Ríkustu tíu prósent landsmanna tóku til sín 81 prósent fjármagnstekna
Fjármagnstekjur einstaklinga jukust gríðarlega milli áranna 2020 og 2021, eða um 65 milljarða króna. Ríkustu tíu prósent landsmanna taka meginþorra fjármagnstekna til sín, eða 81 prósent þeirra. Alls er um að ræða tekjur upp á tæplega 147 milljarða króna. Ráðstöfunartekjur þessa hóps hækkuðu að meðaltali mest allra tekjuhópa á árinu 2021.
Þau tíu prósent landsmanna sem höfðu mestar fjármagnstekjur á síðasta ári tóku til sín 81 prósent allra fjármagnstekna einstaklinga á árinu 2021. Alls höfðu einstaklingar 181 milljarð króna í fjármagnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíundin, sem telur nokkur þúsund fjölskyldur, var með tæplega 147 milljarða króna í fjármagnstekjur á síðasta ári.
Þetta kemur fram í greining á álagningu opinberra gjalda einstaklinga eftir tekjutíundum sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi 22. júní síðastliðinn.
Heildarfjármagnstekjur einstaklinga hækkuðu um 57 prósent milli ára, eða alls um 65 milljarða króna. Mest hækkaði söluhagnaður hlutabréfa sem var 69,5 milljarðar króna á árinu 2021. Ljóst má vera að þorri þeirrar aukningar lenti hjá efstu tekjutíundinni, sem er sá hópur sem á meginþorra hlutabréfa í eigu einstaklinga á Íslandi.
Samtals fengu 28.673 fjölskyldur álagðan fjármagnstekjuskatt og fjölgaði þeim um 3.278 frá fyrra ári.
Heildarfjöldi framteljenda var 317.567 í fyrra og því greiddu um níu prósent framteljenda fjármagnstekjuskatt.
Morgunblaðið fékk minnisblaðið fyrst
Þegar umfjöllun um greiningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á álagningu opinberra gjalda eftir tekjutíundum út frá skattframtölum var birt á vef stjórnarráðsins 23. júní síðastliðinn var lögð áhersla á að heildartekjur allra tekjuhópa hefðu hækkað og kaupmáttur aukist. Þar sagði enn fremur að skattar hefðu lækkað á alla tekjuhópa nema þá sem höfðu hæstu tekjurnar.
Þar var þó ekki að finna upplýsingar um hversu stórt hlutverk stórauknar fjármagnstekjur leika í þessari niðurstöðu, en þær hafa aukist gríðarlega á tímum kórónuveirufaraldursins, meðal annars vegna ýmissa aðgerða sem stjórnvöld og Seðlabanki Íslands gripu til.
Kjarninn óskaði eftir að fá minnisblað um greininguna sem lagt var fyrir ríkisstjórn afhent skömmu eftir að ríkisstjórnarfundinum lauk 22. júní. Það barst ekki fyrr en eftir ítrekun daginn eftir, þann 23. júní, skömmu áður en ráðuneytið birti sína túlkun á tölunum á vef stjórnarráðsins.
Í millitíðinni hafði Morgunblaðinu hins vegar verið afhent minnisblaðið og það birti frétt upp úr því í prentútgáfu sinni og á vef með fyrirsögninni „Tekjuhæstu greiða um helming skatta“. Sá fjölmiðill, sem endurspeglaði að öllu leyti túlkun ráðuneytisins á niðurstöðum greiningarinnar í frétt sinni, fékk því forskot á aðra miðla þegar kom að birtingu á efninu. Þegar leitað var skýringa á þessu hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu fengust þau svör að samskiptaleysi hefði verið um að kenna.
