Konungssinnar eyða mörgum milljörðum í varning vegna krýningarafmælis drottningar

Áætlað er að Bretar muni eyða yfir 60 milljörðum króna í konunglegan varning vegna krýningarafmælis drottningar sem haldið verður upp á með fjögurra daga hátíðarhöldum. Tebollar, diskar með gyllingu og spiladósir eru meðal konunglegra muna sem rjúka út.

Spennan magnast fyrir 70 ára krýningarafmæli Elísabetar Englandsdrottningar sem fagnað verður með ýmsum hætti 2. - 5. júní.
Spennan magnast fyrir 70 ára krýningarafmæli Elísabetar Englandsdrottningar sem fagnað verður með ýmsum hætti 2. - 5. júní.
Auglýsing

Fjög­urra daga hátíð­ar­höld verða í Bret­landi í kom­andi viku í til­efni af 70 ára krýn­ing­araf­mæli Elísa­betar Eng­lands­drottn­ing­ar. Hátíð­ar­höldin eru sér­stak­lega veg­leg þar sem opin­berum afmæl­is­degi drottn­ing­ar, sem varð 96 ára í apr­íl, verður fagnað sam­tím­is.

Hátíð­ar­höldin hefj­ast á afmæl­is­skrúð­göngu drottn­ingar (e. Troop­ing the Colour) næst­kom­andi fimmtu­dag, 2. júní, en alls verða 2.429 almennir við­burðir í boði víðs­vegar um Bret­land. Garð­veislur og götupartý eru einnig ómissandi hluti af hátíð­ar­höld­unum og nú þegar hafa 2.653 skráð slíka fögn­uði í gagna­grunn á sér­stakri heima­síðu hins opin­bera sem sér um skipu­lagn­ingu krýn­ing­ar­há­tíð­ar­inn­ar.

Auglýsing

Hápunktur kon­ungs­sinna og kon­ung­legra safn­ara

Segja má að hátíðin sé hápunktur kon­ungs­sinna og kon­ung­legra safn­ara þar sem nú gefst tæki­færi til að sanka að sér alls kyns kon­ung­legum mun­um. Gert er ráð fyrir að Bretar muni eyða um 408 millj­ónum punda, eða sem nemur rúm­lega 66 millj­örðum króna, í ýmis konar varn­ing tengdan krýn­ing­ar­há­tíð­inni, allt frá tebollum til spila­dósa.

Elísa­bet II Eng­lands­drottn­ing tók við bresku krún­unni í febr­úar 1952 eftir að faðir henn­ar, Georg sjötti, féll frá. Hún er fyrsti breski þjóð­höfð­ing­inn sem nær þeim áfanga að ríkja í meira en 70 ár.

Elísa­bet varð 96 ára 21. apríl og hefð er fyrir því að halda opin­ber­lega upp á afmæli þjóð­höfð­ingja í júní. Um er að ræða yfir 250 ára gamla hefð sem má rekja allt aftur til valda­tíðs Georgs II á 18. öld. Hann átti afmæli 30. októ­ber en vildi halda upp á afmælið að sumri til.

Í ár er blásið til fjög­urra daga hátíð­ar­halda, 2.-5. júni, þar sem krýn­ing­araf­mæl­inu og opin­berum afmæl­is­degi drottn­ingar er fagnað sam­rím­is. Bretar fá því tvo auka frí­daga sem verður vænt­an­lega tekið fagn­andi, óháð því hvort fólk lítur á sig sem kon­ungs­sinna eða ekki.

Nýtt drottn­ing­ar­stell í til­efni af krýn­ing­araf­mæl­inu

Bresk fyr­ir­tæki taka hátíð­inni einnig fagn­andi þar sem hátíðin mun ýta undir versl­un, ekki síst á varn­ingi sem teng­ist krýn­ing­araf­mæli drottn­ing­ar. Þannig hefur postu­líns­fram­leið­and­inn Halycon Days í Stoke-on-Trent ráðið starfs­fólk ein­göngu til að sjá um sér­pant­anir í tengslum við krýn­ing­araf­mæl­ið.

Halycon Days er eitt 14 fyr­ir­tækja sem hefur heim­ild til að fram­leiða öll þrjú kon­ung­legu mat­ar­stell­in, það er drottn­ing­ar­stellið auk stella í nafni Fil­ippusar prins, her­tog­ans af Edin­borg og Karls bretaps­ins, prins­ins af Wales. Meiri­hluti af borð­bún­að­inum sem verður gef­inn út í til­efni af 70 ára krýn­ing­araf­mæli drottn­ingar er sér­stak­lega ætl­aður söfn­ur­um.

