Viðmiðunarverðið á bensínlítra yfir 300 krónur í fyrsta sinn
Hlutur olíufélaga í hverjum seldum bensínlítra er með lægsta móti um þessar mundir þrátt fyrir mjög hátt verð. Það bendir til þess að þau séu ekki að skila hækkunum á heimsmarkaðsverði nema að hluta út í verðlagið. Haldist það áfram hátt verður slíkt þó óhjákvæmilegt, með tilheyrandi hækkunaráhrifum á verðbólgu.
Viðmiðunarverð á bensínverði hérlendis er nú 307,1 krónur á lítra og hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Það hefur hækkað um 58 prósent á tveimur árum og um 15 prósent frá því í janúar síðastliðnum. Uppreiknað miðað við þróun vísitölu neysluverðs á bensínlítrinn þó nokkuð í land með að ná sínu hæsta verði, en í apríl 2012 kostaði hann um 360 krónur á núvirði. Bensínlítrinn hækkaði um 8,3 krónur í síðasta mánuði.
Þetta má lesa út úr nýjustu bensínvakt Kjarnans.
Hlutur ríkisins í hverjum seldum bensínlítra, sem samanstendur af virðisaukaskatti, almennu og sérstöku bensíngjaldi og kolefnisgjaldi er nú 148,84 krónur á hvern lítra af seldu bensíni. Það þýðir að 48,5 prósent af hverjum lítra fer í ríkissjóð. Hlutur ríkisins í hverjum seldum bensínlítra hefur aldrei verið hærri í krónum talið.
Mikilvægt er að hafa í huga að viðmiðunarverðið miðar við næstlægstu verðtölu í yfirliti síðunnar Bensínverð.is, sem hugbúnaðarfyrirtækið Seiður heldur úti, til að forðast að einhverju leyti áhrif tímabundinnar verðsamkeppni á allra lægsta verð. Viðmiðunarverðið er þó ætið með lægstu verðum. Hæstu verð á bensíni í dag er nú 313,9 krónur á bensínlítra, á ýmsum bensínstöðvum N1, en lægsta verðið er 274,8 krónur á lítra, á bensínstöð Costco. Því munar sem stendur 14,2 prósent á hæsta og lægsta verði.
Olíufélögin eiga eftir að velta hækkunum að fullu út í verðlagið
Hækkun síðustu tveggja ára má rekja annars vegar til hækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu á meðan að kórónuveirufaraldurinn geisaði og orsakaði hökkt í öllum aðflutningskeðjum í heiminum og hins vegar til innrásar Rússlands í Úkraínu í febrúar, sem gerði það að verkum að heimsmarkaðsverðið rauk enn frekar upp.
Líklegt innkaupaverð olíufélaga er nú 127 krónur á lítra og hækkaði um 21,4 prósent milli mánaða. Til samanburðar var innkaupaverðið 69,1 krónur á lítra í desember og hefur hækkað um 84 prósent síðan þá.
Hlutur olíufélaga í hverjum seldum lítra hefur ekki fylgt þessum hækkunum á innkaupaverði. Hann er nú 31,2 krónur eða um tíu prósent af hverjum seldum lítra.
Samanlagt fer því 158,2 krónur af hverjum seldum lítra til annarra en ríkisins, þ.e. þeirra sem selja smásölum á eldsneyti vöruna og til smásalanna sjálfra. Hlutfall íslensku olíufélaganna af þeirri köku hefur aldrei verið minna síðan að mælingar bensínvaktarinnar hófust í ágúst 2007. Þeir taka nú undir 20 prósent af þeirri tölu til sín en til samanburðar fór 46 prósent af henni til þeirra í desember síðastliðnum.
Þetta bendir til þess að ef heimsmarkaðsverðið á eldsneyti helst áfram hátt verði óhjákvæmilegt fyrir íslensku olíufélögin að velta þeim hækkunum enn frekar út í verðlagið, með tilheyrandi hækkunaráhrifum á verðbólgu sem þegar mælist 7,2 prósent. Uppfærðar spár Seðlabanka Íslands gera ráð fyrir að verðbólgan fari yfir átta prósent í nánustu framtíð og til að reyna að hemja hana hefur bankinn hækkað stýrivexti sína skarpt, síðast upp í 3,75 prósentustig.
