Ásmundur keyrir enn og aftur mest – Kostnaðurinn 300 þúsund á mánuði í ár

Frá því að Ásmundur Friðriksson settist á þing 2013 og fram á mitt þetta ár hefur hann fengið 33,1 milljónir króna í greiddan aksturskostnað frá Alþingi. Þingmenn mega nú ekki rukka þingið vegna aksturs í aðdraganda kosninga.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

Akstur Ásmundar Frið­riks­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, kost­aði skatt­greið­endur mest á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2021. Alls keyrði Ásmundur fyrir 1,8 millj­ónir króna á tíma­bil­inu, en akst­urs­kostn­aður hans sam­anstendur ann­ars vegar af kostn­aði vegna leigu á bíla­leigu­bílum og hins vegar vegna elds­neytis sem hann hefur keypt á þá bíla. Eng­inn þing­maður keyrði fyrir hærri upp­hæð en Ásmundur á fyrri hluta yfir­stand­andi árs en hann er að með­al­tali 300 þús­und krónur á mán­uði.

Þetta má lesa út úr tölum Alþingis um kostn­að­ar­greiðslur til þing­manna. 

Ásmundur er ekki óvanur því að vera sá þing­maður sem fær mest end­ur­greitt frá Alþingi vegna akst­urs. Hann hefur verið í fyrsta sæti yfir þá þing­menn sem keyra mest frá því að hann sett­ist á þing árið 2013, en sam­tals hefur þing­mað­ur­inn fengið 33,1 milljón króna end­ur­greiddar vegna akst­urs á því tíma­bil­i. 

Mestur var kostn­að­ur­inn árið 2014 þegar Ásmundur keyrði fyrir 5,4 millj­ónir króna en þá keyrði hann um á eigin bíl og gerði kröfu á Alþingi vegna þeirrar notk­un­ar. 

Keyrði meira í ár en í fyrra

Eftir að akst­urs­greiðslur til þing­manna voru loks opin­ber­aðar í fyrsta sinn snemma árs 2018, eftir að fjöl­miðlar höfðu kallað eftir þeim árum sam­an, kom sér­staka Ásmundar í akstri í ljós og var mikið gagn­rýnd. Í kjöl­farið dró Ásmundur mikið úr akstr­inum og nam end­ur­greiddur kostn­aður hans á árinu 2018 2,5 millj­ónum króna. Það var lægsta upp­hæð sem Ásmundur hefur fengið end­ur­greidda vegna akst­urs frá því að hann sett­ist á þing. Þorri hans fór auk þess fram á bíla­leigu­bíl, ekki bif­reið Ásmund­ar, líkt og skrif­stofa Alþingis hafði beðið þing­menn um að ger­a. 

Auglýsing
Árið 2019 jókst akst­urs­kostn­aður hans á ný og var um 3,8 millj­ónir króna. Í fyrra, þegar heims­far­aldur geis­aði sem tak­mark­aði öll ferða­lög, dróst akstur Ásmundar veru­lega saman og kostn­aður hans var 2,2 millj­ónir króna. Hann hefur því keyrt fyrir rúm­lega 80 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem akstur hans kost­aði á fyrri hluta yfir­stand­andi árs. 

Ásmundur er í þriðja sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ing­um, en flokk­ur­inn er með þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu sem stend­ur. 

Þrír þing­menn keyrðu fyrir meira en milljón

Skammt á eftir Ásmundi kemur Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna og odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kosn­ing­unum sem fara fram í næsta mán­uði. Hún keyrði  fyrir rúm­lega 1,6 millj­ónir króna á fyrri hluta árs. Sá munur er á keyrslu þeirra að Bjarkey not­aði eigin bíl fyrir um eina milljón króna. 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir keyrði næst mest allra þingmanna. Mynd: Bára Huld Beck

Eini þing­mað­ur­inn fyrir utan þau tvö sem keyrði fyrir meira en milljón krónur á fyrstu sex mán­uðum árs­ins var Sig­urður Páll Jóns­son, þing­maður Mið­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. 

Alls keyrðu þing­menn lands­ins fyrir 13,7 millj­ónir króna á fyrri hluta árs­ins 2021.  Í fyrra keyrðu þeir fyrir 23,2 millj­ónir króna sem var umtals­vert minna en árið 2019 þegar akstur þeirra sem greiddur var úr sam­eig­in­legum sjóðum kost­aði 30,2 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn var mjög svip­aður árið 2018, eða 30,7 millj­ónir króna, og árið 2017, þegar hann var 29,2 millj­ónir króna. Hann dróst því saman um rúm­lega 20 pró­sent á árinu 2020 miðað við árið áður en yrði að óbreyttu meiri í ár en í fyrra. 

Fá ekki end­ur­greiðslur fyrir síð­ustu sex vikur kjör­tíma­bils

Í apríl síð­ast­liðnum mælti Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingi, fyr­ir  frum­varpi um þing­fara­kaup og -kostnað alþing­is­manna. Frum­varp­ið, sem var lagt fram af öllum sem sitja í for­sætis­nefnd og áheyrn­ar­full­trúum henn­ar, að Þor­steini Sæmunds­syni, full­trúa Mið­flokks­ins und­an­skild­um, hafði þann til­gang að tak­marka rétt þing­manna til end­ur­greiðslu ferða­kostn­aðar í aðdrag­anda kosn­inga til Alþing­is. 

Sam­kvæmt frum­varp­inu átti réttur þing­manna til end­ur­greiðslu á akst­urs­kostn­aði falla niður sex vikum fyrir kjör­dag, með til­teknum und­an­þágum þó. Tak­mark­anir áttu til að mynda ekki ná til þeirra þing­manna sem ætl­uðu ekki að gefa kost á sér áfram til setu á þingi og ef þing­maður sem verður í fram­boði þarf að sinna opin­berum erinda­gjörðum á vegum Alþingis innan ofan­greinds tímara­mma þá má hann áfram fá akst­urs­kostn­að­inn end­ur­greidd­an. 

Auglýsing
Frumvarpið varð að lögum í júní síð­ast­liðn­um. Síð­asti dag­ur­inn sem þing­menn gátu rukkað Alþingi um ferða­kostnað sinn á þessu kjör­tíma­bili var því síð­ast­lið­inn laug­ar­dag­ur. 

Kostn­aður jókst í kringum kosn­ingar

Frum­varpið er lagt fram af ástæðu. Þing­menn hafa fengið mun hærri end­­ur­greiðslur vegna akst­­ur­s­­kostn­aðar á þeim tíma­bilum þar sem kosn­­ingar fara fram en öðr­­um. Það bendir til þess að sitj­andi þing­menn sem sækj­ast eftir end­ur­kjöri séu að láta Alþingi greiða þann reikn­ing. Aðrir sem eru að sækj­ast eftir sæti á listum í t.d. próf­kjörum, eða eru að bjóða fram fyrir nýja flokka, geta ekki gert slíkt. 

Stein­grímur ræddi þessa stöðu í sjón­varps­þætti Kjarn­ans í febr­úar 2018. Þar sagði hann að ef menn hafi rukkað þingið fyrir akstur vegna próf­­kjör­s­þátt­­töku þá væri eðli­­leg­­ast að þeir end­­ur­greiddu þær greiðsl­­ur. „Eigum við bara að hafa það skýrt að þátt­­taka í próf­­kjörum er ekki til­­efni til að senda inn eigin reikn­ing?“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar