Auglýsing

Ég hef minnst á það áður – í leið­ara­skrifum þar sem minnt er á mik­il­vægi lista­manna fyrir sam­fé­lagið – þegar við á rit­stjórn Kjarn­ans heim­sóttum sendi­ráð Íslands í Kaup­manna­höfn. Þá tók Bene­dikt Jóns­son, sendi­herra, á móti okkur og spjall­aði við okkur um utan­rík­is­þjón­ust­una, alþjóða­stjórn­mál og ýmis­legt fleira. 

Eft­ir­minni­lega skemmti­legur fundur og fræð­andi, enda Bene­dikt reynslu­mik­ill og með yfir­burða­þekk­ingu á hinum ýmsu málum sem tengj­ast ímynd Íslands erlend­is. 

Eitt af því sem hann sagði, var að sterkasta vopnið sem Ísland hefði, þegar kæmi að orðstír um heim allan, væri ein­stak­lega jákvæð og góð ímynd sem íslenskt lista­líf hefði lagt grunn­inn að. Hvar sem hann hefði kom­ið, þá væri þetta alltaf það sem blasti við; góð og sterk ímynd Íslands þegar kæmi að menn­ing­ar­líf­inu og list­um.

Auglýsing

Ótrú­legur árangur Hildar Guðna­dóttur á sviði kvik­mynda­tón­listar heldur áfram að vekja heims­at­hygli. Það var gaman að sjá það í beinni í gær, hér í Banda­ríkj­un­um, þegar hún tók við Golden Globe verð­laun­unum fyrir tón­list­ina í hinni stór­brotnu mynd Joker. Jóhann Jóhanns­son heit­inn tón­skáld hafði verið í sömu spor­um, á sínum tíma, og manni fannst þetta hálf óraun­veru­legt þá líkt og nú. 

Það að Hildur hafi verið með tón­list­ina í Cherno­byl þátt­unum – svo til sam­hliða því að Joker birt­ist á hvíta tjald­inu – verður að telj­ast með ólík­ind­um, og sýnir óvenju­lega mikla hæfi­leika og afköst. Tón­listin í þátt­unum er öllum þeim sem hafa horft og hlust­að, eft­ir­minni­leg.

Von­andi gefur þetta tón­inn fyrir Óskar­inn – þó það sé óþarfi að gera kröfu um það. En það má láta sig dreyma.

Það er hollt fyrir Íslend­inga að muna hvaðan útþenslan á sam­fé­lag­inu kemur oft á tíð­um. Hvernig okkur tekst að búa til ný sjón­ar­horn, stað­setja okkur utan við rammann, stinga á kýlum og stuðla þannig að fram­förum og nýsköp­un. Lista­menn eru í þessum hlut­verkum og hvernig hið litla íslenska lista­líf hefur stutt við íslenskt sam­fé­lag að und­an­förnu – og í gegnum tíð­ina – sýnir mik­il­væg­ið. 

Lista­menn vísa nefni­lega oft veg­inn, og á því verður von­andi almenn við­ur­kenn­ing. Ég hef áður skrifað um mik­il­vægi lista­manna og þá hvers vegna mér finnst að það þurfi að fjár­festa með mun ríku­legri hætti í starfi þeirra. Ég læt því nægja að tengja hér á tvo síð­ustu leið­ara um þessi mál. Ann­ars veg­ar, Að gera hlut­ina vel, og síðan Heil­indin á bak við hvíta fíla.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari