Nýdönsk safnar fyrir plötu á 30 ára afmælinu

Hljómsveitin Nýdönsk fagnar 30 ára afmæli á árinu. Breyttir tímar eru í plötuútgáfu og sveitin ætlar að fjármagna tíundu plötuna sína að hluta til í gegnum Karolina Fund.

Auglýsing
Björn Jörundur nýdönsk Daníel Ágúst

Hljóm­sveitin Nýdönsk hefur starfað óslitið frá árinu 1987 og fagnar því 30 ára starfs­af­mæli á þessu ári. Nýdönsk hefur gefið út vel á annan tug hljóm­platna með eigin efni, þar af níu breið­skífur þar sem lög sveit­ar­innar hafa komið út í upp­haf­legum útgáf­um.

Meðal þekktra laga sem hafa lifað með þjóð­inni má nefna Horfðu til him­ins, Flug­vél­ar, Fram á nótt, Hjálp­aðu mér upp, Nostradamus og Frelsið en útgefin lög sveit­ar­innar eru á annað hund­rað.

Hljóm­sveitin hefur hljóð­ritað og spilað á Íslandi, í Bret­landi, Nor­egi, Þýska­landi, Dan­mörku og víðar og er nú nýkomin frá Toronto í Kanada þar sem grunn­ur­inn var lagður að sann­kall­aðri tíma­móta­plötu.

Nú erum breyttir tímar í hljóm­plötu­út­gáfu og Nýdönsk mun fjár­magna útgáf­una að hluta til með for­sölu á Karol­ina Fund.

Kjarn­inn hitti Stefán Hjör­leifs­son gít­ar­leik­ara hljóm­sveit­ar­innar og tók hann tali.

Auglýsing

1. Hvað er á döf­inni hjá Nýdönsk?

Með­limir Nýd­anskrar eru nýkomnir frá Toronto í Kanada þar sem unnið var í nýju efni. Hljóm­sveitin hljóð­rit­aði 10 lög þar ytra og nú tekur við vinna við að útsetja efnið fyrir strengja­sveit og hljóð­rita hana. Platan verður síðan full­kláruð í sumar og mun koma út í sept­em­ber ef öll plön og fjár­mögnun gengur eft­ir.

Hljóm­sveitin vinnur sam­hliða að und­ir­bún­ingi afmæl­is­tón­leika sem verða fluttir í sjón­varpi.

Þriðju­dag­inn 11. apríl hefst svo miða­sala á tón­leika sveit­ar­innar sem haldnir verða þann 23. sept­em­ber í Eld­borg­ar­sal Hörpu en tón­leikar sveit­ar­innar á árinu verða valdir af kost­gæfni og vandið verður til verka.

2. Nú eru 30 ár síðan Nýdönsk var stofn­uð, hvernig ætlið þið að fagna þeim tíma­mót­um?

Stefán HjörleifssonTíma­mótum ber að fagna og hljóm­sveitin hyggst gefa út sína tíundu breið­skífu með glæ­nýjum lögum á árinu. Sveit­inni til full­tingis verður strengja­sveit, sem flytur vand­aðar útsetn­ing­ar, ásamt hljóm­sveit­inni hljóm­sveit­inni auð­vitað

Platan verður hljóð­rituð á Íslandi og í Kanada en það hefur reynst vel sækja inn­blástur til ann­ara landa. Þetta verður að lík­indum viða­mesta verk­efni hljóm­sveit­ar­innar hingað til og ekk­ert verður til sparað að hljóm­platan verði list­rænt eins vönduð og kostur er.

Öll lög og textar eru ný af nál­inni og voru samin á þessu ári.

Platan verður síðan flutt, að hluta til að minnsta kosti á stór­tón­leikum í Hörpu 23. sept­em­ber með stórri strengja­sveit ásamt öðrum lögum í sama bún­ingi en einnig verða vin­sæl­ustu lög sveit­ar­innar flutt í þeim bún­ingi sem fólk þekk­ir.

3. Verður þessi plata eitt­hvað í lík­ingu við það sem hefur komið frá ykkur áður eða eru þið að feta nýjar slóð­ir?

Allar okkar plötur eru ólíkar og hefur hver plata sinn karakt­er. Þessi plata mun þó skera sig enn frekar úr þar sem sveitin nýtir sér í fyrsta sinn stóra strengja­sveit í hljóð­veri. Það var lagt upp með það í byrjun og laga­smíð­arnar tóku því mið af því og það hefur verið haft í huga allt ferlið einkum þegar kom að útsetn­ingum á grunn­hljóð­fær­un­um  Á þessu stigi eru auð­vitað erfitt að setja til um hvernig platan muni enda en lögin eru þó fjól­breytt að vanda og allt yfir­bragð mun hæfa þessum tíma­mót­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None