Karolina Fund: Hreyfispjöld fyrir eldri borgara

hreyfispjöld
Auglýsing

Gerður Jóns­dóttir og Anna Björg Björns­dóttir eru tvær í teymi sem hafa mik­inn áhuga á hreyf­ingu og heil­brigðum lífs­stíl. Báðar eru þær íþrótta­kon­ur, Anna Björg hefur stundað knatt­spyrnu nán­ast allt sitt líf og Gerður kemur fyrst og fremst úr fim­leik­um, dansi og ýmsum bar­daga­list­um. Leiðin lá því bein­ast við hjá þeim báðum að mennta sig í íþrótta­fræðum og eru þær báðar með Bs. gráðu og M.ed. í þeim fræð­u­m. 

Í nám­inu fengu þær mik­inn áhuga á hreyf­ingu eldri borg­ara og komust að því að lítið er til af aðgengi­legu efni fyrir þennan hóp í sam­fé­lag­inu. Þar má segja að áhugi þeirra hafi kviknað að hanna hentug hreyfi­spjöld fyrir eldri borg­ara til þess og styðja og hvetja til hreyf­ing­ar. Kjarn­inn hitti Gerði og Önnu Björg og tók þær tali.

1. Fyrir hvern eru hreyfi­spjöld­in?

Hreyfi­spjöldin eru hönnuð með eldri borg­ara í huga en þrátt fyrir það geta allir nýtt sér spjöld­in. Þetta eru ein­föld æfing­ar­spjöld sem auka styrk, þol, lið­leika og jafn­vægi. Æfing­arnar eru fram­kvæmdar með eigin lík­ams­þyngd og án útbún­aðs. Hreyfi­spjöldin eru í hent­ugri stærð og ekki nauð­syn­legt að hafa reynslu af hreyf­ingu þar sem á spjöld­unum eru myndir og full­nægj­andi útskýr­ing­ar. Öll eld­umst við og einn óum­flýj­an­legur þáttur öldr­unar er að öll lík­ams­starf­semi okkar skerð­ist, sem hægt er að koma í veg fyrir með reglu­bund­inni hreyf­ing­u. 

Auglýsing

2. Hvernig er almennt lík­am­legt ásig­komu­lag eldri borg­ara á Íslandi?

Anna Björg og Gerður. Sam­kvæmt Hag­stofu Íslands hefur með­al­aldur eldri borg­ara hækkað síð­ustu ár og lík­am­legt ásig­komu­lag þeirra því betra en áður. 

Aukin tækni­þróun og betri lækn­is­þjón­usta hefur hjálpað til og mikil vit­und­ar­vakn­ing átt sér stað hvað varðar áhrif hreyf­ing­ar. Hreyf­ing er mik­il­vægur hluti heil­brigðs lífs­stíls og dregur úr hnignun tengdri öldr­un. 

Eldri borg­arar eru því sér­stak­lega hvattir til þess að stunda reglu­lega hreyf­ingu til þess að við­halda góðri heilsu og sjálf­stæð­ara lífi.

3. Lengir eða bætir hreyf­ing líf­ið?

Með því að stunda reglu­bundna hreyf­ingu er verið að við­halda góðri heilsu, auka lík­am­legan og and­legan styrk til að takast á við dag­leg verk­efni. Hreyf­ing hefur marg­þætt áhrif eins og auka þol og vöðva­styrk, aukin bein­þéttni betri svefn, minna hætta af ýmsum sjúk­dómum eins og syk­ur­sýki af teg­und 2, kransæða­sjúk­dóm­um, háþrýst­ingi, heila­blóð­falli, sumum krabba­meinum og einnig minni hætta á ótíma­bærum dauða. Styrkt­ar­þjálfun getur verið gíf­ur­lega gagn­leg fyrir ein­stak­linga komin á sín efri ár hún við­heldur vöðvamassa sem gerir það að verkum að hreyfi­færni við­helst bet­ur, göngu­ör­yggi verður meira og ein­stak­lingur nær því að lifa sjálf­stæðu lífi mun lengur en ella. Jafn­vægisæf­ingar eru einnig mik­il­vægar þar sem þær geta komið í veg fyrir ótíma­bært fall sem getur haft skelfi­legar afleið­ingar í för með sér. 

Það má því segja með góðu móti að reglu­leg hreyf­ing lengi líf­ið.

Við höfum lagt mikla vinnu í að búa til þessi spjöld og langar okkur að þetta verk­efni verði af veru­leika. Við biðlum til ykkar að styrkja þetta verk­efni svo við getum lagt loka­hönd á það og stuðlað að heilsu­efl­ingu eldri borg­ara. 

Söfn­unin fer nú fram hér á karolina­fund.com

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None