Fjórir miðjuflokkar hafa bætt við sig næstum tíu prósentustigum á kjörtímabilinu
Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn eru í brekku þegar einn dagur er til kosninga. Báðir hafa tapað fylgi á kjörtímabilinu og mælast nú í sinni lægstu stöðu frá því að kosningaspáin var fyrst keyrð í vor. Níu flokkar mælast inni á þingi.
Degi fyrir kosningar sýnir kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar Sjálfstæðisflokk með sitt minnsta fylgi frá því að spáin var fyrst keyrð fyrir þessar kosningar. Það mælist nú 21,2 prósent og þessi stærsti flokkur landsins hefur samtals misst 3,1 prósentustig af stuðningi frá mánaðamótum.
Verði þetta niðurstaða kosninganna á morgun mun Sjálfstæðisflokkurinn fá 4,1 prósentustigi minna en hann fékk árið 2017 og 2,5 prósentustigi minna en flokkurinn fékk 2009, í fyrstu kosningum hans eftir að Bjarni Benediktsson tók við flokknum og þeim sem skiluðu honum verstu niðurstöðu hans frá upphafi.
Vinstri græn eru sömuleiðis að mælast í miklum vanda. Frá því seint í ágústmánuði hefur fylgið lækkað um 2,9 prósentustig og mælist nú 10,8 prósent. Það er minnsta fylgi sem flokkur Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra hefur mælst með í aðdraganda komandi kosninga. Frá 2017 hafa Vinstri græn, samkvæmt þessu, tapað 6,1 prósentustigi eða yfir þriðjungi af fylgi sínu.
Þessi staða er athyglisverð í ljósi þess að tæplega 41 prósent þeirra sem svöruðu könnun Íslensku kosningarannsóknarinnar undanfarna tíu daga vildu Katrínu Jakobsdóttur sem næsta forsætisráðherra. Enginn annar stjórnmálamaður kemst nálægt því að njóta jafn mikinn stuðnings í það starf. Niðurstöðurnar voru meira að segja þannig að fleiri þeirra sem ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn styðja Katrínu sem næsta forsætisráðherra en Bjarna Benediktsson, formann þess flokks.
Þriðji flokkurinn sem tapar umtalsverðu fylgi frá síðustu kosningum, miðað við stöðu mála í kosningaspánni, er Miðflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Alls segjast 6,4 prósent kjósenda ætla að kjósa hann sem er 4,5 prósentustigum minna en flokkurinn fékk þegar talið var upp úr kjörkössunum í október 2017 og Miðflokkurinn varð sá flokkur sem tók til sín mest fylgi í fyrstu kosningunum sem hann hefði tekið þátt í.
Fylgið leitar inn á miðjuna
Kosningaspáin sýnir að atkvæði eru að leita inn á miðjuna í stjórnmálunum. Ef síðustu niðurstöður hennar verða niðurstöður kosning þá styrkja fjórir flokkar hennar sig allir frá árinu 2017.
Viðreisn myndi bæta við sig 3,4 prósentustigum miðað við síðustu spá, sem sýnir flokkinn með 10,1 prósent fylgi.
Framsóknarflokkurinn yrði næst stærsti flokkur landsins með 13,1 prósent fylgi sem þýðir að hann myndi bæta við sig 2,8 prósentustigum. Píratar bæta við sig 2,7 prósentustigum frá kosningunum 2017 og mælast með 11,9 prósent fylgi og Samfylkingin bætir við sig 0,8 prósentustigum frá þeim tíma og mælist með 12,9 prósent fylgi.
Samanlagt hafa þessir fjórir miðjuflokkar því bætt við sig 9,7 prósentustiga fylgi á kjörtímabilinu miðað við síðustu keyrðu kosningaspá.
Sósíalistaflokkurinn tekið mest til sín
Sá einstaki flokkur sem tekið hefur til sín mest fylgi frá því í október 2017 er Sósíalistaflokkur Íslands. Hann mælist nú með 6,5 prósent fylgi en hefur aðeins misst flugið síðustu daga eftir að hafa um tíma mælst með yfir átta prósent stuðning. Í ljósi þess að um fyrstu þingkosningar hans er að ræða liggur þó fyrir að hann er sá flokkur sem hefur laðað flesta nýja kjósendur að sér.
Flokkur fólksins má vel við una stöðu sína, sem er nálægt kjörfylgi hans 2017. Nú segjast 6,5 prósent kjósenda styðja flokkinn sem er 0,4 prósentustigum færri en kusu hann fyrir fjórum árum. Þegar horft er til þess að Flokkur fólksins mældist fyrst yfir fimm prósent markinu í kosningaspá Kjarnans í byrjun þessarar viku liggur fyrir að flokkurinn virðist vera að toppa á réttum tíma. hann dalar þó lítillega á milli daga, en stuðningur við hann mældist 6,8 prósent í gær.