Stutt er síðan að Bankasýsla ríkisins, stofnun sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið, ákvað að afhenda Morgunblaðinu einum fjölmiðla fyrirfram tilkynningu um að lögfræðilegur ráðgjafi hennar hefði komist að þeirri niðurstöðu að jafnræðis hafi verið gætt við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Ráðstöfunartekjur efstu tekjutíundar hækkuðu mest
Fjármagnstekjur dreifast mun ójafnar en launatekjur. Þær lendi mun frekar hjá tekjuhæstu hópum landsins, sem eiga mestar eignir.
Í minnisblaði um greininguna sem lagt var fyrir ríkisstjórn er þetta staðfest. Þar kemur fram að hækkandi skattgreiðslur efstu tekjutíundarinnar séu fyrst og síðast tilkomnar vegna þess að fjármagnstekjur þeirra hafa stóraukist, enda greiðir þessi hópur 87 prósent af öllum fjármagnstekjuskatti. Þessar auknu tekjur gerðu það að verkum að innheimtur fjármagnstekjuskattur jókst um 73 prósent, eða 16,3 milljarða króna, milli áranna 2020 og 2021.
Heildartekjur, hvort sem þær eru laun vegna vinna eða fjármagnstekjur mynda, auk bóta, ráðstöfunartekjur einstaklinga. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hækkaði að meðaltali um 5,1 prósent á árinu 2021 og náði sú aukning yfir allar tekjutíundir. Í minnisblaði ráðuneytisins segir hins vegar: „Mikil aukning fjármagnstekna gerir það að verkum að meðaltal efstu tíundarinnar hækkar mest.“
Þessar upplýsingar, að meðaltal ráðstöfunartekna hafi hækkað mest hjá tekjuhæstu tíu prósent þjóðarinnar, er ekki að finna í umfjöllun um greininguna á vef stjórnarráðsins. Þess í stað eru birtar upplýsingar um miðgildi kaupmáttar ráðstöfunartekna, sem sýna allt aðra mynd en meðaltal myndi sýna. Í umfjölluninni er heldur ekki minnst á að 81 prósent allra fjármagnstekna hafi ratað til efstu tekjutíundarinnar á árinu 2021.
Skattafsláttur sem lendir að mesta hjá ríkasta hópnum
Skipta má fjármagnstekjum í arð, vexti, leigu og söluhagnað. Þeir sem græða á því að nota peninganna sína í fjárfestingar borga fjármagnstekjuskatt. Sá skattur er 22 prósent, sem er mun lægra hlutfall en greitt er af t.d. launatekjum, þar sem skatthlutfallið er frá 31,45 til 46,25 prósent eftir því hversu háar tekjurnar eru.
Nokkrar breytingar voru gerðar í álagningu fjármagnstekjuskatts í upphafi árs 2021. Eftir þær þarf til að mynda ekki að greiða skatt af vöxtum, arði og söluhagnaði hlutabréfa á skipulegum verðbréfamarkaði sem var undir 300 þúsund krónum og frítekjumark hjóna var hækkað upp í 600 þúsund krónur. Í ljósi þess að tekjuhæstu tíu prósent landsmanna eiga þorra þeirra hlutabréfa sem einstaklingar eiga hérlendis liggur fyrir að þessi skattafsláttur lendir að uppistöðu hjá þeim hópi.
Auk þess er einungis helmingur af útleigu íbúðarhúsnæðis til búsetu leigjanda og sem fellur undir húsaleigulög skattskyldur ef ein íbúð er leigð út. Sá hópur sem er líklegastur til að eiga fleiri en eina íbúð, og því stunda útleigu íbúðarhúsnæðis, er efsta tekjutíundin.
Arðgreiðslur til einstaklinga 63,7 milljarðar
Það voru fleiri tegundir af fjármagnstekjum en sala hlutabréfa sem jukust á árinu 2021.
Tekjur einstaklinga af arðgreiðslum voru til að mynda 63,7 milljarðar króna í fyrra og jukust um 23,8 prósent. Aukningin stafaði aðallega af arði innlendra hlutabréfa sem jókst um 19,8 milljarða króna á meðan arður af erlendum hlutabréfum minnkaði um 7,5 milljarða króna.