Yfir 100 þúsund í viðbótarkostnað á ári
Ísland framleiðir vitanlega ekkert jarðefnaeldsneyti heldur flytur það allt inn. Bílar sem nota jarðefnaeldsneyti er enn í miklum meirihluta hérlendis. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru bensín og dísilbílarnir um 292 þúsund í lok árs 2021.
Því hafa skarpar hækkanir á eldsneytisverði mikil áhrif á rekstrarkostnað heimila. Ef horft er til þeirrar hækkunar sem orðið hefur á viðmiðunarverði frá því í maí 2020 þarf sá sem eyddi að jafnaði 15 þúsund krónum á mánuði í bensín þá þarf nú að borga 23.700 krónur fyrir sama magn af bensíni. Á ársgrundvelli er það aukinn kostnaður um 104.400 krónur.
Góðu fréttirnar eru þær að mikil aukning er á eign á bílum sem ganga fyrir rafmagni eða eru með raftengi. Fjöldi þeirra tvöfaldaðist frá lokum árs 2019 fram að síðustu áramótum, þegar þeir voru 21.143 talsins.
Gögn og aðferðafræði
Hér að ofan er birt niðurstaða útreikninga og áætlunar á því hvernig verð á lítra af bensíni skiptist milli aðila í framsetningu GRID.
- Viðmiðunarverð er fengið frá hugbúnaðarfyrirtækinu Seið ehf. sem meðal annars heldur úti síðunni Bensínverð.is og fylgst hefur með bensínverði á flestum bensínstöðum landsins daglega síðan 2007. Miðað er við næstlægstu verðtölu í yfirlitinu til að forðast að einhverju leyti áhrif tímabundinnar verðsamkeppni á allra lægsta verð. Viðmiðunarverðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíufélagsins en reikna má með að raunin sé meðaltalið af öllu seldu bensíni á landinu.
- Hlutur ríkisins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlutfallslegir. Upplýsingar um breytingar á skattalögum eru fengnar frá Viðskiptaráði sem fylgst hefur með slíkum breytingum um árabil.
- Líklegt innkaupaverð er reiknað útfrá verði á bensíni til afhendingar í New York-höfn í upphafi mánaðar frá bandarísku orkustofnuninni EIA og miðgengi dollars gagnvart íslenskri krónu í yfirstandandi mánuði frá Seðlabanka Íslands. Í þessum útreikningum kann að skeika nokkru á hverjum tímapunkti vegna lagerstöðu, skammtímasveiflna á markaði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bensíni til afhendingar í Rotterdam, en verðupplýsingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagnaveitum. Mismunur á verði í New York og Rotterdam er þó yfirleitt mjög lítill.
- Hlutur olíufélags er loks reiknaður sem afgangsstærð enda haldgóðar upplýsingar um einstaka kostnaðarliði olíufélaganna ekki opinberar. Hafa ber í huga að þar sem viðmiðunarverð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill einhverju hærri sé litið til heildarviðskipta með bensín á Íslandi.
Verðupplýsingar miðast við verðlag hvers tíma. Gögnin eru uppfærð mánaðarlega í kringum 15. hvers mánaðar. Fyrirvari er gerður um skekkjumörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreiknaða liði. Ábendingar um villur, lagfæringar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarninn.is og er tekið fagnandi.
Lestu meira:
-
11. janúar 2023Vatn á myllu kölska
-
10. janúar 2023Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
-
9. janúar 2023Fjármálaeftirlitið telur Íslandsbanka mögulega hafa brotið gegn lögum
-
8. janúar 2023Náttúra og umhverfi í forgang
-
8. janúar 2023Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira verðtryggt á einum mánuði frá því fyrir faraldur
-
8. janúar 2023Sautján ár á milli ráðninga á konu í forstjórastóli hjá skráðu félagi
-
4. janúar 202314 félög lækkuðu í virði en fjöldi einstaklinga sem á hlutabréf þrefaldaðist á þremur árum
-
3. janúar 2023Vont vetrarveður en gæti verið (miklu) verra
-
2. janúar 2023Fréttablaðið hætt að koma inn um lúguna hjá fólki – Lestur hríðfallið og kostnaður aukist
-
2. janúar 2023Seðlabankinn gleymdi að telja séreignarsparnaðinn með í minnisblaði um greiðslubyrði