Karolina Fund: Finnst þér plötur asnalegar?

Páll Ivan
Auglýsing

Páll Ivan frá Eiðum fékk fyrir ein­hverju síðan skila­boð frá ókunn­ugum manni (Dr. Gunna) sem spurði hann hvers vegna hann hefði ekki gefið út plötu, og hvort honum fynd­ist plötur asna­leg­ar? Nú, nokkrum vikum síðar er Páll Ivan búinn að mixa og mastera 15 laga plötu (LP vín­yll). Það eina sem honum vantar upp á er að hanna og prenta umslag­ið, fram­leiða plöt­urnar og borga fólki fyrir vinn­una. Kjarn­inn tók Pál Ivan tali.



Segðu okkur frá mynd­list­inni þinni og þér sem ­mynd­lista­manni? 

Ég hef lengi daðrað við mynd­list­ina í ein­hverri mynd en það var í raun árið 2012 sem ég byrja af ein­hverri alvöru.  Ég var þá í fæð­ing­ar­or­lofi en barns­móðir mín hún Elín Anna Þór­is­dóttir er mál­ari og mynd­list­ar­maður þannig að heim­ilið var ­fullt af máln­ingu, pensl­um, og öðru sem þarf til þess að mála. 

Plata Páls Ivan.Ég var svo skelfi­lega vansvefta að ég gat ekki með nokkru móti búið til tón­list eða hugsað eða gert nokkuð vit­rænt, en að ­mála - það gat ég.  Það var æðis­legt að ­byrja bara að sulla með liti, dreifa þeim yfir flöt­inn án skipu­lags eða vænt­inga.  Unað­ur. Svo hef ég bara ekki hætt. Er að teikna mjög mikið um þessar mund­ir, voða mikið typpi og píkur en allt voða krútt­legt bara.  Kæru les­end­ur: Ekki hika við að byrja að mála og teikna!  Ekki vera feim­in! Það geta það all­ir, það mega það allir og það má alveg vera lélegur og hafa gam­an!"

Auglýsing

Hvað er þessi plata búin að vera lengi í bígerð?

Tja platan hefur í raun aldrei form­lega verið í vinnslu fyrr en fyrir örfáum mán­uðum síð­an.  Lögin eru sum orðin ansi gömul en ég hef bara sett þau á soundcloud og ekki hugsað um þau ­mikið meir. Svo fyrir stuttu sendir hann Dr. Gunni mér skeyti: Afhverju ertu ekki búinn að gefa út plötu? Eru plöt­ur asna­leg­ar? Örfáum vikum síðar var búið að mixa og mastera plötu, fá FM Belfast remix af einu lag­anna og henda í Karol­ina Fund fjár­öfl­un."



Ertu einn að vinna að þessu verki eða eru ein­hverj­ir ­góðir með þér?

 Hann Dr. Gunni hefur verið að hjálpa mikið við að velja lögin og ákveða röð­ina á þeim og svo hefur hann Albert Finn­boga­son verið að mixa aðeins og mastera allt.  Það eru ein­hverjir lík­legir sam­starfs­að­ilar í tengslum við útgáf­una sjálfa en það verður að koma í ljós aðeins seinna. Ef ég verð ekki neyddur til að gera umslagið sjálfur að þá væri frá­bært að fá frá­bæran lista­mann í verk­ið! Ef þið hafið hug­myndir að mögu­leg­um umslags­gerð­ar­lista­mönnum þá megið þið endi­lega láta mig vita."

Verk­efnið er að finna hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None