Arðgreiðslur síðasta árs voru greiddar út vegna frammistöðu fyrirtækja á árinu 2020, þegar kórónuveirufaraldurinn herjaði af fullum krafti á heiminn og ríkissjóður var rekinn með 144 milljarða króna halla, aðallega vegna umfangsmikilla efnahagsaðgerða sem gripið var til vegna faraldursins og tekjutaps sem rekja mátti til hans. Í fyrra nam hallarekstur ríkissjóðs 130 milljörðum króna og því er samanlagt tap hans á þeim tveimur árum sem kórónuveirufaraldurinn stóð yfir 274 milljarðar króna.
Auk þeirra efnahagsaðgerða sem stjórnvöld gripu til, sem fólu meðal annars í sér margháttaðar styrktargreiðslur til fyrirtækja og veitingu á vaxtalausum lánum í formi frestaðra skattgreiðslna, þá afnam Seðlabanki Íslands hinn svokallaða sveiflujöfnunarauka sem jók útlánagetu banka landsins um mörg hundruð milljarða króna og stýrivextir voru lækkaðir niður í 0,75 prósent. Þeir höfðu aldrei verið lægri. Þessar örvunaraðgerðir gerðu það að verkum að tilfærsla varð á fjármunum til fjármagnseigenda.
Til viðbótar við ofangreindar fjármagnstekjur höfðu einstaklingar alls 26,5 milljarða króna tekjur af vöxtum milli ára, sem er hækkun upp á 2,6 milljarða króna frá árinu 2020. Sú hækkun stafar aðallega af því að vextir á verðbréfum hækkuðu um fimm milljarða króna en vextir af innstæðum í bönkum drógust saman um 2,4 milljarða króna milli ára vegna lægri stýrivaxta.
Þá námu leigutekjur alls 16,4 milljörðum króna og hækkuðu um 8,6 milljarða króna milli ára, en tæplega átta þúsund fjölskyldur gáfu upp leigutekjur. Það eru 5,2 prósent fleiri en það gerðu árið 2020.
Aðgerðir gegn skattsvikum fjármagnseigenda boðaðar
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá 30. nóvember 2021 sagði að skattmatsreglur verði endurskoðaðar og að komið verði í veg fyrir „óeðlilega og óheilbrigða hvata til stofnunar einkahlutafélaga“. Þar sagði að enn fremur verði regluverk í kringum tekjutilflutning „tekið til endurskoðunar til að tryggja að þau sem hafa eingöngu fjármagnstekjur reikni sér endurgjald og greiði þannig útsvar.“
Engar frekari skýringar voru gefnar í sáttmálanum á því hvernig endurmat á skattmatsreglum eigi að fara fram, hvaða óeðlilegu og óheilbrigðu hvata eigi að koma í veg fyrir né hvernig tryggja eigi að þeir sem hafi eingöngu fjármagnstekjur verði látnir greiða útsvar og þeirra mála sem er að finna á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar bera það með sér að fjalla um ofangreind atriði.
Kjarninn spurðist fyrir um hvað fælist í þessu stefnumáli ríkisstjórnarinnar fyrr á þessu ári, en hvorki forsætis- né fjármála- og efnahagsráðuneytið gat svarað því.
Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði í kjölfarið fram fyrirspurn á Alþingi um sama mál, og fékk efnislegt svar við henni frá Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra.
Í því svari sagði að endurskoðun skattmatsreglnanna, til að koma í veg fyrir óeðlilega og óheilbrigða hvata til stofnunar einkahlutafélaga, feli í sér að skattmat á hlunnindum og reglur um reiknað endurgjald verði teknar til einhverskonar endurskoðunar.
Þeir sem eiga einkahlutafélag utan um einhverskonar rekstur eiga að reikna sér laun fyrir þá vinnu sem felst í rekstrinum, sem getur eðli málsins samkvæmt verið allskonar. Ríkisskattstjóri setur árlega reglur um hver lágmarkslaun fyrir störf eigi að vera.
