Áramótagrein mín í Kjarnanum fyrir ári síðan bar yfirskriftina „Stafrænt stökk til framtíðar“. Þar lýsti ég því að þrátt fyrir allt hefði árið 2020 ekki verið það annus horribilis fyrir verslunar- og þjónustufyrirtækin í landinu sem margir gerðu ráð fyrir. Covid tíminn hafði nefnilega í för með sér ýmsar jákvæðar hliðarverkanir, ekki síst fyrir þær sakir að æ fleiri hafa nú öðlast skilning á mikivægi stafrænna umbreytinga og þeim gífurlegu tækifærum sem þær skapa. Fundarhöld á netinu og stafrænir viðburðir hvers konar sem áður voru nær óhugsandi eru núna daglegt brauð, með tilheyrandi tíma- og orkusparnaði fyrir alla þá sem slíka fundi sækja. Svo ekki sé nú minnst á þau jákvæðu áhrif sem stafræn fundarhöld hafa haft á kolefnisspor þeirra sem slíka fundi sækja.
Á því ári sem senn líður höfum við hjá SVÞ áfram haldið á sömu braut og áður, trú þeirri staðföstu skoðun okkar að öflugt átak við að efla stafræna hæfni og stafræna þekkingu alls staðar í atvinnulífinu sé ein af frumforsendunum fyrir því að Ísland haldi stöðu sinni áfram meðal fremstu þjóða heims hvað lífskjör varðar. Gert var samkomulag milli stjórnvalda annars vegar og Samtaka verslunar og þjónustu, VR og Háskólans í Reykjavík hins vegar um að setja á laggirnar „Stafrænan hæfniklasa“ sem hefur það hlutverk að efla stafræna hæfni bæði í atvinnulífinu og á hinum almenna vinnumarkaði. Með þessu sameina stjórnvöld, atvinnurekendur í verslun og þjónustu, launþegahreifing og háskólasamfélagið krafta sína í þessu efni. Stafræni hæfniklasinn hefur þegar hafið starfsemi sína.
Það er mikið í húfi að vel takist hér til. Til þess að Ísland verði áfram samkeppnishæft og íslensk fyrirtæki geti veitt hinum stóru alþjóðlegu fyrirtækjum samkeppni, verður þekking á stafræna sviðinu að taka stökk fram á við. Við erum þegar langt á eftir samanburðarþjóðum okkar í þessum efnum. Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er heill kafli um stafrænar umbreytingar þar sem m.a. segir að ríkisstjórnin hafi einsett sér að Ísland verði meðal allra fremstu þjóða á sviði stafrænnar tækni og þjónustu og að lögð verði áhersla á að styrkja stafræna hæfni fólks og getu þess til að leggja gagrýnið mat á upplýsingar. Óneitanlega hefði verið gaman að sjá í stjórnarsáttmálanum sterkar kveðið að orði um efla menntakerfið til þess að gera því kleift að bæta stafræna hæfni á öllum sviðum samfélagsins. Það er algert lykilatriði að menntakerfið í heild sinni taki þessi mál föstum tökum og efli færni kennara til að miðla þekkingu á þessu sviði til nemenda. Það verður eitt af stóru verkefnum nýhafins kjörtímabils að vinna þeim málum framgang.
Allt þetta sýnir þær hröðu breytingar sem við nú upplífum, breytingar sem eru algerlega fordæmalausar, svo notað sé það margþvælda orð. Það er ákveðinn vendipunktur að eiga sé stað í öllu viðskiptaumhverfinu. Nýjar og áður óþekktar aðferðir til að ná til viðskiptavinarins spretta upp með reglulegu millibili, þar sem hægt er að fylgjast með neysluhegðun hvers einasta einstaklings af ótrúlegri nákvæmni. Aðferðir til að nálgast viðskiptavininn verða sífellt margbrotnari. Þær aðstæður sem mynduðust í heimsfaraldrinum hafa flýtt þessum breytingum svo um munar.
Stafrænt langstökk til framtíðar hlýtur að verða okkar svar. Þegar litið er til ársins 2021 er ljóst að löngu þörf viðhorfsbreyting hefur átt sér stað í þeim málum. Á sama hátt er ljóst að betur má ef duga skal. Árið 2022 mun kalla á fleiri og stærri áskoranir í því efni og það sem er undir er hvernig við getum viðhaldið og tryggt samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja í þeirri sífellt harðnandi alþjóðlegu samkeppni sem þau eiga við að glíma. Hvorki meira né minna.
Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.