Tíu þingmenn fá nánast allar endurgreiðslur vegna aksturs

Tugur þingmanna fá níu af hverjum tíu krónum sem endurgreiddar eru vegna aksturs eigin bifreiða. Fjórir fá um helming greiðslnanna. Þeim þingmönnum sem þiggja háar upphæðir vegna slíks aksturs hefur fækkað mikið á undanförnum fimm árum.

Lítill hluti þingmanna þiggur nánast allar endurgreiðslur sem greiddar eru vegna aksturs á eigin bifreið.
Lítill hluti þingmanna þiggur nánast allar endurgreiðslur sem greiddar eru vegna aksturs á eigin bifreið.
Auglýsing

Þeir tíu þing­menn sem fengu hæstu end­ur­greiðslur vegna akst­urs fengu sam­tals 25,8 millj­ónir króna greiddar frá rík­inu í fyrra. Sam­tals voru greiddar 29,2 millj­ónir króna vegna árs­ins í heild. Það þýðir að tíu efstu fengu 88 pró­sent af öllum end­ur­greiðsl­u­m. 

Sá sem fékk hæstu end­ur­greiðsl­una, Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fékk 4,6 millj­ónir króna end­ur­greidd­ar. End­ur­greiddur kostn­aður Ásmundar er því tæp­lega 16 pró­sent af öllum end­ur­greiddum kostn­aði. Ásmundur er 1,6 pró­sent þing­manna. 

Þeir fjórir þing­menn sem fá hæstu end­ur­greiðsl­urnar þiggja sam­tals 14 millj­ónir króna árlega vegna þeirra. Það þýðir að þeir fá tæp­lega helm­ing allra end­ur­greiðslna vegna akst­urs.

Kostn­aður dreg­ist saman um 30 millj­ónir

End­ur­greiðslur til þing­manna vegna akst­urs hafa dreg­ist mikið saman und­an­farin ár eftir að þeim til­mælum var beint til lands­byggð­ar­þing­manna að nota frekar bíla­leigu­bíla og flug­leiðir til að kom­ast á milli staða. Skrif­­stofa Alþingis hefur gert samn­inga við bíla­­leig­u­­fyr­ir­tæki sem eru að finna í ramma­­samn­ingi Rík­­is­­kaupa, um afslætti af gjald­­skrá bíla­­leig­u­bíla til að ná niður þessum kostn­aði enn frek­ar.

Auglýsing
Árið 2013 var heild­ar­kostn­aður end­ur­greiðslna 59,8 millj­ónir króna, eða rúmum 30 millj­ónum króna meiri en í fyrra. Þá fengu þeir tíu sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar 27,7 millj­ónir króna, eða tæpan helm­ing allra end­ur­greiðslna. Sam­kvæmt þessum tölum virð­ist því hafa fækkað mjög í hópi þeirra þing­manna sem þiggja háar end­ur­greiðslur en nán­ast sama upp­hæð fer enn til þeirra tíu þing­manna sem taka mest til sín af end­ur­greiðsl­um.

Fastur og breyti­legur kostn­aður

Akst­ur­gjald er greitt sam­­kvæmt akst­­ur­s­dag­­bók þar sem þing­­menn halda utan um allan akstur á sínum eigin bif­­reið­u­m. ­Ferða­­kostn­að­­ar­­nefnd, sem heyrir undir fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­ið, ákveður akst­ur­gjald í akst­­ur­s­­samn­ingum rík­­is­­starfs­­manna og rík­­is­­stofn­ana. Gjaldið skipt­ist í almennt gjald, sér­­stakt gjald og svo­­kallað tor­­færu­­gjald. Almenna gjaldið á við akstur á mal­bik­uðum vegum inn­­an­bæjar og utan, sér­­staka gjaldið á við akstur á mal­­ar­­vegum utan­­bæjar og tor­­færu­gjaldið mið­­ast við akstur við sér­­stak­­lega erf­iðar aðstæð­­ur, gjarnan utan vega og ein­ungis jeppa­­fært.

Grunnur akst­­ur­s­gjalds­ins skipt­ist í fastan kostnað og breyt­i­­legan kostn­að. Í föstum kostn­aði voru afskrift­ir, skoð­un­­ar­gjald, bif­­reiða­gjald, ábyrgð­­ar­­trygg­ing og húf­­trygg­ing, en í breyt­i­­legum kostn­aði bens­ín, smurn­ing, olía, hjól­barð­­ar, vara­hlutir og við­­gerð­­ir.

Greiðsl­urnar eru und­an­þegnar skatti.

Fjöl­miðlum gengið illa að fá svör

Fjöl­miðlar hafa árum saman reynt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn fái end­ur­greiðslu vegna akst­urs, en án árang­urs. Kjarn­inn fjall­aði til að mynda um málið í frétta­skýr­ingu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þing­menn hefðu fengið end­ur­greiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn var að ræða. Þær upp­lýs­ingar þóttu þá sem nú of per­sónu­leg­ar.

Málið tók á sig aðra mynd á fimmtu­dag þegar for­seti Alþingis svar­aði fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírat­ar, um akst­urs­kostn­að. Í svari for­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­ur­greiðsl­urnar þáðu á síð­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, gekkst hins vegar við því í sam­tali við RÚV á föstu­dags­morgun að vera sá sem trónir á toppi list­ans. Hann fékk sam­tals 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar í fyrra, eða 385 þús­und krónur á mán­uði skatt­frjálst. Greiðsl­urnar til Ásmundar voru um 16 pró­sent af heild­ar­end­ur­greiðslum til þing­manna vegna akst­ur­s. 

Ekki liggur fyrir á þess­ari stundu hvaða aðrir þing­menn eru á topp tíu list­an­um.

Endurgreiðslur vegna aksturskostnaðar þingmanna

2013: Heild­ar­kostn­aður vegna akst­urs var 59,8 millj­ónir króna. Tíu efstu fengu 27,7 millj­ónir króna.

2014: Heild­ar­kostn­aður vegna akst­urs var 51,5 millj­ónir króna. Tíu efstu fengu 35,4 millj­ónir króna.

2015: Heild­ar­kostn­aður vegna akst­urs var 38,5 millj­ónir króna. Tíu efstu fengu 28,1 millj­ónir króna.

2016: Heild­ar­kostn­aður vegna akst­urs var 37,8 millj­ónir króna. Tíu efstu fengu 28,3 millj­ónir króna.

2017: Heild­ar­kostn­aður vegna akst­urs var 29,2 millj­ónir króna. Tíu efstu fengu 25,8 millj­ónir króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar