Umhverfisráðherra Þýskalands bannar kjöt á opinberum viðburðum

Þýskaland vinnur að því að gera landið umhverfisvænna og nú hefur kjöt og fiskur verið bannaður á opinberum viðburðum umhverfisráðuneytisins. Ráðuneytið vonast til þess að með þessu sé athygli vakin á sjáfbærri neyslu matvæla.

hvatinn
Auglýsing

Þýska­land, eitt þeirra landa sem vinnur hvað harð­ast að því að minnka umhverf­is­á­hrif sín, hefur stigið enn eitt skrefið í átt að því að gera landið umhverf­is­vænna. Umhverf­is­ráð­herra lands­ins, Bar­bara Hendricks, hefur bannað kjöt og fisk á opin­berum við­burðum ráðu­neyt­is­ins og verður því ein­göngu leyfi­legt að bjóða upp á græn­met­is­fæði.

Í yfir­lýs­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að ráðu­neytið sé „ekki að segja neinum hvað þeir eigi að borða” fremur vilji það setja gott for­dæmi vegna þess að græn­met­is­fæða er umhverf­is­vænni en kjöt og fisk­ur. Ráðu­neytið von­ast til þess að með þessu sé athygli vakin á sjáf­bærri neyslu mat­væla.

Kjöt og mjólk­ur­fram­leiðsla hefur mikil umhverf­is­á­hrif og er einn stærsti þátt­ur­inn í kolefn­islosun á heims­vísu. Fram til þessa hafa rann­sóknir sýnt fram á að minni kjöt­neysla dragi úr umhverf­is­á­hrifum en auk þess hefur hún jákvæð áhrif á heilsu­far fólks.

Auglýsing

Ekki eru allir sam­mála um ágæti kjöt­banns­ins og hefur það hlotið mikla gagn­rýni frá pólítískum and­stæð­ing­um Hendricks. Meðal ann­ars hefur bannið verið kallað hræsni þar sem að það nær aðeins til við­burða en banni ekki kjöt­neyslu alfarið í ráðu­neyt­inu. Einnig telja ein­hverjir að með bann­inu sé verið að hafa óþarf­lega mikið vit fyrir fólki.

Þrátt fyrir gagn­rýn­ina stendur umhverf­is­ráðu­neytið fast á sínu og sagði tals­maður Umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins, Mich­ael Schroer­en, í sam­tali við The Guar­dian að bannið væri tákn­rænt skref þar sem að ráðu­neytið vilji stunda það sem það boðar sjálft.

Fréttin birt­ist einnig á hvat­inn.­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None