Karolina Fund: Bökubíll landsliðsfyrirliðans og Valla flatböku

flatbaka guðjón valur
Auglýsing

Á bak­við Böku­bíl­inn eru bræð­urnir Val­geir og Guð­mund­ur G­unn­laugs­synir ásamt Guð­jóni Vali Sig­urðs­syni, lands­liðs­fyr­ir­liða í hand­bolta. Þeir reka einnig saman Íslensku Flat­bök­una í Bæj­ar­lind, Kópa­vogi. Val­geir, eða Valli Flat­baka eins og hann er gjarnan kall­að­ur, er hug­mynda­smið­ur­inn að Flat­bök­unni og Böku­bíln­um. 

Hann hætti í kvik­mynda­iðn­að­inum og elti lang­þráð­an draum að opna pizza­stað. Valli sann­færði bróðir sinn og Guð­jón Val að taka þátt. Í dag er stað­ur­inn tæp­lega árs gam­all og gengur mjög vel. Kjarn­inn ræddi við Valla.

Auglýsing

Hvaðan kom hug­myndin að böku­bílnum og hvernig teng­ist þið ­sem standið að verk­efn­inu?

Hug­myndin að Böku­bílnum kvikn­aði fljót­lega eftir að ­stað­ur­inn opn­aði í febr­úar á þessu ári. Mikið af við­skipa­vinum okkar var að koma langar leiðir til þess að fá sér pizzu og það helsta sem var spurt um var: hvenær ætliði að opna nær mér? Í fyrstu var þetta skemmti­legt að heyra og það var ekki inn í plönum að opna annan stað. En þegar það leið á þá og þessi spurn­ing hélt áfram að koma þá ­fórum við að hugsa hvað við gætum gert. Svarið var aug­ljóst. Böku­bíll­inn!

Við ákváðum að fara þá leið að hóp­fjár­magna bíl­inn til þess að geta komið honum á göt­urnar sem fyrst. Við fórum af stað með söfnun á Karol­ina Fund í byrjun nóv­em­ber og mark­miðið er að safna 3,5 millj­ónum króna fyrir 4. des­em­ber. Ef söfn­unin gengur eftir mun Böku­bíll­inn vera kom­inn á göt­urnar í mars eða apr­íl.

Með Böku­bílnum náum við að þjón­usta við­skipta­vini okkar nær þeim. Mark­miðið er að þjón­usta úthverfin vel á kvöldin og um helg­ar. Í hádeg­in­u liggur beint við að leggja nálægt vinnu­stöðum þar sem fáir veit­inga­staðir eru. Einnig verður hægt að bóka bíl­inn í hvaða til­efni sem er."

Bökubíllinn.Hvað ætlið þið að bjóða uppá í böku­bíln­um?

Böku­bíll­inn verður eins og smækkuð útgáfa af Flat­bök­unni. Í bílnum verður alvöru eldofn og ekk­ert til sparað í að halda gæð­unum eins og þær eru á staðn­um. Mat­seð­ill­inn verður svip­aður þótt að lík­lega verði aðeins vin­sælust­u pizz­urnar í boði. En það verður einnig hægt að fá vin­sæla rétti eins og berna­ise brauð­stang­irnar og eft­ir­réttapizzuna Sú Sanna. Á henni er Nutella súkkulaði, ban­an­ar, jarða­ber, kara­mella og flór­syk­ur. Við erum alltaf að finna ­upp á nýj­um, skemmti­legum réttum og Böku­bíll­inn mun aðeins gefa okkur frekari tæki­færi til þess að vera frum­leg."

Við hvaða til­efni væri hent­ugt að panta böku­bíl­inn?

Það er alltaf til­efni til þess að fá sér pizz­ur! En ­Böku­bíll­inn hentar ein­stak­lega vel fyrir fyr­ir­tæki sem eru að halda ­starfs­manna­dag eða vilja vera með öðru­vísi borð­hald á árs­há­tíð­un­um. Fyr­ir­ ein­stak­lega þá passar Böku­bíll­inn full­kom­lega í stóraf­mæli eða jafn­vel í brúð­kaup­ið. Einnig fyrir íþrótta­fé­lög sem vilja gera vel við stuðn­ings­menn eða iðk­end­ur.

Þótt allt sé hand­gert í bíln­um, þá er afkasta­getan mik­il. Ofn­inn ræður við hátt í 100 pizzur á klukku­tíma, þannig það er hægt að dæla þeim út. Bíll­inn hentar í hvaða til­efni sem er þar sem stór hópur ætlar að hitt­ast."

Þeir sem standa að Íslensku Flatbökunni í Kópavogi eru að safna fyrir Bökubílnum.

Hvað er hægt að fá í stað­inn fyrir að styrkja verk­efn­ið ykk­ar?

Það er nóg í boði fyrir þá sem styrkja. Það eru 5 og 10 pizzu klippikort sem veita mjög mik­inn afslátt af pizzun­um, sem hægt er að ­leysa út bæði í Böku­bílnum og á Flat­bök­unni. Ef það blundar í ein­hverj­u­m pizza­hönn­uð­ur, þá er hægt að fá að ger­ast slík­ur: Hanna eina pizzu, gefa henn­i ­nafn og hún verður í boði á Böku­bílnum í einn mán­uð, þar sem 10% af söl­unni á henni mun fara til góð­gerða­mál­efnis að eigin vali. Það er hægt að fá lands­lið­s­treyju árit­aða af íslenska lands­lið­inu í hand­bolta og Barcelona á­rit­aða af Guð­jóni Vali sjálf­um.

Þeir sem eru að plana atburð í byrjun næsta sum­ars geta ­bókað Böku­bíl­inn á ótrú­lega góðu verði, ann­ars vegar fyrir 50 manna veislu og hins vegar 100 manna veislu.

Topp­ur­inn er svo auð­vitað árs­birgðir af bök­um! Ein pizza á dag í heilt hár. Það á tæp­lega 500 kr. pizzuna. Allir sem styrkja fara svo á hetju­list­ann sem verður hengdur upp í bíln­um."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None