Snemma á síðasta ári leiddu þeir Sveinbjörn Bjarki Jónsson og Stephan Stephensen saman hesta sína eftir að hafa skipst á hugmyndum um nokkurn tíma.
Stephan, sem er auðvitað vel þekktur frá sínum dögum með Gus Gus, Gluteus Maximus og nú nýlega sem President Bongo, heyrði af verkefni sem Sveinbjörn Bjarki hafði byrjað á en ekki klárað og langaði að heyra meira.
Sveinbjörn Bjarki hafði verið að búa til tónlist frá unga aldri og var m.a. meðlimur hljómsveita á borð við Mind in Motion og Scope, áður en hann fór að starfa með tónlistarfólki eins og Móu, Bang Gang, Bellatrix, Silvíu Nótt, NLO, Páli Óskari og Togga. Eftir að hafa rætt saman um þemað í þessu tiltekna verkefni, ákváðu þeir að reyna að koma því út. Með hjálp Karolina Fund er gamall draumur að rætast, fyrsta sólóplatan.
Kjarninn hitti Sveinbjörn Bjarka Jónsson og tók hann tali.
Er þetta í fyrsta skipti sem þið tveir vinnið að verki saman?
„Þrátt fyrir að hafa verið mikið í kringum GusGus frá því að fjöllistahópurinn var stofnaður og þekkt nánast alla meðlimi, hafa vegir okkar Stephan ekki legið saman fyrr en nú nýlega.
Við deildum aðstöðu fyrir hljóðverin okkar í nokkra mánuði og samgangurinn varð alltaf meiri og meiri, þangað til það kom að því að Stephan flutti til Berlínar.Áður en það gerðist var búið að ákveða þemað fyrir verkefnið og leggja nokkurn línurnar fyrir útgáfuna sem átti í fyrstu aðeins að vera 2-3 lög.
Stuttu seinna voru 4 lög tilbúin og 2 ný bættust fljótlega við. Ég saknaði bassatrommunnar sem ég heyrði alltaf milli herbergjanna okkar svo mikið að ég yfirgaf húsnæðið og koma mér upp aðstöðu heima. Fyrir mig var það algjör himnasending að fá að vinna með Stephan í þessu verkefni mínu, þar sem drifkrafturinn og trúin á verkefnið er slíkur hjá honum að ég gat ekki hætt.
Við völdum svo að fara leið hópfjármögnunar til að fjármagna verkefnið og eftir að hafa kynnt það fyrir Karolina Fund var ekki aftur snúið. Síðustu ár hafa vínyl plötur verið að koma sterkar inn aftur, sem er mjög skemmtilegt format. Það er líka format sem við þekkjum báðir vel og kunnum vel við."
Hvað hafið þið verið að fást við í listinni undanfarið?
„Stephan hefur á undanförnum mánuðum verið að fylgja eftir útgáfu Serengeti sem President Bongo og DJ út um allan heim. Hann er svo alltaf með fjölmörg járn í eldinum, sem ég veit ekki hvort ég megi segja frá hér.
Ég hef verið frekar upptekin í þessu verkefni, en þó alltaf eitthvað að vinna með Togga. En við erum að vinna í nokkrum nýjum lögum núna og vonandi útgáfu seinna á árinu.
Nýlega var svo gamla hljómsveitin Mind in Motion kölluð á svið á Sónar og spilaði þar lög sem hafa legið í dvala síðan 1992. Kannski kemur Scope saman næst, hver veit."
Þið talið um að hugmyndin tengist notkun hljóðtækni á vígvöllum heimsstyrjaldarinnar síðari, hvernig kemur það saman?
„Ég hafði verið með þessa hugmynd í kollinum nokkur ár í raun og veru áður en Stephan tók að sér að stýra skútnni í höfn.
Þemað í verkefninu var mér náttúrlegt ef hægt er að orða það þannig, þar sem ég hef mikin áhuga á sögu og þá ekki síst stríðssögu og mínar uppáhalds myndir gerast í kringum seinni heimsstyrjöld og það þarf að vera snjór helst.
Í leit minni að áhugaverðum heimildarmyndum um WW2 fann ég áhugaverða lýsingu á viðfangsefni sem heillaði mig. Notkun á hljóði í hernaði.
Bretar höfðu sett á laggirnar heila herdeild af listamönnum og tæknimönnum sem áttu að finna leiðir til að blekkja andstæðinga sína í stríðinu.
Fyrst voru það uppblástnu skriðdrekarnir og flugvélarnar, en svo kom það sem heillaði mig helst. Upptökur af stríðstækjum, öskrum og sprengingum voru settar á stálþræði sem síðan voru spilaðir út á vígvellina í gegnum risa stór hljóðkerfi.
Þetta fannst mér magnað. Tæknin sem þetta fólk hafði yfir að ráða var frumstæð miðað við það sem við höfum í dag. En ég átti í engum vandræðum með að finna innblástur þarna.
Platan inniheldur samt ekki sprengingar og öskur (það er búið að gera þannig plötur), heldur er innblásin af verkum þessa lista- og tæknifólks."
Aðeins verða framleidd 300 eintök af þessum víny, en hægt er tryggja sér eintak af plötunni í forsölu hér.