Munur á skattprósentu getur falið í sér hvata
Í svari Bjarna sagði að gætt hafi „tilhneigingar til þess að þeir sem telja fram launatekjur á grundvelli reiknaðs endurgjalds gangi út frá lægstu viðmiðunum sem reglurnar heimila og greiði sér í ríkari mæli út hagnað eða arð af rekstri. Af því leiðir að þeir sem telja fram lægra reiknað endurgjald en rétt mætti telja að séu tekjur þeirra í reynd greiða lægri tekjuskatt til ríkissjóðs en þeir sem starfa hjá ótengdum vinnuveitendum. Lægri reiknuð laun þýða enn fremur að greitt er lægra tryggingagjald og iðgjald til lífeyrissjóðs en ella væri.“
Bjarni sagði að munur á tekjuskatti annars vegar og samanlögðum skattgreiðslum vegna arðs og hagnaðar hins vegar geta falið í sér hvata til að stofna félag utan um atvinnurekstur svo hagnaður skattleggist í lægra hlutfalli en efsta þrepinu. „Þessu til viðbótar er hætta á að því að lögaðilar og þeir sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur gjaldfæri útgjöld á rekstur sem rétt væri að þeir beri persónulega af launatekjum sínum. Í því felst ígildi hlunninda eða tekna sem hvorki er greiddur tekjuskattur af í ríkissjóð né launatengd gjöld. Einnig að virðisaukaskattur af einkakostnaði sé talinn fram sem innskattur þannig að skil á virðisaukaskatti í ríkissjóð verði lægri sem því nemur.“
Ætla að skipa starfshóp
Jóhann Páll spurði einnig af hverju það hafi ekki verið gripið fyrr til aðgerða til að sporna við þessum hvötum sem eru innbyggðir inn í skattmatskerfi Íslands. Í svari ráðherra var því ekki svarað beint heldur þar þar meðal annars að í öðrum löndum hafi verið farnar „ýmsar aðrar leiðir en hér á landi til að reyna að samræma skattlagningu á tekjur af mismunandi uppruna en ljóst er að það getur verið vandasamt í framkvæmd.“
Fjármála- og efnahagsráðherra sagði að ríkisstjórnin ætli sér að koma í veg fyrir þessa hvata, í samræmi við fyrirheit í stjórnarsáttmála, með því að stofna sérstakan starfshóp um verkefnið. Erindi þess hóps verður skilgreint í skipunarbréfi. „Þar verður m.a. kveðið á um endurskoðun og einföldun reglna um reiknað endurgjald í eigin atvinnurekstri og samspil við skattlagningu á hagnað og arð sem og skattmat vegna hlunninda og úttekta eigenda úr félögum.“
Sá starfshópur hefur enn ekki verið skipaður.
Lestu meira:
-
11. janúar 2023Vatn á myllu kölska
-
10. janúar 2023Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
-
9. janúar 2023Fjármálaeftirlitið telur Íslandsbanka mögulega hafa brotið gegn lögum
-
8. janúar 2023Náttúra og umhverfi í forgang
-
8. janúar 2023Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira verðtryggt á einum mánuði frá því fyrir faraldur
-
8. janúar 2023Sautján ár á milli ráðninga á konu í forstjórastóli hjá skráðu félagi
-
4. janúar 202314 félög lækkuðu í virði en fjöldi einstaklinga sem á hlutabréf þrefaldaðist á þremur árum
-
3. janúar 2023Vont vetrarveður en gæti verið (miklu) verra
-
2. janúar 2023Fréttablaðið hætt að koma inn um lúguna hjá fólki – Lestur hríðfallið og kostnaður aukist
-
2. janúar 2023Seðlabankinn gleymdi að telja séreignarsparnaðinn með í minnisblaði um greiðslubyrði