Akstur Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, kostaði skattgreiðendur mest á fyrstu sex mánuðum ársins 2021. Alls keyrði Ásmundur fyrir 1,8 milljónir króna á tímabilinu, en aksturskostnaður hans samanstendur annars vegar af kostnaði vegna leigu á bílaleigubílum og hins vegar vegna eldsneytis sem hann hefur keypt á þá bíla. Enginn þingmaður keyrði fyrir hærri upphæð en Ásmundur á fyrri hluta yfirstandandi árs en hann er að meðaltali 300 þúsund krónur á mánuði.
Þetta má lesa út úr tölum Alþingis um kostnaðargreiðslur til þingmanna.
Ásmundur er ekki óvanur því að vera sá þingmaður sem fær mest endurgreitt frá Alþingi vegna aksturs. Hann hefur verið í fyrsta sæti yfir þá þingmenn sem keyra mest frá því að hann settist á þing árið 2013, en samtals hefur þingmaðurinn fengið 33,1 milljón króna endurgreiddar vegna aksturs á því tímabili.
Mestur var kostnaðurinn árið 2014 þegar Ásmundur keyrði fyrir 5,4 milljónir króna en þá keyrði hann um á eigin bíl og gerði kröfu á Alþingi vegna þeirrar notkunar.
Keyrði meira í ár en í fyrra
Eftir að akstursgreiðslur til þingmanna voru loks opinberaðar í fyrsta sinn snemma árs 2018, eftir að fjölmiðlar höfðu kallað eftir þeim árum saman, kom sérstaka Ásmundar í akstri í ljós og var mikið gagnrýnd. Í kjölfarið dró Ásmundur mikið úr akstrinum og nam endurgreiddur kostnaður hans á árinu 2018 2,5 milljónum króna. Það var lægsta upphæð sem Ásmundur hefur fengið endurgreidda vegna aksturs frá því að hann settist á þing. Þorri hans fór auk þess fram á bílaleigubíl, ekki bifreið Ásmundar, líkt og skrifstofa Alþingis hafði beðið þingmenn um að gera.
Ásmundur er í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi í komandi kosningum, en flokkurinn er með þrjá þingmenn í kjördæminu sem stendur.
Þrír þingmenn keyrðu fyrir meira en milljón
Skammt á eftir Ásmundi kemur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna og oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi í kosningunum sem fara fram í næsta mánuði. Hún keyrði fyrir rúmlega 1,6 milljónir króna á fyrri hluta árs. Sá munur er á keyrslu þeirra að Bjarkey notaði eigin bíl fyrir um eina milljón króna.
Eini þingmaðurinn fyrir utan þau tvö sem keyrði fyrir meira en milljón krónur á fyrstu sex mánuðum ársins var Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Alls keyrðu þingmenn landsins fyrir 13,7 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2021. Í fyrra keyrðu þeir fyrir 23,2 milljónir króna sem var umtalsvert minna en árið 2019 þegar akstur þeirra sem greiddur var úr sameiginlegum sjóðum kostaði 30,2 milljónir króna. Kostnaðurinn var mjög svipaður árið 2018, eða 30,7 milljónir króna, og árið 2017, þegar hann var 29,2 milljónir króna. Hann dróst því saman um rúmlega 20 prósent á árinu 2020 miðað við árið áður en yrði að óbreyttu meiri í ár en í fyrra.
Fá ekki endurgreiðslur fyrir síðustu sex vikur kjörtímabils
Í apríl síðastliðnum mælti Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingi, fyrir frumvarpi um þingfarakaup og -kostnað alþingismanna. Frumvarpið, sem var lagt fram af öllum sem sitja í forsætisnefnd og áheyrnarfulltrúum hennar, að Þorsteini Sæmundssyni, fulltrúa Miðflokksins undanskildum, hafði þann tilgang að takmarka rétt þingmanna til endurgreiðslu ferðakostnaðar í aðdraganda kosninga til Alþingis.
Samkvæmt frumvarpinu átti réttur þingmanna til endurgreiðslu á aksturskostnaði falla niður sex vikum fyrir kjördag, með tilteknum undanþágum þó. Takmarkanir áttu til að mynda ekki ná til þeirra þingmanna sem ætluðu ekki að gefa kost á sér áfram til setu á þingi og ef þingmaður sem verður í framboði þarf að sinna opinberum erindagjörðum á vegum Alþingis innan ofangreinds tímaramma þá má hann áfram fá aksturskostnaðinn endurgreiddan.
Kostnaður jókst í kringum kosningar
Frumvarpið er lagt fram af ástæðu. Þingmenn hafa fengið mun hærri endurgreiðslur vegna aksturskostnaðar á þeim tímabilum þar sem kosningar fara fram en öðrum. Það bendir til þess að sitjandi þingmenn sem sækjast eftir endurkjöri séu að láta Alþingi greiða þann reikning. Aðrir sem eru að sækjast eftir sæti á listum í t.d. prófkjörum, eða eru að bjóða fram fyrir nýja flokka, geta ekki gert slíkt.
Steingrímur ræddi þessa stöðu í sjónvarpsþætti Kjarnans í febrúar 2018. Þar sagði hann að ef menn hafi rukkað þingið fyrir akstur vegna prófkjörsþátttöku þá væri eðlilegast að þeir endurgreiddu þær greiðslur. „Eigum við bara að hafa það skýrt að þátttaka í prófkjörum er ekki tilefni til að senda inn eigin reikning?“