Karolina Fund: Forsetinn er alltaf einn á vaktinni

Alltaf einn á vaktinni
Auglýsing

„Þetta er óvenju­leg bók en góð, er mér sag­t,“ segir Karl Th. Birg­is­son sem hefur skrifað bók um for­seta­kjörið 2012. Kjarn­inn spurði hann um verk­ið.

Hvað kveikti áhuga þinn á að rann­saka og skrifa um þetta efni?

„Ég ákvað strax vorið 2012 að skrifa þessa bók enda vor­u framundan mjög sér­stakar for­seta­kosn­ing­ar, þar sem alvöru­mögu­leiki var á að ­sitj­andi for­seti yrði felld­ur. Það leit líka þannig út framan af. ­Kosn­inga­bar­áttan var stutt, en alveg ævin­týr­lega skraut­leg.

Auglýsing

Bókin er byggð á opin­berum heim­ild­um, sem sumar eru reynd­ar horfnar af inter­net­inu núna, en líka sam­tölum mínum við fjöl­marga sem koma við ­sögu enda tal­aði ég við fjölda fólks á degi hverjum off-t­he-record, þar á með­al­ Ó­laf Ragn­ar. Ég hélt líka dag­bók og birti brot úr henni innan um.“

Karl seg­ist hafa sett hand­ritið niður í skúffu, en tekið það ­upp þegar Ólafur Ragnar Gríms­son til­kynnti að hann ætl­aði þrátt fyrir allt að ­bjóða sig fram aft­ur. „Svo hætti hann aftur við, en þá var of seint að breyta káp­unni. Bókin er nefni­lega alls ekki um Ólaf Ragn­ar, heldur ekki síður um fram­boð Þóru Arn­órs­dóttur og kosn­inga­bar­átt­una alla. Þar gekk á ýmsu, sum­u ­skemmti­legu og öðru mjög ljót­u.“

Söfnun fyrir bókinni lýkur í kvöld.Karl leyfði örfáum að lesa bók­ina í hand­riti og seg­ir við­brögðin hafa verið þannig að bókin yrði að koma út. „Guðni Th. Jóhann­es­son ­kallar hana skyldu­lesn­ingu, Svan­hildur Hólm Vals­dóttir segir að hún sé listi­lega vel skrif­uð, Mar­gréti Tryggva­dóttur þótti hún bráð­fyndin og Davíð Þór Jóns­son lýsir henni sem spennu­sögu. Betri umsagnir get ég ekki beðið um.“

Þú sagðir að bókin væri óvenju­leg – hvernig þá?

„Þetta er blaða­mennsku­bók, sam­tíma­sagn­fræði. Slíkar bæk­ur eru algengar í Banda­ríkj­unum og Bret­landi, en eig­in­lega óþekktar hér. For­lög­in eru treg til að gefa út slíkar bækur og þá er Karol­ina Fund rétti vett­vang­ur­inn til að koma bók­inni til sinna. Að því leyti er bókin óvenju­leg, en efnið er líka óvenju­legt.

Flestir tengja mig lík­lega við póli­tík hin seinni ár, en mér­ fannst gott að finna aftur í mér blaða­mann­inn. Það er langt síðan síð­ast. Einn ­yf­ir­les­ari sagði að bókin væri skrifuð af sann­girni, en brú­tal hrein­skilni. Ég er sáttur við þann dóm.“

Söfnun fyrir bók Karls lýkur á Karol­ina Fund í kvöld, en miðað við umsagn­irnar virð­ist vera eftir tals­verðu að slægj­ast.

Verk­efnið er að finna hér

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None