Gætu kippt Viðreisn með
Líkurnar á því að ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks haldi meirihluta mælast nú 33 prósent, en þær voru yfir 60 prósent fyrir rétt rúmum mánuði. Flokkarnir þrír gætu þó bætt Viðreisn við stjórnarmynstrið en 91 prósent líkur eru á því að slík fjögurra flokka stjórn næði meirihluta. Líkurnar á því að mynda mið-hægri stjórn Framsóknarflokks, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks eru um 30 prósent miðað við niðurstöðu nýjustu kosningaspárinnar og líkurnar á því að mynda stjórn Vinstri grænna, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks eru einungis 14 prósent.
Ef mynda á fjögurra flokka ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokks eru mestar líkur á því að mynda slíka frá miðju til vinstri, með aðkomu Vinstri grænna, Samfylkingar, Pírata og Framsóknarflokks. Líkurnar á þeim meirihluta eru 54 prósent. Ef Vinstri grænum yrði skipt út fyrir Viðreisn fara líkurnar niður í 46 prósent og ef allir fimm miðju- og hægri flokkarnir myndu ákveða að vinna saman eru 97 prósent líkur á því að þeir nái meirihluta.
Reykjavíkurmódelið svokallaða, sem samanstendur af Vinstri grænum, Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn, mælist með einungis 29 prósent líkur á því að ná meirihluta.
Líkurnar eru fengnar með því að framkvæma 100 þúsund sýndarkosningar. Í hverri sýndarkosningu er vegið meðaltal þeirra skoðanakannana sem kosningaspáin nær yfir hverju sinni líklegasta niðurstaðan en sýndarniðurstaðan getur verið hærri eða lægri en þetta meðaltal og hversu mikið byggir á sögulegu fráviki skoðanakannana frá úrslitum kosninga.
Þær kannanir sem liggja til grundvallar nýjustu kosningaspánni eru eftirfarandi:
- Netpanell ÍSKOS/Félagsvísindastofnunnar 13 – 22. september (14,1 prósent)
- Skoðanakönnun Prósent í samstarfi við Fréttablaðið 17 – 21. september (15,0 prósent)
- Skoðanakönnun MMR í samstarfi við Morgunblaðið 20 – 21. september (vægi 19,7 prósent)
- Þjóðarpúls Gallup 13 -19. september (vægi 22,3 prósent)
- Skoðanakönnun Maskínu í samstarfi við fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis 15 – 22. september (28,9 prósent)
Sýndarkosningarnarnar sýna að nær engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa niðurstöðu. Einungis tvö mynstur ná eitt prósent líkum, tveggja flokka stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, sem er pólitískur ómöguleiki, og stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
Hvað er kosningaspáin?
Fyrir hverjar kosningar um allan heim birta fjölmiðlar gríðarlegt magn af upplýsingum. Þessar upplýsingar eru oftar en ekki tölfræðilegar, byggðar á skoðanakönnunum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upplifir stjórnmálin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórnmálafræðingar og fjölmiðlar keppast svo við að túlka niðurstöðurnar og veita almenningi enn meiri upplýsingar um stöðuna í heimi stjórnmálanna.
Allar þessar kannanir og allar mögulegar túlkanir á niðurstöðum þeirra kunna að vera ruglandi fyrir hinn almenna neytanda. Einn kannar skoðanir fólks yfir ákveðið tímabil og annar kannar sömu skoðanir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könnunin er nákvæmari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vandinn er að hinn almenni kjósandi hefur ekki forsendur til að meta áreiðanleika hverrar könnunar.
Þar kemur kosningaspáin til sögunnar.
Kosningaspálíkan Baldurs Héðinssonar miðar að því að setja upplýsingarnar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyrirliggjandi skoðanakannanir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosninga. Niðurstöður spálíkansins eru svo birtar hér á Kjarnanum reglulega í aðdraganda kosninga.
Lestu meira:
-
11. janúar 2023Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
-
10. janúar 2023Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
-
10. janúar 2023Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
-
8. janúar 2023Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira verðtryggt á einum mánuði frá því fyrir faraldur
-
8. janúar 2023Sögulegur en dýrkeyptur kosningasigur þingforsetans
-
7. janúar 2023BDSM-félagið fagnar því að loksins eigi að afnema klámbann
-
7. janúar 2023Litlu fjölmiðlarnir með eldspýturnar
-
7. janúar 2023Með hverjum stendur þú?
-
6. janúar 2023Tíu stærstu útgerðirnar halda á 56 prósent af öllum kvóta
-
6. janúar 2023Guðrún Hafsteinsdóttir segist taka við dómsmálaráðuneytinu í mars