Hin umdeilda Roseanne

Bandaríska sjónvarpsstöðin ABC hefur tekið sjónvarpsþátt Roseanne Barr af dagskrá eftir svívirðilega rasískt tíst sem Roseanne sendi frá sér. Leikkonan hefur alltaf verið umdeild og Kjarninn rifjaði upp nokkur atvik þar sem Roseanne kom sér í vandræði.

Roseanne
Auglýsing

Banda­ríska sjón­varps­stöðin og fram­leið­and­inn ABC hefur tekið sjón­varps­þátt Ros­eanne Barr af dag­skrá eftir sví­virði­lega rasískt tíst sem Ros­eanne sendi frá sér. Sýn­ingar á tíundu þátta­röð­inni um hina umdeildu Ros­eanne Connor og fjöl­skyldu hennar hófust í mars, 21 ári eftir að sýn­ingum á níundu þátta­röð­inni lauk, og var henni almennt vel tek­ið.

Í tíst­inu tók Ros­eanne fyrir Valerie Jarrett, sem hún vís­aði til sem VJ, sem gegndi stöðu sér­staks ráð­gjafa Baracks Obama fyrr­ver­andi for­seta. Sagði hún Valerie vera afkvæmi Bræðra­lags múslima og kvik­mynd­anna um Apa­plánet­una.

Ros­eanne hefur síðar eytt tíst­inu og beðist afsök­un­ar. Það dugði þó ekki til og í yfir­lýs­ingu sjón­varps­stöðv­ar­innar þar sem til­kynnt var um að þætt­inum yrði hætt kom fram að tístið hefði verið bæði and­styggi­legt og við­bjóðs­legt. Til stóð að ráð­ast í fram­leiðslu á ell­eftu ser­í­unni en ekk­ert verður úr. Hún hefur síðar tíst nokkrum sinnum og beðið aðdá­endur sína að vor­kenna sér ekki. Að auki bað hún þá hund­urði sem vinna að þátt­unum en hafa nú misst vinn­una afsök­un­ar. Ann­ars staðar sagð­ist hún hafa tíst þetta um miðja nótt undir áhrifum róandi lyfs­ins Ambien og bað fólk um að grípa ekki til varnar fyrir hana þar sem tístið hafi verið óverj­andi.

Auglýsing

Ros­eanne hefur ávallt verið umdeild. Hún hóf feril sinn í uppi­standi en fékk síðar sinn eigin þátt sem sló aldeilis í gegn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mis­heppnað grín hennar fellur í grýttan jarð­veg en Kjarn­inn rifj­aði upp nokkur skipti sem Ros­eanne fór yfir strik­ið.



Árið 1990 bauð eig­andi hafn­ar­boltaliðs­ins San Diego Padres Ros­anne, sem þá hafði notið mik­illar vel­gengni eftir tvær ser­íur af þætti sín­um, til að koma og syngja þjóð­söng­inn fyrir leik liðs­ins. Ros­eanne ákvað að vera sjálfri sér lík og öskr­aði lagið frekar en söng. Að lok­inni sýn­ing­unni hrækti hún á jörð­ina og greip í klofið á sér og gerði þannig grín að hafn­ar­bolta­leik­mönn­um.

Ros­eanne sat fyrir hjá gyð­inga­tíma­rit­inu Heeb árið 2009 sem gerði út á háðsá­deil­ur. Þar kom hún fram í Hitler­s­bún­ingi og fékk á sig mikla gagn­rýni. Ros­eanne, sem er gyð­ings­trúar sjálf, sagð­ist í kjöl­farið hafa verið að gera grín að Hitler - ekki fórn­ar­lömbum hans.



Árið 2014 birti Ros­eanne heim­il­is­fang manns að nafni George Zimmerman á Twitt­er. Sá var hverf­is­vakt­maður og hafði skotið 17 ára dreng. Nið­ur­staða rann­sóknar máls­ins var sú að Zimmerman hafi skotið í sjálfs­vörn en Ros­eanne birti heim­il­is­fangs hans og for­eldra hans. Þau fóru síðar í mál við Ros­eanne og vildu meina að birt­ingin hafi gert það að verkum að þau þurftu að flýja heim­ili sitt og síðar yfir­gefa það alfar­ið. Mál­inu var vísað frá.

Það hefur ekki gengið nægi­lega vel á Twitter hjá Ros­eanne á þessu ári. Í mars gaf hún í skyn að einn af nem­endum Park­land skól­ans í Flór­ída sem lifðu af skotárás­ina þar og gengu kröfu­göngu í Was­hington til að herða skot­vopna­regl­ur, hefði heilsað að hætti nas­ista. Tístið féll í væg­ast sagt grýttan jarð­veg og var eytt - eins og svo mörgum tístum Ros­eanne.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnFanney Birna Jónsdóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar