Ný getnaðarvörn hægir á sæðisfrumum

Mikilvægt er að kynin deili ábyrgð á getnaðarvörnum, sem er að mestu á herðum kvenna í dag. Vísindahópar vinna að því að finna leiðir til að hafa áhrif á frjósemi karla, án þess þó að fara í óafturkræfar aðgerðir.

Getnaðarvarnarpilla
Auglýsing

Getn­að­ar­varnir hafa lengi vel legið að mestu á herðum kvenna að miklu leyti vegna þess að æxl­un­ar­færi þeirra eru mun með­færi­legri þegar hafa á áhrif á æxl­un­ar­takt­inn. En það getur skipt bæði kynin miklu máli að geta dreift ábyrgð­inni og því hafa vís­inda­hópar lagt mikið kapp á að finna áhrifa­ríka leið til að hafa áhrif á frjó­semi karla, án þess þó að fara í óaft­ur­kræfar aðgerð­ir.

Rann­sókn­ar­hópur við Boston Childrens Hospi­tal hefur unnið að rann­sókn sem gæti skilað nýrri teg­und getn­að­ar­varna fyrir karla á mark­að­inn. Getn­að­ar­vörnin snýr að því að stjórna sund­hraða sæð­is­frumn­anna.

Hal­inn á sæð­is­fru­munum not­ast við jóna­göng sem kallast Cat­Sper til að auka kraft sinn til að ýta hausnum inni í egg­frumuna. Þegar sæð­is­frumur eru í návígi við kven­horm­ón­ið pró­gesterón binst horm­ónið við þessi jóna­göng og virkjar þau þannig að sæð­is­frum­urnar fá auk­inn hreyfi­kraft. Það eru þó nokkrir þættir sem hafa hamlandi áhrif á þessu göng, t.d. testó­sterón og stress­horm­ón.

Auglýsing

Rann­sókn­ar­hópnum þótti ekki fýsi­legt að nota slík hormón vegna þeirra auka­verk­anna sem þau gætu haft. Því var farið í að leita að sam­eindum í plöntum sem gætu unnið svip­aða vinnu.

Lupeol er efni sem finnst meðal ann­ars í jarð­ar­berjum og ólíf­um. Þetta efni sýnir sömu bindi­eig­in­leika við Cat­Sper og hamlandi hormón lík­am­ans gera. Það þýðir að sé lupeol látið bind­ast við jóna­göng­in Cat­Sper þá virka þau ekki sem skyldi og ­sæð­is­frum­an ­fær ekki auk­inn kraft til að synda.

Enn sem komið er hafa þessar til­raunir bara farið fram á sam­einda­stigi. Það verður for­vitni­legt að sjá hvernig rann­sóknir á frum­um, dýrum og mönnum munu fara. Ef lupeol gefur jafn góða raun í klínískum prófum gætum við ekki ein­ungis verið að horfa á nýja getn­að­ar­vörn fyrir karl­menn heldur einnig nýja neyð­ar­getn­að­ar­vörn, sem hefur ekki áhrif á egg sem þegar hefur verið frjóvg­að.

Fréttin birt­ist líka á Hvat­an­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk