Ísland er ekki með hæstu vexti í heimi

Staðreyndavakt Kjarnans skoðar fullyrðingu Össurar Skarphéðinssonar um að á Íslandi séu hæstu vextir í heimi.

össurskarp.jpg
Auglýsing

 „Við teljum að krónan hafi gengið sér til húð­ar. Hér eru hæstu vextir í heim­i,“ sagði Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suð­ur, í umræðu­þætti á RÚV um Ísland og umheim­inn á þriðju­dags­kvöld.  Össur end­ur­tók þessa full­yrð­ingu í stöðu­upp­færslu á Face­book og aftur í grein sem hann skrif­aði á Kjarn­ann í gær. Þar sagði: „Á Íslandi eru hæstu vextir í heim­i.“

Stað­reynda­vakt Kjarn­ans ákvað að kanna þessa full­yrð­ing­u. 

Stýri­vextir og hús­næð­is­vextir

Á Íslandi eru stýri­vextir Seðla­banka Íslands 5,25 pró­sent um þessar mund­ir. Þetta eru vextir á sjö daga bundnum inn­lánum lána­stofn­ana í Seðla­bank­an­um. Þetta eru vissu­lega mun hærri stýri­vextir en víð­ast hvar í Evr­ópu, til að mynda eru stýri­vextir á evru­svæð­inu 0,00 pró­sent. Í fimm ríkjum í Evr­ópu eru þeir þó hærri en á Íslandi. Í Hvíta-Rúss­landi eru vext­irnir 18 pró­sent, í Mold­óvu 9,5 pró­sent, 10 pró­sent í Rúss­landi, 7,5 pró­sent í Tyrk­landi og 15 pró­sent í Úkra­ín­u. Næst íslensku vöxt­unum eru vextir í Bosníu og Her­segovínu, þar sem þeir eru 5,01%. Víða utan Evr­ópu eru stýri­vextir enn hærri. 

Auglýsing

Ef horft er á vexti á íbúða­lánum þá eru óverð­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum hér­lendis 5,9-10,4 pró­sent. Langal­geng­ast er að óverð­tryggð­ir, bæði fastir og breyti­leg­ir, séu undir sjö pró­sent­u­m. 

Verð­tryggðu vext­irnir hér­lendis eru frá 3,15 til 4,5 pró­sent. Við þá bæt­ast vit­an­lega verð­bætur en þær hafa verið lágar á Íslandi um nokkuð langt skeið, enda hefur verð­bólga hér­lendis verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands frá því í febr­úar 2014. Tólf mán­aða verð­bólga í dag mælist 1,8 pró­sent.

Vextir hér­lendis eru því afskap­lega háir og mun hærri en í flestum löndum sem við miðum okkur við. Eng­inn vafi er á því að það er mjög dýrt að taka hús­næð­is­lán hér­lendis og end­ur­greiðsla á því er marg­föld miðað við það sem ger­ist í nágranna­löndum okk­ar. 

Í Þýska­landi (þar sem gjald­mið­ill­inn er evra) eru hús­næð­is­lána­vextir til að mynda 0,89 pró­sent hjá Deutche Bank, stærsta banka lands­ins. Í Nor­egi (þar sem gjald­mið­ill­inn er norsk króna) eru þeir 1,95 pró­sent hjá Danske Bank. Í Band­arikj­unum er með­al­tal vaxta á hús­næð­is­lánum ýmissa fjár­mála­stofn­anna 2,125 pró­sent. Allir þessir vextir eru óverð­tryggð­ir, enda verð­tryggð hús­næð­is­lán sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri. 

Vextir á hús­næð­is­lánum eru þó samt sem áður mun hærri í mörgum löndum en þeir eru á Íslandi. Ef miðað er við algenga óverð­tryggða vexti á Íslandi, sem eru 6,5-7 pró­sent, þá eru hærri vextir í að minnsta kosti 23 lönd­um. Vextir á hús­næð­is­lánum í Makedóníu eru til að mynda 7,5 pró­sent, á Ind­landi eru þeir 9,45 pró­sent, Í Kosovo eru 9,5 pró­sent, Rúss­landi 11,5 pró­sent, Georgíu 14 pró­sent, Tyrk­landi 16,08 pró­sent, Nigeríu 17,9 pró­sent, Pakistan 20 pró­sent og í Úkra­ínu 22,3 pró­sent. 

Nið­ur­staða Stað­reynda­vakt­ar­innar

Það er því nið­ur­staðan að full­yrð­ing Öss­urar Skarp­héð­ins­sonar um að hér séu hæstu vextir í heimi sé hauga­lyg­i. 



Ertu með ábend­ingu fyrir Stað­­­­reynda­vakt Kjarn­ans? Sendu hana á sta­d­­­reynda­vakt­in@kjarn­inn.­­­­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiStaðreyndavaktin
None