Stellið sam­anstendur af ýmsum munum á breiðu verð­bili. Ódýr­asti hlut­ur­inn, bolli, nokkur konar kaffi­fant­ur, kostar 29 pund, um 4.700 krón­ur. Mat­ar­diskar með 22 karata gyll­ingu kosta 150 pund stykk­ið, rúmar 24 þús­und krónur en dýr­asti mun­ur­inn í stell­inu er spila­dós sem kostar 1.950 pund, eða sem nemur rúmum 317 þús­und krón­um. Eft­ir­spurnin er svo sann­ar­lega til staðar þar sem sumar vörur selj­ast upp í forpöntun áður en þær ná í vöru­hill­ur.

Vonar að drottn­ingin fái sér tesopa úr nýja stell­inu

„Við erum búin að gefa út tvær vöru­línur og þær seld­ust strax upp,“ segir Pamela Harper, fram­kvæmda­stjóri Halycon Days, í sam­tali við BBC. Að hennar mati er útgáfa á vöru­línum eins og mat­ar­stelli í til­efni af krýn­ing­araf­mæli drottn­ingar kjörið tæki­færi til að halda dvín­andi list­formi á lífi. „Áhugi okkar á þessu kemur meðal ann­ars til þar sem við viljum við­halda þessum hæfi­leikum innan bresku þjóð­ar­inn­ar,“ segir Pamela.

Þegar mat­ar­stellið var til­búið var það flutt í Windsor-kast­ala þar sem drottn­ingin var fengin að leggja mat á hvort það stæð­ist kröfur henn­ar. „Ég hef aldrei verið jafn stressuð á ævinn­i,“ segir Pamela. Stellið fékk blessun drottn­ingar og er fram­leiðslan nú komin á fullt fyrir hátíð­ar­höldin eftir helgi. Pamela seg­ist vona að drottn­ingin muni fá sér te úr bolla úr stell­inu við og við.

Elísabet Englandsdrottning tekur út stellið sem framleitt er sérstaklega í tilefniaf 70 ára krýningarafmæli drottningar. Mynd: Halcyon Days

Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar í Bret­landi áætlar að Bretar muni eyða í kringum 408 millj­ónum punda, and­virði rúm­lega 66 millj­arða, í tengslum við krýn­ing­araf­mælið næstu daga. Þar af er áætlað að um 281,6 millj­ónir punda, eða sem nemur rúmum 45 millj­örð­um, fari í ýmis konar kon­ung­legan varn­ing tengdan hátíð­ar­höld­un­um.

Auk kon­ung­legra mat­ar­stella gegnir breski fán­inn veiga­miklu hlut­verki í hátíð­ar­höld­unum sem fram undan eru. Starfs­fólk fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­is­ins Flying Colours Flag­ma­kers í smá­bænum Knares­borough er í óða önn að und­ir­búa hátíð­ar­höldin næstu daga. „Við náum varla utan um þetta eins og stend­ur. Það hrúg­ast inn pant­anir á net­inu og sím­inn hringir stans­laust,“ segir Andy Omrod, eig­andi fána­fyr­ir­tæk­is­ins.

Eigum það til að henda sög­unni í ruslið

En hvað verður svo um alla fán­ana, og aðra kon­ung­lega muni sem telj­ast ekki nógu mik­il­vægir til að rata í söfn kon­ungs­sinna?

Sagn­fræð­ing­ur­inn Robert Opie stendur fyrir sýn­ingu á safni í London, Museum of Brands, sem varð­veitir neyslu­menn­ingu allt frá Vikt­or­íu­tím­anum til dags­ins í dag. Á sýn­ing­unni verður hægt að skoða um 200 kon­ung­lega muni sem útbúnir hafa verið í tengslum við merk tíma­mót í kon­ungs­fjöl­skyld­unni.

„Við lifum í neyslu­heimi og hendum alls konar hlutum í ruslið, en sagan býr einmitt í hlutum sem þessum,“ segir Opie, sem hvetur fólk til að fara vel með mun­ina sem það kaupir í til­efni af krýn­ing­araf­mæli drottn­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnErla María Markúsdóttir
Meira úr sama flokkiErlent