Ráðleggja sölu á bréfum í HB Granda - Rússabannið bítur

Næst stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins á eftir Samherja, HB Grandi, er metið á 66,8 milljarða króna samkvæmt nýju verðmati IFS Greiningar. Ráðleggingin í verðmati á félaginu er sala á bréfum, en gengið á markaði nú er 40.

kjarninn_makrill.jpg
Auglýsing

IFS metur virð­i hluta­fjár HB Granda nú um 66,8 millj­arða króna eða 36,8 krónur á hlut. Mark­aðs­gengið í dag er 40. Þetta kemur fram í nýrri verð­mats­grein­ingu frá IFS á HB Granda, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

Virð­is­matið lækkar frá því í ágúst, „að­al­lega vegna lægri ­sölu­tekna og lægri fram­legð­ar­hlut­falla en við reikn­uð­u­m ­með“ segir í verð­mats­grein­ing­unni.

Rússa­bannið slæmt fyrir fyr­ir­tækið

Mat IFS á HB Granda, samkvæmt nýrri verðmatsgreiningu.Í síð­asta virð­is­mati IFS var talið að sölu­tekj­ur af upp­sjáv­ar­fiski kæmu til með að lækka þar sem meira yrði sett í bræðslu vegna við­skipta­banns­ins í Rúss­landi, sem er mik­il­vægur mark­aður fyrir HB Granda, ekki síst vegna sölu á mak­ríl þang­að.

Auglýsing

Í verð­mat­inu kemur fram að bæði sölu­tekjur og fram­legð­ar­hlut­föll upp­sjáv­ar­fisks hafi lækkað meira en reiknað hafði verið með. „IFS býst hins­vegar við betri afkomu ­vegna botn­fisks þar sem við áætlum að verð á botn­fiski hafi hækkað áfá um 6,3 pró­sent á þessum fjórð­ungi. IFS tel­ur að verð á botn­fiski komi til með að hækka um 6,3 pró­sent á ár­inu 2016 og magn auk­ist einnig.  Mark­gengi okkar til tólf mán­aða er það sama og ­mark­aðs­gengi í dag og mælum við með sölu,“ segir í verð­mats­grein­gunni. 

Lágt olíu­verð hjálpar til

Olíu­verð hefur farið hratt lækk­andi und­an­farin miss­eri, einkum síð­ustu fimmtán mán­uði. Það fór hæst í um 115 Banda­ríkja­dali á tunn­una, ef miðað er við hrá­ol­íu, en hefur að und­an­förnu sveifl­ast í kringum 40 Banda­ríkja­dali. 

Í verð­mats­grein­ing­unni er gert ráð fyrir að olíu­verð hald­ist áfram lágt sem komi til með­ að þrýsta upp fram­legð­ar­hlut­föllum í rekstr­in­um. „Við ­reiknum með því að nýju skipin styðji frekar við fram­legð­ar­hlut­föll á spá­tíma­bil­inu. IFS reiknar með að fram­legð af botn­fiski verði tæp 35 pró­sent á spá­tíma­bil­inu og ­upp­sjáv­ar­fisks tæp 38 pró­sent,“ segir í verð­mats­grein­ing­unni.



Traustur rekstur

HB Grandi hefur átt sín bestu rekstr­arár í sögu félags­ins, und­an­farin ár, og hefur afkoma verið góð, á flesta mæli­kvarða. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var EBITDA (rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði og afskrift­ir) 52,8 millj­ónir evra, eða sem nemur 7,4 millj­örðum króna, og hækk­aði um tæp­lega fimmtán pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra. 

Stærsti eig­andi HB Grandi er Vogun hf., félag í meiri­hluta­eigu Krist­jáns Lofts­son­ar, með 33,5 pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna er næst stærsti eig­and­inn með 11,6 pró­sent hlut og Hamp­iðjan kemur þar á eftir með 8,67 pró­sent hlut. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None