Einn af horn­steinum þess samn­ings voru lof­orð stjórn­valda um bættan hag almenn­ings og ýmis risa­stór sam­fé­lags­mál. Það má segja að allt hafi verið undir í þeim samn­ingum og margt er nú þegar komið til fram­kvæmda. Á síð­ustu starfs­dögum Alþingis á þessu ári var til dæmis sam­þykkt þriggja þrepa skatt­kerfi sem lækkar skatta einkum og sér í lagi hjá lægst laun­aða fólk­inu. Fæð­ing­ar­or­lofið var lengt um mánuð og sam­þykkt að lengja það upp í 12 mán­uði árið 2021. Það er ein stærsta jafn­rétt­is­að­gerð sem hægt er að fara í, að eyrna­merkja fæð­ing­ar­or­lof til hvors for­eldris fyrir sig. Lögum um almennar íbúðir var breytt þannig að nú eiga fleiri þess kost að leigja hjá óhagn­að­ar­drifnum félags­legum leigu­fé­lögum eins og Bjargi sem er í eigu stétt­ar­fé­lag­anna. Auk alls þessa voru sköpuð skil­yrði fyrir vaxta­lækkun sem kemur heim­ilum og fyr­ir­tækjum til góða. 

Þau verk­efni sem bíða nýs árs eru hins vegar að útfæra stuðn­ing við fyrstu íbúða­kaup, vinda ofan af verð­trygg­ing­unni og sam­þykkja nýja lagaum­gjörð um heil­brigð­ari vinnu­markað svo eitt­hvað sé nefnt. En áskor­an­irnar eru miklu fleiri. 

Auglýsing

Vinnu­mark­að­ur­inn breyt­ist hratt, bæði vegna tækni­breyt­inga en eins vegna breyttra atvinnu­hátta. Störfum í vinnslu sjáv­ar­af­urða hefur fækkað veru­lega vegna nýrrar tækni og mun fækka enn frekar á næstu árum. Atvinnustig á þeim land­svæðum sem hafa reitt sig á fisk­vinnslu mun því ráð­ast í auknum mæli af nýsköpun og annarri fram­leiðslu og þjón­ustu. Þó að atvinnu­leysi sé lágt hér á landi á alþjóð­legan mæli­kvarða þá er rúm­lega fjög­urra pró­senta atvinnu­leysi ekki ásætt­an­legt í okkar sam­fé­lagi. End­ur­menntun og áherslu­breyt­ingar í fræðslu­málum eru lyk­ill­inn að far­sælum umskiptum á vinnu­mark­aði og það skýtur skökku við að þegar fé hefur verið aukið veru­lega til háskóla­stigs­ins síð­ustu ár, hefur dregið úr fjár­fram­lögum til full­orð­ins­fræðslu. Hér þurfum við að taka okkur veru­lega á! 

Annað stór­verk­efni sem hreyf­ingin tekst á við á nýju ári er að móta stefnu fyrir breyttan vinnu­markað í ljósi lofts­lags­breyt­inga. Engar stórar ákvarð­anir verða teknar í fram­tíð­inni án þess að áhrif þeirra á umhverfið verði í brennid­epli. Alþýðu­sam­bandið er í miðjum störfum við að móta umhverf­is­stefnu sem verður lögð fyrir þing sam­bands­ins á haust­dögum 2020. Kjarn­inn í þeirri vinnu er það sem kallað hefur verið „just transition“ eða sann­gjörn umskipti í hinni alþjóð­legu hreyf­in­u. 

Mark­mið þeirrar hreyf­ingar er risa­stórt, að tryggja að fólk og sam­fé­lög eigi sér fram­tíð hér á jörð. Kolefn­is­hlut­leysi er mik­il­væg varða á þeirri leið. Lyk­ill­inn að far­sælum umskiptum er sterk verka­lýðs­hreyf­ing og virkt sam­tal og samn­ingar á milli atvinnu­rek­enda, vinn­andi fólks og stjórn­valda. Hér á landi búum við einmitt við slíka umgjörð og erum um margt vel í stakk búin til að umskiptin verði far­sæl fyrir almenn­ing. Þegar reynir á og risa­stór sam­fé­lags­leg verk­efni bíða úrlausna skiptir það öllu fyrir hag almenn­ings að verka­lýðs­hreyf­ingin sé sterk og njóti trausts. Það er gott að fara inn í nýtt ár með þá full­vissu í far­teks­inu.

Gleði­legt ár!

Höf­undur er for­seti ASÍ. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit